Magnað
Í gær luku Íslendingar keppni í Evróvisíon með 64 stig.
37 þessara stiga - eða rúmlega 57% - komu frá hinum Norðurlöndunum fjórum. Það er svívirðilega hátt hlutfall.
Þau 43% sem útaf standa komu frá hinum 37 löndunum…
Og samt tekst fólki að komast að þeirri niðurstöðu að við séum FÓRNARLÖMB þeirrar tilhneigingar að lönd kjósi nágranna sína!!!!!
Hvernig getur staðið á því að sönglagakeppni í sjónvarpi verður þess valdandi að einu sinni á ári glatar heil þjóð öllum hæfileikum til tölfræðilegrar hugsunar?

May 25th, 2008 at 17:44
Hvaðan komu svo hin 43%? Frá Bretlandi, Portúgal, Spáni, Lettlandi, Möltu og Israel. Einungis 2 stig komu frá gömlu austurblokkinni og þá frá Lettlandi. Segir þetta ekkert um menningarmuninn?
May 25th, 2008 at 20:55
mismunandi tónlistarsmekk?
May 25th, 2008 at 23:19
Tölfræðin segir okkur að við eigum of fáa nágranna.
May 26th, 2008 at 00:52
Mér finnst eiginlega meira afrek að íslenski þulurinn náði að tala svona niður einn besta árangur Íslands í keppninni með því að vera í stanslausri fýlu á meðan hann lýsti atkvæðagreiðslunni.
Tölfræðilega séð er hin mikla hylli sem framlag Þjóðverja naut í Búlgaríu og hvergi annars staðar auðvitað athyglisverðust.
May 26th, 2008 at 07:49
Það var raunar einn Búlgari í þýska söngflokknum…
May 26th, 2008 at 09:21
Ég held að þessi þjóð hafi aldrei haft neina hæfileika til tölfræðilegrar hugsunar. Þannig að hún hefur engu tapað - nema enn einni sögnvakeppninni.
May 26th, 2008 at 09:21
Nokkrir punktar sem standa upp úr að mínu mati og má ekki gleyma:
RÚV náði að gera sér rosalega mikinn dagskrárgerðarmat úr Eurovision í þetta skiptið - í allan vetur.
Nýir flytjendur hafa nýtt tækifærin sem þetta færði þeim: Haffi Haff og Mercedes Club eru dæmi.
Lokakeppnin er orðin skemmtileg hefð á Íslandi með Eurovision partíum út um allan bæ.
Árangur Lordi um árið og jafnvel Noregs í ár sýnir að þrátt fyrir frændrækni allra þjóða þá eiga allir möguleika á sigri.
Reyndar gæti ég ekki raulað línu úr rússneska laginu til að bjarga lífi mínu en það er önnur saga.
May 26th, 2008 at 10:38
Ég held að vandamálið liggi í því að allir þeir sem eiga síma geta kosið oftar en einu sinni. Þannig kjósa allir uppáhaldslagið sitt og eyða síðan afgangnum af atkvæðum sínum í frændþjóðir. Ef það væri bara eitt atkvæði á hvert símanúmer myndi fólk íhuga betur hvaða lagi það greiðir atkvæði sitt. Þá drægi (amk eitthvað) úr frændsemis atkvæðunum. Held samt að Kýpverjar gæfu aldrei öðrum en Grikkjum 12 stig.
May 26th, 2008 at 10:40
Ef fólk hefur á annað borð eldlegan áhuga á að bæta árangur Íslands í Júróvisjón er lausnin augljós.
Það þarf að vinna að því að að minnsta kosti Færeyjar, Álandseyjar og Grænland taki þátt í keppninni og fái þar með atkvæðisrétt. Næsta skref væri svo að Samar fengju þátttökurétt, helst í þremur liðum, einn finnskur Sami, einn norskur og einn sænskur (látum rússnesku Samana liggja á milli hluta).
Þegar þetta væri komið í hús mætti síðan berjast fyrir þátttökurétti Borgundarhólmara, Gotlendinga, Vestmanneyinga, Tornedalsfinna og annarra minnihlutahópa. Auk þess er náttúrulega skandall að finnlandssvíar skulu ekki hafa sjálfstæðan þátttökurétt, þeir eru jafnmargir og Íslendingar.
Þekkja lesendur þessarar síðu nokkuð duglegan baráttumann með tilhneigingu til nördalegra áhugamála og sérstakan áhuga á örríkjum sem væri til í að starta fjöldahreyfingu?
May 26th, 2008 at 10:42
Já - líklega er þetta raunhæfari og fljótvirkari leið en að semja bara betri lög…
May 26th, 2008 at 20:38
Baggalútur birti ágæta frétt um fjölgun Norðurlandaríkja strax eftir keppnina.
http://baggalutur.is/index.php?id=4190