Archive for July, 2008

Farinn

Thursday, July 24th, 2008

…í frí austur á Norðfjörð. Kem eftir verslunarmannahelgi. Nenni varla að skrifa neitt á meðan.

“Fjárhagslega ósjálfstæður”

Tuesday, July 22nd, 2008

Kínverjar hafa víst sent frá sér lista yfir óæskilega gesti á Ólympíuleikunum. Vef-mogginn hnýtur sérstaklega um að á þeim lista séu nefndir bæði geðfatlaðir og fjárhagslega ósjálfstæðir einstaklingar.

Mér vitanlega hafa íslensk stjórnvöld ekki gert kröfu um geðheilbrigðisvottorð þess fólks sem hingað ferðast - en hitt þekkjum við, að fólki sem hingað kemur til tímabundinnar dvalar er gert skylt að sýna fram á fáránlega háar peningainnistæður. “Fjárhagslega ósjálfstætt fólk” er ekki síður illa séð á Íslandi en í Kína.

Það er sjálfsagt að skamma stjórnvöld í Bejing fyrir dónaskapinn - en lítum okkur nær líka!

Sykursætt

Tuesday, July 22nd, 2008

Það er hægt að finna allt á Jútúb. Þessi moli hérna er líklega einn sá dísætasti á netinu.

Anita Dobson, vinsælasta sápuóperustjarna Bretlands fyrr og síðar (Angie úr Eastenders) treður upp hjá Wogan og syngur hugljúfa vellu sem byggir á upphafslaginu úr Eastenders.

Örstutt leit á netinu leiðir í ljós Anita Dobson var valin “rassgat ársins” 1987. Þau verðlaun komu í hlut þeirrar konu sem þótti hafa lögulegasta afturendann. - En áður en þið byrjið að skamma mig fyrir að stuðla að hlutgervingu kvenna… frá árinu 1997 hefur verið keppt bæði í kvenna og karlaflokki!

Anita Dobson er eiginkona David May - sem ber víst tónlistarlega ábyrgð á þessari ballöðu… sem þýðir að Óli Gneisti hlýtur að kommentera. Ef Sigga bleika les þessa síðu ennþá, þá getur hún varla stillt sig heldur… Hvað ætli sé að gerast í Eastenders núna?

Fljúgum hærra!

Tuesday, July 22nd, 2008

Helvítið hann Benedikt Hjartarson náði því sem Eyjólfi sundkappa og bókaútgefandanum snjalla Benedikt Lafleur mistókst - að synda yfir Ermarsund.

En eigi skal gráta Björn bónda, heldur safna liði…

…legg til að Benedikt Lafleur reyni næst við Beringssund…

Lækjargötuhótelið

Monday, July 21st, 2008

Það verður landhreinsun að losna við Glitnis-húsið við Lækjargötu, eins og boðað hefur verið. Var þetta ekki Iðnaðarbankaútibú upphaflega?  Hótelið sem þarna á að rísa virðist ekki ósnoturt.

Mig minnir að fyrst hafi verið farið að ræða um niðurrifið fyrir mörgum árum, þegar Glitnir - þá Íslandsbanki - ætlaði að reisa höfuðstöðvar á reitnum. Síðar varð Kirkjusandur fyrir valinu og áætlanirnar lagðar á hliðina.

Meðan Íslandsbanki leit ennþá á Lækjargötudeildina sem eina af höfuðstöðvum starfemi sinnar, voru bílastæðamálin stór hausverkur. Þá kom upp sú hugmynd að bankinn reisti bílakjallara undir flötinni fyrir framan Menntaskólann í Reykjavík. Lóðin tilheyrir víst skólanum, en allir vita að þar verður aldrei byggt… ofanjarðar. Öðru máli gegnir um bílakjallara sem koma mætti fyrir undir grasfötinni.

Þegar ég sat í skólanefnd MR sem nemendafulltrúi veturinn 1994-95, var Guðni heitinn Guðmundsson mjög áfram um að leyfa bankanum að reisa mannvirkið, gegn því að fá ákveðinn hluta bílastæðanna fyrir skólann sem og möguleika á geymslurými og öðru slíku sem gagnast gæti við reksturinn.

Síðar - þegar deilt var um bílastæðakjallara sem bílastæðasjóður vildi reisa undir Tjörninni, reyndi ég að rifja upp þessa gömlu hugmynd. Hún fékkst aðeins rædd í fjölmiðlum og fékk góðar undirtektir. Þegar Tjarnarkjallarinn var sleginn af missti Bílastæðasjóður hins vegar áhugann á svæðinu og MR-flötin var aldrei könnuð fyrir alvöru.

Nú er spurning hvort hótelframkvæmdin kallar á róttækar lausnir í bílastæðamálum? Er e.t.v. tímabært að dusta rykið af gömlu MR-hugmyndunum? Þarna mætti ná djúpum bílakjallara með mun auðveldari hætti en víðast hvar annars staðar í miðbænum. Ég þykist sömuleiðis vita að rektor væri samningalipur ef skólanum væru tryggð nokkur stæði til að létta aðeins á erfiðum bílastæðavandamálum MR-inga.

Arnar og Bjarki

Monday, July 21st, 2008

Það virðist frágengið að Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir taki við Skagaliðinu sem spilandi þjálfarar.

Þar með opnast möguleiki á sérstæðri atburðarás.

Segjum sem svo að FH landi Íslandsmeistaratitlinum - sem telja má líklegt. Og að Skaganum takist ekki að rétta úr kútnum - þá myndu þeir bræður afreka það að verða Íslandsmeistarar OG falla niður um deild.

Það efast ég um að öðrum hafi tekist.

Eiríks Stefánssonar-væðingin

Monday, July 21st, 2008

Þegar ég villist inn á Útvarp Sögu í bílnum mínum, þá finnst mér eins og ég lendi alltaf á sama dagskrárliðnum: hugvekju frá fulltrúa Frjálslynda flokksins.

Og koma tveir menn til greina - annars vegar Jón Magnússon, sem talar yfirvegaðri röddu og flytur skipulega uppbyggðan pistil. Eins og maður er nú oft ósammála Jóni, þá er eitthvað seiðandi við röddina hans og pistlarnir eru virðast sannfærandi - amk ágætlega rökstuddir.

Hins vegar er það Eiríkur Stefánsson. Hann öskrar.

Dæmigerður pistill er eitthvað á þessa leið:

Núna sé ég það í fréttum að það er verið að safnast saman til að mótmæla (illri meðferð á flóttamönnum,/ójafnri stöðu samkynhneigðra í þjóðfélaginu/stríðinu í Írak/gróðurhúsaáhrifunum/setjið-inn-málstað-að-eigin-vali). Þarna vantar ekki silkihúfurnar. Þarna eru allir þessir vinstri-grænu-samfylkingarmenn (röddin byrjar að bresta)… Og þau segjast vera að mótmæla mann-réttinda-brotum… - (stutt þögn)

- og það er svo sem gott og blessað. Að tala um þetta… - Það getur vel verið að þetta sé ofboðslega slæmt…

en við þetta fólk hef ég bara eitt að segja: HRÆSNARAR!!! - HVERNIG GETIÐ ÞIÐ TALAÐ UM MANNRÉTTINDABROT ÞEGAR ÞIÐ ERUÐ EKKI AÐ MÓTMÆLA KVÓ-TA-KERF-INU!!! ARRRGH!

HÉR ER VERIÐ AÐ NÍÐAST Á HARÐDUGLEGUM SJÓMÖNNUM - EN ÞETTA “´FÍNA FÓLK” ER BARA AÐ TALA UM HOMMA EÐA ÚTLENDINGA.

HVAR VORUÐ ÞIÐ ÞEGAR 14 MANNS Í FRJÁLSLYNDAFLOKKNUM STÓÐU  MEÐ MÓTMÆLASKILTI GEGN KVÓTAKERFINU??? ARRRGH!!! VINSTRI-GRÆNA-SAMFYLKINGARPAKK! JÁ, PAKK- ÞVÍ HVAÐ ER ÞAÐ ANNAÐ EN PAKK SEM HUGSAR UM SAMKYNHNEIGÐA OG ÚTLENDINGA EN BERST EKKI GEGN MANNRÉTTINDABROTUM Í SÍNU EIGIN LANDI!!! HRÆSNARAR - ÚRSKURÐUR MANNRÉTTINDANEFNDAR - SVIKAMYLLA - REYKJAVÍKURVITLEYSINGAR… (erfitt að heyra orðaskil, þar sem maðurinn öskrar þetta í hljóðnemann)…

Þessi fyrirlestur hefur verið fluttur með nokkrum tilbrigðum á Útvarpi Sögu síðustu mánuðina. Ég verð reyndar alltaf jafn kátur þegar ég hlusta á hann og geri mér í hugarlund einhvern talsmann Samtakanna 78 hella sér yfir Eirík, þar sem hann stendur með skiltið “Ú á LÍÚ” á Austurvelli, með orðunum: “HVAÐ MEINARÐU MANNFÝLA - AÐ ÞÚ HAFIR EKKI MÆTT Á GAY PRIDE SÍÐAST??? OG SAMT VOGARÐU ÞÉR AÐ HAFA SKOÐUN Á FISKVEIÐISTJÓRNUNARKERFINU??? ERTU SIÐBLINDUR???”

Ef marka má hinar kúnstugu umræður um hvort sé svalara - alþýðuhetjan Bubbi eða umhverfishippinn Björk - þá virðist hins vegar röksemdafærsla Eiríks Stefánssonar vera að ganga oní ansi marga…

Leiktímarnir

Monday, July 21st, 2008

Það eru örfáir dagar í Ólympíuleika, en RÚV hefur enn ekki haft fyrir því að setja upp vefsvæði með dagskrá sinni. Ég hef ekki einu sinni séð tilkynningu um hvenær leikirnir með handboltalandsliðinu verða.

Minnugur afleitra útsendingartíma frá Seoul 1988, fór ég á síðu leikanna til að reyna að grafast fyrir um þetta sjálfur. Að því gefnu að tímamismunurinn sé níu klukkustundir sýnist mér þetta vera e-ð á þessa leið í íslenskum tímum:

i) Ísland-Rússland, 10. ágúst kl. 19:45

ii) Ísland-Þýskaland, 13.ágúst kl. 5:45

iii) Ísland-Suður Kórea, 14.ágúst kl. 23:00

iv) Ísland-Danmörk, 17.ágúst kl. 5:45

v) Ísland-Egyptaland, 18.ágúst kl. 18:00

Þetta er nú alls ekki svo slæmt. Skikkanlegir kvöldleikir - og svo er bara að rífa sig upp snemma tvo morgna. Nefndi einhver bronsverðlaun…?

LEIÐRÉTTING!

Mér er bent á að Kínverjar séu ekki með sumartíma. Það er því líklega rétt að draga einn klukkutíma af framangreindu. Fyrstu leikirnir eru þá að byrja 4:45, sem er óstuð.

Metjöfnun

Sunday, July 20th, 2008

Jahérna. Skaginn tapaði í kvöld með fimm marka mun. Gat ekki stillt mig um að slá því upp hvenær það gerðist síðast í deildarleik.

1976 unnu Valsmenn Skagann með þessari sömu markatölu, 6:1. Það er jafnframt metið á Skaganum.

# # # # # # # # # # # # #

Fréttin af stórglæpamanninum sem seldi Vestfirðingum málverk án tilskilinna leyfa var hádramatísk. Svo virðist sem kaupi hafi náð að brjóta hálfa tylft laga.

En hvað ætli gaurinn sem prangaði myndinni af grátandi stráknum inn á öll íslensk heimili hefði fengið margra ára fangelsi miðað við þetta?

Þjónustugjöld

Friday, July 18th, 2008

Ég stend í stappi við Orkuveituna. Ekki sem starfsmaður - heldur sem viðskiptavinur. Ágreiningsefnið er þjónustugjöld.

Þannig er mál með vexti að á Mánagötunni eru þrjár íbúðir: kjallari, fyrsta og önnur hæð. Sú hefð hefur skapast í húsinu að framkvæmdakostnaði og kostnaði við kyndingu er skipt í hlutföllunum 40-40-20. Það endurspeglar nokkurn veginn stærð íbúða og hlutföllin eru þægileg. Engum dettur í hug að láta skipta upp heitavatnsmælinum, enda er það mjög órökrétt í svona húsi þar sem íbúðirnar hafa hitann hver af annarri.

Við erum ekki með húsfélag og sérstaka kennitölu fyrir það. Auðvitað gætum við stofnað það, en mér er þó til efs að fólk í tvíbýli eða þríbýli geri það almennt.

Fyrir vikið er heitavatnsreikningurinn gefinn út á eina íbúð í húsinu - okkar. Við höfum svo það hlutverk að rukka nágrannana mánaðarlega, sem er hvimleitt. Auk þess gerir þessi tilhögun okkur það erfiðara að taka upp aðra greiðslumáta, s.s. boðgreiðslur eða netgreiðslur með tilheyrandi afsláttarmöguleikum.

Í spjalli við vinnufélaga, var mér bent á að Orkuveitan byði upp á skiptingu reikninga. Þannig gætum við skilað inn blaði með undirskriftum allra íbúa og fyrirtækið eftirleiðis sent þrjá reikninga - með þessari ágætu skiptingu 40-40-20. Auðvitað gerðum við ráð fyrir að þjónustugjöldin yrðu eitthvað hærri eða að eitthvert stofngjald fylgdi þessari þjónustu. Eðli málsins samkvæmt kostar það Orkuveituna meiri vinnu að útbúa þrjá reikninga en einn.

En okkur brá í brún þegar farið var að kanna kostnaðinn við innheimtuna. Orkuveitan innheimtir nefnilega viðbótargjald upp á 1.800 kr. +vsk. fyrir hverja íbúð - á hverju ári. Samanlagður kostnaður íbúðanna þriggja í húsinu yrði því um 6.000 krónur á ári!

Það er fáránlega mikið.

Ég hélt að orkufyrirtæki væru í sömu stöðu og opinberir aðilar, að þjónustugjöld þeirra eigi að endurspegla raunverulegan kostnað - nema sérstakar lagaheimildir væru fyrir öðru. Ég á mjög bágt með að sjá hvernig Orkuveitan getur fært fyrir því rök að viðbótarkostnaðurinn vegna reikningaskiptingarinanr geti farið nálægt þessari upphæð, einkum þar sem hér er ekki um stofnupphæð að ræða heldur föst tala á hverju ári.

Ég átti ágætt samtal við samstarfskonu vegna þessa, en fékk svo sem ekki mörg svör önnur en þau að svona væri gjaldskráin. Hún gat þó bent á að með þessari skiptingu væri ekki um það að ræða að útbúinn væri einn reikningur og honum svo skipt upp í þrennt - heldur væru eiginlega stofnaðar þrjár veitur inni í tölvukerfi Orkuveitunnar sem aftur deildu einum mæli. Þannig væri þetta í raun ekki þannig að mælaaflesarinn kæmi á Mánagötuna og læsi af einum mæli, skrifaði niður tölu og kostnaðinum væri skipt eftir fyrirframákveðinni formúlu - heldur kæmi mælaaflesarinn á svæðið og læsi í raun þrisvar sinnum af sama mælinum í heimsókninni… Eða eitthvað svoleiðis…

Annað sem starfsmaðurinn gat bent á Orkuveitunni til varnar, var að í raun bæri fyrirtækinu engin skylda til að bjóða upp á þessa þjónustu. Þannig gæti Orkuveitan í krafist þess að einn reikningur væri látinn nægja.

Ég er enn ekki sannfærður. Ætli maður hefði ekki sætt sig við þjónustugjald sem væri svona þriðjungur eða fjórðungur af þessari upphæð. 2.000 kall pr. íbúð á ári er hins vegar ekki ásættanlegt.

Þá er bara tvennt í stöðunni:

i) hverfa aftur til fyrra horfs

eða

ii) senda Umboðsmanni Alþingis og Neytendasamtökunum fyrirspurn

Hvað ráðleggja lesendur?