Verkalýðsmál

Eins og fram hefur komið í fréttum munu leiðbeinendur í Vinnuskólanum fara í verkfall í dag.

Heimildir mínar innan verkalýðsreyfingarinnar herma að von sé á samúðarvinnustöðvun hjá krökkunum í Vinnuskólanum.

Hún mun koma fram í því að liðið í unglingavinnunni mun sofa fram á skófluna, flatmaga í grasinu í stað þess að reyta arfann og sópa eina gangstéttarhellu á tíu mínútum…

8 Responses to “Verkalýðsmál”

  1. kolbeinn Says:

    Það er ekki von að vinnuþjarkur sem tilkynnir bloggfrí og bloggar síðan sem aldrei fyrr skilji hið hárfína samband vinnugöfgi og hangs sem unglingavinnan er.

  2. Stefán Says:

    Vinnuþjarkurinn átti ekki von á að komið væri þráðlaust net fyrir austan…

    En auðvitað var þetta billegur djókur. Maður sér greinilega muninn á þeim stöðum sem eru með öfluga unglingavinnu og þeim sem ekki halda slíku úti.

  3. kolbeinn Says:

    Ég var í unglingavinnu við að raka mesta stórgrýtið af götum Siglufjarðar. Þá lærði ég að hjólbörur eru mörgum kostum gæddar. Í þeim er til dæmis ljómandi fínt að sofa.

  4. Tobbi Says:

    „liðið í unglingavinnunni mun sofa fram á skófluna, flatmaga í grasinu í stað þess að reyta arfann og sópa eina gangstéttarhellu á tíu mínútum…“
    Og þetta er frábrugðið venjulegum vinnudegi í…?

  5. pallih Says:

    …Minjasafni Orkuveitu Reykjavíkur…

  6. Tobbi Says:

    Moggabloggið!!! Hrunið!!!

  7. anna Says:

    Moggabloggið komið aftur :)

  8. sVERRI Says:

    ég var í unglingavinnuni á sínum tíma …

    þar lærði ég sömu reglu og mér var kennd í fótboltanum í gamla daga

    þetta er ekki spurnig um að vinna heldur vera með

Leave a Reply