Ærsladraugur á þjóðveginum
Laugardagur kl. 15:00 - Leiðrétting! Færð hafa verið fyrir því gild rök að greinin sem vísað er til hér að neðan sé ekki um Sturlu heldur alnafna hans. Biðst afsökunar á ruglingnum.
Sturla Jónsson hefur verið mikið í fréttum upp á síðkastið. Færri vita að hann er áhugamaður um yfirskilvitleg fyrirbæri og hefur orðið fyrir árásum ærsladrauga eins og lesa má um hér.
Í viðtalinu er lýst sérstæðu atviki sem Sturla hefur lent í við akstur:
Eitt sinn þegar ég var að keyra bíl féll á mig eins konar stjarfi og ég gat mig hvergi hreyft. Skyndilega sveiflaðist ég út úr líkamanum, aftur í bílinn og síðan út undir beran himininn. Bíllinn varð náttúrlega stjórnlaus og fór á næsta bíl. Úr þessu varð síðan fjögurra bíla árekstur. Þú getur rétt ímyndað þér hvernig mér leið þegar lögreglan kom á vettvang og vildi fá skýringu á þessu atviki.
* * *
Viðbót, kl. 14:00 - Mér skilst að Sturla Jónsson þræti fyrir viðtalið sem ég tengi á hér að ofan.

April 25th, 2008 at 13:46
Veistu, ef ég tryði á ærsladrauga þá myndi ég vera fremstur í röðinni til að láta svipta þennan mann ökuskírteininu.
April 25th, 2008 at 14:24
Þetta er ríkisstjórnin!
April 25th, 2008 at 14:29
ÉG sé að þú lætur drjúpa af þér stéttafyrirlitninguna, eins og hún Jóhanna í Kastljósinu.
(http://hvalveidarfyrirbyrjendur.blogspot.com/2008/04/stttabartta.html)
April 25th, 2008 at 14:55
Getur verið að þessi Sturla sé haldinn lygaáráttu? Eftir að trukkarinn réðst á og nefbraut löggu í gær sór Sturla það af sér að vita nokkuð hver þessi maður er, en byrjaði síðan í næstu málsgrein að úttala sig um hnémeiðsli sem hann hafi átt í.
Sennilega er þetta ærsladrauga- og yfirskilvitleikablaður í manninum tómar lygar sem hann beitir til að gera sjálfan sig merkilegan í augum annarra. Þannig er það oft um fólk sem hefur lágt greindarstig og lifir innihaldslausu og innantómu lífi. Ég hygg að flestir ef ekki allir miðlar séu undir sömu sök seldir.
Nú kemur gamla draugablaðrið í bakið á manninum og þá þarf að sverja það af sér.
April 25th, 2008 at 15:41
Ég nenni hvorki né hef tíma til að lesa þessa ærsladraugagrein.
Það sem ég var að pæla er hvort það sé ekki mögulegt að þetta sé alnafni Stulla bílstjóra?
Það eru einir sex einstaklingar sem bera þetta nafn og þrír til viðbótar með millinafn skv. nokkurra ára gamalli þjóðskrá í tölvunni minni.
Sturla talsmaður heitir Sturla Hólm Jónsson og er fæddur 1966. Það eru í það minnsta þrír með sama nafn fæddir ´63-´65.
Bara pæling samt…
April 25th, 2008 at 17:07
Andri Valur:
Það er séns en þá eru þeir fjarska líkir hann og nafninn sem fjallað er um í greininni, en í henni eru tvær myndir af manninum.
April 25th, 2008 at 19:38
Mér finnast þessar myndir í viðtalinu ekki líkjast vörubíla-Stulla mikið.
April 25th, 2008 at 20:01
þetta eru gamlar myndir augljóslega. sést á tískunni og hárinu. ekkert mál að hugsa sér þennan mann eldri og sjá þar sturlu.
En það rýrir þó gildi þessa viðtals þegar maður klikkar á “um höfund” síðunnar og þá kemur eitthvað óútskýrt bull.
April 25th, 2008 at 20:02
Veðurþurs: Já er það? Eru myndirnar líkar? Ég viðurkenni að ég er ekki góður í andlitum á myndum. Alls ekki. En að því gefnu að þessi grein hafi verið skrifuð árið 2002 (Sturla talsmaður fæddur 1966 - Sturla í grein 36 ára = nóv. 2002. Sem gerir u.þ.b. 5,5 ár) þá myndi ég segja að hann væri búinn að keyra andskoti mikið síðan þessar myndir voru teknar!
Þekki manninn ekki vitund og veit ekkert um þetta mál þannig séð. Finnst þetta samt á mörkunum til að passa. Hvað segir sagnfræðingurinn?
April 25th, 2008 at 21:23
Tja, mér finnst mennirnir líkir í útliti.
En sem fyrr segir þá þrætir Sturla fyrir viðtalið. Það segir okkur að ef það er rétt - sem við höfum ekki ástæðu til að rengja - þá á hann alnafna á svipuðu reki eða viðtalið er uppspuni.
April 26th, 2008 at 13:23
Þetta er annar Sturla - ef farið er inn í source-ið á viðtalinu sést að það birtist í Vikunni 1987, sem þýðir að 36 ára viðmælandinn er fæddur 1951, sem passar ekki við Bílstjóra-Sturlu en passar hins vegar við aðra Sturlu í þjóðskrá.
April 26th, 2008 at 13:43
Mér er stórum létt að heyra það.
April 26th, 2008 at 20:04
Gott að heyra. Mig hryllti við tilhugsunina um að þessar myndir hefðu verið teknar fyrir 5 árum síðan:)