Kristilega arfleiðin

Jæja, nýju grunnskólalögin gera víst ekki sérstaklega ráð fyrir að hinni heiðnu arfleið íslenskrar menningar verði sinnt í skólakerfinu. Það er ergilegt fyrir okkur heiðingjanna - en mun jafnframt skapa einhverjum sagnfræðingum vinnu við að skera úr um hvaða hlutir menningararfleiðarinnar teljist kristnir og hverjir séu heiðnir og eigi því að sópast undir teppið.

Sömuleiðis væri gaman að fá útskýringu á því hvort til hinnar kristnu arfleiðar teljist bæði kaþólska og lútherska arfleiðin - eða hvort við höfum sagt endanlega skilið við kaþólska arfinn daginn sem við mörðum hausinn af Jóni Arasyni?

Enn mætti spyrja hvers vegna menn séu að troða merkingarlausum slagorðum inn í lagatexta?

5 Responses to “Kristilega arfleiðin”

  1. Elín Says:

    Til hvers að ergja sig ef þetta er merkingarlaust hvort eð er?

  2. Stefán Says:

    Það er sjálfsagt að amast við heimskulegum upphrópunum - óháð því hversu skaðlegar eða skaðlausar þær kunna að vera.

    Miðað við hversu mikla áherslu tilteknir þjóðfélagshópar lögðu á að ná þessari klausu í gegn þá er hún amk ekki merkingarlaus í þeirra huga.

  3. Birgir Baldursson Says:

    Þetta er ekki merkingarlaust. Við Vantrúarseggir höfum þungar áhyggjur af því að þessi klausa verði til að efla trúboð ríkiskirkjunnar í skólum, með tilheyrandi kirkjuferðum og innrætingu, allt á forsendum þessarar klausu.

  4. Toggi Says:

    Merkingarlaust í sjálfu sér, en vandinn er kannski að umboðið til að ljá orðunum merkingu er í höndum fólks sem stór hluti þjóðarinnar viðurkennir ekki sem siðferðilegt kennivald.

  5. Guðmundur Brynjólfsson Says:

    Auðlindirnar eru líka sameign þjóðarinnar samkvæmt lagabókstafnum. Er ekki rétt að fella það út? - enda er það rakalaust, marklaust kjaftæði.
    Svo er líka eitthvað talað um þrígreiningu valdsins, löggjafa, framkvæmda og dóms… ekki er það nú beint að virka. Er ekki rétt að stroka það út líka? Mér finnst m.ö.o., líka, í lagi að amast við heimskulegum upphrópunum.

Leave a Reply