Eiríks Stefánssonar-væðingin

Þegar ég villist inn á Útvarp Sögu í bílnum mínum, þá finnst mér eins og ég lendi alltaf á sama dagskrárliðnum: hugvekju frá fulltrúa Frjálslynda flokksins.

Og koma tveir menn til greina - annars vegar Jón Magnússon, sem talar yfirvegaðri röddu og flytur skipulega uppbyggðan pistil. Eins og maður er nú oft ósammála Jóni, þá er eitthvað seiðandi við röddina hans og pistlarnir eru virðast sannfærandi - amk ágætlega rökstuddir.

Hins vegar er það Eiríkur Stefánsson. Hann öskrar.

Dæmigerður pistill er eitthvað á þessa leið:

Núna sé ég það í fréttum að það er verið að safnast saman til að mótmæla (illri meðferð á flóttamönnum,/ójafnri stöðu samkynhneigðra í þjóðfélaginu/stríðinu í Írak/gróðurhúsaáhrifunum/setjið-inn-málstað-að-eigin-vali). Þarna vantar ekki silkihúfurnar. Þarna eru allir þessir vinstri-grænu-samfylkingarmenn (röddin byrjar að bresta)… Og þau segjast vera að mótmæla mann-réttinda-brotum… - (stutt þögn)

- og það er svo sem gott og blessað. Að tala um þetta… - Það getur vel verið að þetta sé ofboðslega slæmt…

en við þetta fólk hef ég bara eitt að segja: HRÆSNARAR!!! - HVERNIG GETIÐ ÞIÐ TALAÐ UM MANNRÉTTINDABROT ÞEGAR ÞIÐ ERUÐ EKKI AÐ MÓTMÆLA KVÓ-TA-KERF-INU!!! ARRRGH!

HÉR ER VERIÐ AÐ NÍÐAST Á HARÐDUGLEGUM SJÓMÖNNUM - EN ÞETTA “´FÍNA FÓLK” ER BARA AÐ TALA UM HOMMA EÐA ÚTLENDINGA.

HVAR VORUÐ ÞIÐ ÞEGAR 14 MANNS Í FRJÁLSLYNDAFLOKKNUM STÓÐU  MEÐ MÓTMÆLASKILTI GEGN KVÓTAKERFINU??? ARRRGH!!! VINSTRI-GRÆNA-SAMFYLKINGARPAKK! JÁ, PAKK- ÞVÍ HVAÐ ER ÞAÐ ANNAÐ EN PAKK SEM HUGSAR UM SAMKYNHNEIGÐA OG ÚTLENDINGA EN BERST EKKI GEGN MANNRÉTTINDABROTUM Í SÍNU EIGIN LANDI!!! HRÆSNARAR - ÚRSKURÐUR MANNRÉTTINDANEFNDAR - SVIKAMYLLA - REYKJAVÍKURVITLEYSINGAR… (erfitt að heyra orðaskil, þar sem maðurinn öskrar þetta í hljóðnemann)…

Þessi fyrirlestur hefur verið fluttur með nokkrum tilbrigðum á Útvarpi Sögu síðustu mánuðina. Ég verð reyndar alltaf jafn kátur þegar ég hlusta á hann og geri mér í hugarlund einhvern talsmann Samtakanna 78 hella sér yfir Eirík, þar sem hann stendur með skiltið “Ú á LÍÚ” á Austurvelli, með orðunum: “HVAÐ MEINARÐU MANNFÝLA - AÐ ÞÚ HAFIR EKKI MÆTT Á GAY PRIDE SÍÐAST??? OG SAMT VOGARÐU ÞÉR AÐ HAFA SKOÐUN Á FISKVEIÐISTJÓRNUNARKERFINU??? ERTU SIÐBLINDUR???”

Ef marka má hinar kúnstugu umræður um hvort sé svalara - alþýðuhetjan Bubbi eða umhverfishippinn Björk - þá virðist hins vegar röksemdafærsla Eiríks Stefánssonar vera að ganga oní ansi marga…

3 Responses to “Eiríks Stefánssonar-væðingin”

  1. Gísli Már Says:

    Ahh, Eiríkur okkar Stefánsson.
    Ég hef oft hugsað einmitt þetta sem þú skrifar er ég heyri í honum blessuðum.

    Reyndar er mér oft hugsað til hans.
    Þegar Bubbi sagði að það mætti alveg mótmæla stóriðju, en það væru aðrir hlutir sem væru mikilvægari, var mér hugsað til Eiríks.

    Bubbi hljómaði nefnilega soldið eins og Eríkur þá.

    Reyndar er fyndnast að heyra hann tala um Ingibjörgu Sólrúnu.

    Honum virðist vera einhverja hluta meira í nöp við hana en þá sem komu kvótakerfinu á, ekki það hann tali neitt voðalega vel um þá.

    Miðað við að hægt var að dæma Gauk Úlfarsson fyrir meiðyrði gegn honum þarna Herra Impregilo hugsaði ég með mér:

    “Greyið Eríkur kallinn, hann hlýtur að enda í fangelsi”

    Honum er það reyndar bæði til vorkunar og tekna að hann er að berjast á móti f**ing LÍÚ, sem virðist svo tilgangslaust að varla nokkur reynir þetta ennþá nema hann.

    Karlanginn.

  2. Kristín Says:

    Útvarp Saga… ómissandi rugl.

  3. Gísli Már Says:

    Missandi rugl. Nema fólk hallist að masókisma. Eins og ég.

Leave a Reply