Af hverju að skammast í Gore?

Það er vinsælt um þessar mundir að hjóla í Al Gore og “rétttrúnaðinn” í tengslum við kenningarnar um hlýnun Jarðar. Af þeirri umræðu mætti ætla að við værum Bandaríkjamenn en ekki Evrópubúar.

Nú er það vissulega staðreynd að Al Gore gerði heimildarmynd sem hafði mikil áhrif í Bandaríkjunum og sem varð til að sannfæra margt fólk þar í landi um gróðurhúsaáhrifin. Það er líka rétt að í myndinni notar hann ýmis trix sem þekkt eru úr myndum með áróðursgildi. - Ef ég væri Bandaríkjamaður sem efaðist um að hlýnun Jarðar sé af mannavöldum, þá þætti mér Al Gore örugglega hinn versti maður.

En Ísland er í Evrópu. Og í þessari heimsálfu var hugmyndin um gróðurhúsaáhrifin almennt viðtekin löngu áður en Al Gore byrjaði á myndinni sinni. Hinn “Óþægilegi sannleikur” Gores var ekkert óþægilegur hérna megin Atlantsála, heldur endurtekning á atriðum sem þá þegar mátti lesa um í kennslubókum barnaskóla. Í Evrópu hafði myndin því fyrst og fremst þau áhrif að staðfesta það sem fólk taldi sig vita fyrir.

Þess vegna á ég ákaflega bágt með að skilja hvers vegna íslenskir bloggarar geta komist að þeirri niðurstöðu að meintur “rétttrúnaður” varðandi hlýnun Jarðar sé búlduleita fv. varaforsetanum að kenna.

# # # # # # # # # # # # #

Ármann nær góðu en meinlegu skoti á Ragnhildi Vigfúsdóttur í dag.

5 Responses to “Af hverju að skammast í Gore?”

  1. barði Says:

    ég man mest eftir súru regni í mínum námsbókum í barnaskóla.

    Eru allir búnir að missa áhugann á því ?

    Auk þess að öruggusta upplýsingaveita allra tíma (bakhliðin á Andrés-Önd)
    sagði manni að um aldamótin skrýddust menn geimbúningum í Ástralíu og á Íslandi yrði meginlandsloftslag.

    En hvað segiru Stefán hvar stendur þú í þessu ?

    Allt að fara til fjandans eða ?

  2. Stefán Says:

    Er það ekki lögmál? Það er alltaf allt að fara til fjandans, brennivínið að hækka og börnin að verða frakkari?

  3. barði Says:

    þess vegna verður að fara ca. fjórum sinnum á ári til útlanda og smygla tveimur auka viskýflöskum í hvert skipti með heim.

    Annars þyrfti maður að byrja í contalgíninu -

  4. anna Says:

    Mig langar til að óska Stefáni til hamingju með daginn.

    Annars held ég að jörðin sé ekkert að fara til fjandans, bara mannkynið. Svo man ég ekki til þess að hafa hallmælt Al Gore enda er ég mikill aðdáandi Michels Moore

  5. hildigunnur Says:

    barði, súra regnið er að mestu úr sögunni, það nefnilega tókst að hreinsa það til, ef ég man rétt með betri hreinsunum á útblæstri frá kolaorkuverum. Skógarnir uxu aftur.

    Og mikið langaði mig til að geta kommentað á færslu Ármanns í dag. Þvílíkt rugl sem þessi grein var!

Leave a Reply