Leiktímarnir

Það eru örfáir dagar í Ólympíuleika, en RÚV hefur enn ekki haft fyrir því að setja upp vefsvæði með dagskrá sinni. Ég hef ekki einu sinni séð tilkynningu um hvenær leikirnir með handboltalandsliðinu verða.

Minnugur afleitra útsendingartíma frá Seoul 1988, fór ég á síðu leikanna til að reyna að grafast fyrir um þetta sjálfur. Að því gefnu að tímamismunurinn sé níu klukkustundir sýnist mér þetta vera e-ð á þessa leið í íslenskum tímum:

i) Ísland-Rússland, 10. ágúst kl. 19:45

ii) Ísland-Þýskaland, 13.ágúst kl. 5:45

iii) Ísland-Suður Kórea, 14.ágúst kl. 23:00

iv) Ísland-Danmörk, 17.ágúst kl. 5:45

v) Ísland-Egyptaland, 18.ágúst kl. 18:00

Þetta er nú alls ekki svo slæmt. Skikkanlegir kvöldleikir - og svo er bara að rífa sig upp snemma tvo morgna. Nefndi einhver bronsverðlaun…?

LEIÐRÉTTING!

Mér er bent á að Kínverjar séu ekki með sumartíma. Það er því líklega rétt að draga einn klukkutíma af framangreindu. Fyrstu leikirnir eru þá að byrja 4:45, sem er óstuð.

10 Responses to “Leiktímarnir”

  1. Halldór Berg Says:

    Tímamismunurinn er ekki nema 8 tímar.

  2. Stefán Says:

    Ertu viss? Ég hélt að það væru 8 tímar á veturna en 9 á sumrin.

  3. HT Says:

    Get ekki séð, í fljótu bragði a.m.k., að kinverjar praktíseri sumartíma frekar en íslendingar og þ.a.l. átta tíma munur allan ársins hring. Ísland á GMT og Beijing á GMT+8.

  4. Örn Úlfar Sævarsson Says:

    Hvað er þetta lið að vilja til Kína? Geta þeir ekki spilað handbolta eða brennó bara heima hjá sér? Er þetta ekki bara eitt allsherjar kokkteilboð? Og hver borgar brúsann?

  5. Kristján Hrannar Pálsson Says:

    19:45, plús átta tímar? Varla halda þeir leikina um miðjar nætur hjá sér? Á þetta ekki að vera 8 tíma í hina áttina?

  6. Stefán Says:

    Uh - nei, leikurinn kl. 19:45 er að morgni hjá þeim.

    E… eða er ég alveg að klúðra þessu?

  7. pallih Says:

    ISL -RUS n er kl. 10:45 að kínverskum tíma - það þýðir 03:45 GMT.
    ISL - GER er kl. 20:45 að kínverskum tíma - það þýðir 13:45 GMT
    ISL - KOR er kl. 14:00 að kínverskum tíma - það þýðir 07:00 GMT

  8. HT Says:

    Þetta er ekki alls kostar rétt.
    Við erum á GMT, leikarnir GMT+8 Það þýðir skvt. mínum útreikningum að leikur hjá þeim kl. 10:45 að morgni er kl. 2:45 nóttina áður hjá okkur.
    Kl. 20:45 verður 12:45 og 14:00 verður 06:00.

  9. Óli Njáll Says:

    Ég hef nú séð þetta ágæta ólympíuleika prógramm. Það hefjast engar útsendingar fyrr en upp úr 1 eða hálf 2 á nóttunni og standa svo fram til 13-14 á daginn.
    Kínverjar eru átta tímum á undan okkur og eru ekki að setja handboltaleiki á dagskrá um miðja nótt hjá sér þótt íþróttin sé vissulega jaðarsport. Það þýðir hins vegar að við fáum að vaka á undarlegustu tímum eftir handboltanum.

  10. Óli Njáll Says:

    Leikjaplanið fyrir handboltann má sjá hér, hægra megin á síðunni.

    http://www.ruv.is/ol/

Leave a Reply