Arnar og Bjarki

Það virðist frágengið að Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir taki við Skagaliðinu sem spilandi þjálfarar.

Þar með opnast möguleiki á sérstæðri atburðarás.

Segjum sem svo að FH landi Íslandsmeistaratitlinum - sem telja má líklegt. Og að Skaganum takist ekki að rétta úr kútnum - þá myndu þeir bræður afreka það að verða Íslandsmeistarar OG falla niður um deild.

Það efast ég um að öðrum hafi tekist.

2 Responses to “Arnar og Bjarki”

  1. Agnar Says:

    Maður trúir nú ekki öðru en að það hafi einhverntímann gerst að öfug skipti hafi átt sér stað - þ.e.a.s. að leikmaður úr liði sem fellur í lok leiktíðar hafi skipt yfir í lið sem verður Íslandsmeistari í lok sömu leiktíðar. Bjarni Guðjóns gæti til dæmis afrekað það - það hlýtur samt að vera að einhver hafi gert það áður.

  2. Stefán Says:

    Það er vissulega líklegra að menn hafi skipt í þá áttina. Það óvenjulega við þessa aðstöðu væri hins vegar að þeir bræður gætu fallið - en fengið medalíu sama dag til að hugga sig við.

    En ég ekki viss um að það sé mikið um svona skipti. Það er tiltölulega stutt síðan leikmannaskipti innanlands á miðju tímabili urðu svona auðveld.

Leave a Reply