Asíuboltinn - II

Írakar gerðu sér lítið fyrir og unnu Kínverja í Tianjin. Þar með er ljóst að Kína vermir botnsætið í fyrsta riðli, sem hljóta að vera gríðarleg vonbrigði þar á bæ. Fyrir nokkrum árum virtist sem Kínverjum væri að takast að byggja upp karlaknattspyrnu og frambærilegt landslið, en þær vonir virðast að engu orðnar.

Ástralía og Katar mætast á eftir. Sem stendur eru bæði lið með sjö stig eins og Írak. Þarna verður spenna fram á síðustu stundu.

Í Afríkukeppninni vekur athygli að Fílabeinsströndin er undir gegn Botswana í hálfleik. Áður hafði lið þeirra gert jafntefli gegn Madagascar. Reikna með að þetta starf verði laust til umsóknar eftir helgi…

Fínir leikir í gangi í Suður-Ameríkuhlutanum í dag. Hvernig er það - hefur Sýn ekki rétt á þeim leikjum? Hvað með að fá eitthvað af þessari forkeppni í íslenskt sjónvarp!

Leave a Reply