Skrítnasta spamið
Ég fæ ókjör af ruslpósti. Nýjasta skriðan eru auglýsingar um “Blue sexy pill” - sem ég reikna með að sé einhverskonar Viagra eftirlíkingar-svindl.
En ég er líka á nokkrum íslenskum fjölútsendingarlistum, án þess að hafa hugmynd um hvers vegna. Einhverra hluta vegna fæ ég t.d. alltaf sendan póst frá Stiklum - viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins. Svo sendir Óli Palli á Rás 2 mér vikulegan pistil um hvað sé á dagskránni í Rokklandi. Ekki hef ég grænan grun um hvers vegna mér var bætt inn á þann póstlista.

June 13th, 2008 at 11:24
Grow your smurf today!
June 13th, 2008 at 13:17
Vinnupósturinn minn er líka á “Blue sexy pill” listanum. Hressandi..
June 13th, 2008 at 17:53
Af einhverjum ástæðum vilja menn nú ólmir selja mér “best authentic replicas” af öllum fjandanum.
June 14th, 2008 at 09:53
Ég segi eins og Eygló. Vinnan mín er áskrifandi að Blue sexy Pill. Sjálf er ég blessunarlega laus við þessar hvimleiðu auglýsingar í einkanetfanginu mínu.
ég fæ einnig sendan póst frá Óla Palla og hefi fengið hann lengi. Allt í góðu með það enda hlusta ég oft á þáttinn hans.
June 14th, 2008 at 11:36
Skrítnasta spamið sem ég hef fengið var 1999:
From: namreg@cyberonic.com
Date: Mon, 23 Aug 1999 01:40:56 -0400
Subject: You have been identified as a Successful African American!
The North American Registry of Who’s Who Among Successful African Americans cordially invites you for inclusion in the upcoming 1998-99 edition of our publication.
Síðan komu útskýringar á því hvar ég ætti að borga til að nafn mitt kæmist inn í þetta yfirlitsrit yfir merka ameríska blökkumenn.
Annars er þetta gott dæmi um hvernig spam virkar: þeir senda bara á alla, en þar sem þeir stela bæði allri bandvídd og allri tölvuvinnslu til verksins þá kostar þetta þá ekki neitt og koma út í gróða jafnvel þótt svarhlutfall sé einungis 0.001%.
Persónulega finnst mér að réttlátt sé sendendur ruslpósts fái jafn langan fangelsisdóm og þeir sem draga sér 50 milljónir af almannafé.