Grikklandsárið

Jahá, það er bara að verða liðin fjögur ár frá síðasta Evrópumóti í fótbolta. Þá átti ég í standandi vandræðum með að velja mér lið - fór svo í ferðalag til Skotlands dagana á undan og spáði eiginlega ekkert í þessu meir. Við vorum stödd í Glasgow daginn sem opnunarleikurinn fór fram. Steinunn var þreytt og lagði sig á hótelinu meðan ég rölti á næsta pöbb.

Þegar svona tíu mínútur voru liðnar af þessum fyrsta leik, milli Portúgala og Grikkja, sá ég að ekki mátti bíða lengur með ákvörðunina. Ég valdi Grikki og fylgdi þeim til loka.

Mínir menn brugðust mér ekki 2004 og ekki ætla ég að svíkja þá núna. Grikkland mun koma öllum á óvart og verja titilinn! Sá hlær best sem síðast hlær.

# # # # # # # # # # # # #

Fyrir viku sleit einn í þriðjudagsboltanum hásin. Að þessu sinni fóru tveir á slysó til að láta sauma skurði eftir að hafa skallað hraustlega saman hausunum. Miðaldrabolti er háskaleg íþrótt.

# # # # # # # # # # # # #

Sjónvarpið bjó til mikla frétt úr því í kvöld að Jón Sigurðsson hefði skrifað grein um ESB. Er til áhrifaminni stjórnmálamaður en Jón Sigurðsson?

Ég býst fastlega við því að fyrsta frétt á morgun verði hvað Ásgeir Hannes Eiríkissyni finnist um málið.

# # # # # # # # # # # # #

Verð í útvarpinu kl. 8:15 á morgun að tala um Fram í tengslum við 100 ára afmælið. Svo er veisla annað kvöld. Vonandi fáum við flottari afmælisgjafir en á fimmtíu ára afmælinu…

# # # # # # # # # # # # #

Andinn í glasinu er Bruichladdich 7 ára, sem hefur undirtitilinn “Waves”. Þetta er eitt besta stöffið í Ríkinu um þessar mundir (amk. Kringlan og Heiðrún). Skyldukaup fyrir þá sem eru hrifnir af Islay-viskýi.

5 Responses to “Grikklandsárið”

  1. pallih Says:

    Kannski verður fyrsta frétt um 100 ára afmælið - það yrði í takti við hitt…

  2. Stefán Bogi Sveinsson Says:

    Þetta var ófyrirgefanlega ósmekkleg samlíking milli tveggja manna!!! Skammstu þín, skammastu þín, skammastu þín!!!

  3. Elías Halldór Says:

    Ég held að Ásgeiri Hannesi sé sama …

  4. Jón Árni Says:

    Ég hélt með Grikkjum frá fyrsta degi 2004 og mun að sjálfsögðu gera það aftur.

  5. Monsa Says:

    Er engin færsla til frá þér sem sýnir að þú hafir haldið með Grikkjum 2004?
    Svona svo einhver trúi því…

Leave a Reply