Frjálshyggjuhommar

Justin Raimondo er einn uppáhalds pistlahöfundurinn minn á netinu. Hans sérsvið eru bandarísk utanríkismál. Hann er einhver harðasti gagnrýnandi Bush-stjórnarinnar og notast mikið við sagnfræðileg rök máli sínu til stuðnings.

Raimondo er frjálshyggjumaður og hefur t.d. um árabil verið í hópi stuðningsmanna Pat Buchanans, sem er einhver stækasti hægrimaðurinn vestan hafs.

Raimondo er hins vegar líka yfirlýstur hommi - sem verður að teljast nokkuð fágætt í herbúðum hörðustu hægrimanna BNA.

Í ljósi þessarar stöðu, er áhugavert að lesa um afstöðu Justins Raimondo til hjónabands samkynhneigðra. Hann er í - stuttu máli sagt - á móti því. Í það minnsta þegar hommar eiga í hlut, þótt hann gefi lesbíubrúðkaupum undir fótinn.

Rökstuðningurinn er óvenjulegur og sjálfur segir höfundurinn að greinin sé: “the most politically incorrect piece I’ve ever written”. Dæmið sjálf!

# # # # # # # # # # # # #

Allir góðir menn mæta svo niður að dómsmálaráðuneyti kl. 12. Þið vitið um hvað málið snýst.

2 Responses to “Frjálshyggjuhommar”

  1. Andrés Says:

    Ég skil ekki alveg húmorinn í þessari grein.

    Svo sem allt í lagi að minnast á svona menningarkima í heimi samkynhneigðra. En að það hafi eitthvað með það að gera að þeir eigi ekki að giftast. Það finnst mér skrýtið. Þessi Raimondo virkar frekar komplexaður. Nema ég sé alveg að misskilja djókið.

  2. Stefán Says:

    Ég held að það sé ekki vænleg leið til skilnings á þessari grein að leita að djóknum.

    Nú er ég ekkert sérstaklega sjóaður í hinseginfræðum - en ég reikna með að hr. Raimondo falli undir þann hóp sem skilgreini sig sem “queer” en ekki “gay”. Hann myndi þá kjósa að líta á lífsstíl sinn sem öðruvísi valkost við gagnkynhneigt kjarnafjölskyldumynstur frekar en að vilja fá smáborgaralega viðurkenningu á honum.

Leave a Reply