Listaháskólinn

Hef ekki skoðun á húsinu sem búið er að teikna við Laugaveginn.

Sjálfum leist mér þó alltaf best á hugmyndina um að flytja Listaháskólann í Iðnskólahúsið á Skólavörðuholti ásamt Vörðuskóla - þar sem eru talsverðir viðbyggingarmöguleikar.

Iðnskólinn myndi svo fara á reitinn þar sem Kennaraháskólinn er núna, en KHÍ hlýtur hvort sem er að flytjast á svæði HÍ eftir sameininguna.

Allir sáttir - og engin krísa?

3 Responses to “Listaháskólinn”

  1. hildigunnur Says:

    hmm, ég væri til í það - ef húsin henta. Það þarf talsverðar tilfæringar, sérþarfir fyrir hverja deild og undirdeild, frekar ólíklegt að þegar byggt hús uppfylli þessar kröfur (tónleikasal og ótrúlega góða hljóðeinangrun fyrir tónlistardeild, myndlistin og arkítektúrinn þarf gríðargóða lýsingu eða sali með glerlofti, dansinn rúmgóðar og mjög vel loftræstar stofur, örugglega endalausar aðrar sérþarfir sem ég hef ekki hugmynd um).

    Reyndar er Austurbæjarskóli búinn að sverma fyrir Vörðuskóla alllengi líka, skólinn verulega sprunginn.

  2. anna Says:

    Af hverju ekki senda listaháskólann austur á Borgarfjörð eystri?

  3. Jón Árni Says:

    Þetta er fín tillaga. Iðnskólinn er hluti af Tækniskólanum ,gamla stýrimannaskólanum, og á því vel heima þar.

Leave a Reply