Metjöfnun
Jahérna. Skaginn tapaði í kvöld með fimm marka mun. Gat ekki stillt mig um að slá því upp hvenær það gerðist síðast í deildarleik.
1976 unnu Valsmenn Skagann með þessari sömu markatölu, 6:1. Það er jafnframt metið á Skaganum.
# # # # # # # # # # # # #
Fréttin af stórglæpamanninum sem seldi Vestfirðingum málverk án tilskilinna leyfa var hádramatísk. Svo virðist sem kaupi hafi náð að brjóta hálfa tylft laga.
En hvað ætli gaurinn sem prangaði myndinni af grátandi stráknum inn á öll íslensk heimili hefði fengið margra ára fangelsi miðað við þetta?

July 20th, 2008 at 22:09
Sá kaupi má brenna í helvíti!
July 20th, 2008 at 23:01
Var það ekki Rögnvaldur Pálsson forsetaframbjóðandi og agentar hans sem seldu dreginn grátbólgna og fleiri ódauðleg listaverk?