Flot
Loksins, loksins! Ég er farinn að sjá fram á að losna undan steypurykinu hér á Minjasafninu eftir að gólfið í nýja andyrinu/tengibyggingunni var flotað í gær. Þetta er stór áfangi.
Þegar ráðist var í verkið gleymdist hins vegar starfsmaður Minjasafnsins niðri í kjallara og honum var nokkuð brugðið þegar hann ætlaði að fara heim til sín í lok vinnudags og gekk fram á nýflotað gólf.
Um síðir tókst honum að klöngrast upp lyftustokk við illan leik. Hver segir svo að líf safnvarðarins sé háskalaust?

April 23rd, 2008 at 20:53
Starfsmaður minjasafnsins var heppinn að vera ekki múraður inni þar sem hann var við vinnu sína niðri í kjallara