Alvöru smáþjóðaleikar
Af hverju fór þetta óopinbera heimsmeistaramót alveg framhjá manni? Norðurbandalagið hans Bossi er amk að gera góða hluti á knattspyrnuvellinum - og kvennalið Sama getur borið höfuðið hátt.
2006 fór mótið fram í Okkitaníu. Þá unnu Samar, en keppnin galt fyrir að enskumælandi þjóðarbrotið í Kamerún hætti á síðustu stundu við þátttöku.
Annars er þetta svalasta álfusamband sem ég hef heyrt um. Meðal aðildarlanda er Martin Garcia-eyja, sem telur um 150 íbúa. Það er vel af sér vikið að tefla fram landsliði úr þeim hópi.

July 29th, 2008 at 16:57
Í ljósi þess að lið Aramea tók þátt í VIVA-heimsmeistaramótinu fyndist mér upplagt að augljósa keppnina sem þá HM í knattspyrnu sem Jesús myndi fylgjast með.
July 30th, 2008 at 12:52
Þetta er sannarlega svalt álfusamband
Svalari en Martin Garcia-eyja finnst mér þó eyjan Islas Georgias del Sur. Þar eru 12 íbúar á veturna og 26 á sumrin. Það er spurning hvort eyjur í kringum Ísland geti ekki stofnað sambærilegt samband. Það yrði áhugaverður slagurinn á milli Grímseyjar og Hríseyjar, tja eða Æðeyjar og Vigurs