Hvað ætli sé metið?

Ég er að spekúlera - hvað ætli sé metið hjá krötum í að láta ráða sig í mörg störf út á flokksskírteinið á einu ári?

…og hvað er Guðmundur Steingrímsson mörgum ráðningum frá því að slá það?

6 Responses to “Hvað ætli sé metið?”

  1. Hrafn Says:

    Kratarnir toppa seint Atvinnumiðlun Framsóknarflokksins.

    Annað;
    Það heyrist ekki múkk í Steingrími J. fjallgöngugarpa varðandi eftirlaunafrumvarpið fræga til handa sjálfum sér. En það var jú “lýðræðisleg sanngirniskrafa” að hann fengi töluverða launahækkun. Nú var Atli Gísla að ráða Heiðu í Unun sem sinn aðstoðarmann, en líklega hefur flokkskírteini ekkert að segja með þá ráðningu.

  2. pallih Says:

    Til Hrafns - þér finnst kannski að hann hefði frekar átt að ráða Hannes Hólmstein?

  3. Dagbjört Says:

    pallih: Bíddu hægur - er þetta málefnalegur samanburður? Er ekki millivegur hér? Ætli fólk að fara að gagnrýna ráðningar aðstoðarmanna á þessum grundvelli þá er VG hæg heimatökin með að auglýsa aðstoðarmannastörf opinberlega, eða hvað?

    Ég veit ekki betur en að ráðning Guðmundar Steingrímssonar sem aðstoðarmaður borgarstjóra hafi verið eins eðlileg og hugsast getur, og það þarf ekki að rekja það frekar. Núverandi starf hans byggist á tímabundnum afleysingum vegna veikindaleyfis.

    Hrikalegt, alveg.

  4. S.Wonder Says:

    Það er alltaf dálítið vandræðalegt þegar góðar sálir hrekjast eins og reköld milli tímabundinna starfa á vegum flokkanna. Kallar fram blessaðan aulahrollinn. Virkar stundum eins og menn hafi misst alla döngun til að finna sér annað viðværi en að vera jórturdýr við jötu pólitískra hagsmuna… Synd og skömm. Eða hafið þið lesið margar greinar upp á síðkastið þar sem einkaþotusnatt forréttindafólks, sem hvílir þar afturenda í tvíbreiðum og leðurklæddum Letidrengjum, er látið hljóma eins og þægindasnauðir harðangursleiðangrar milli útjálka í ofviðrahrjáðum tveggja sæta rellum?

    Geir Haarde á afmæli í dag, 8. apríl. Líka Izzy Stradlin. Og Búdda. Það er ekki leiðum að líkjast, háæruverðugur hátæknihugveitusíðuhaldari.

  5. ÆRB Says:

    Ráðningar aðstoðarmanna, hvort heldur er ráðherra eða þingmanna, eru pólitískar ráðningar og heyra ekki undir starfsmannalög. Þessar ráðningar eru því ekki háðar auglýsingu og þurfa ekki að vera málefnalegar. Þvert á móti er almennt gengið út frá því að aðstoðarmenn komi úr sama flokki og sá sem þeir aðstoða.

    Það er til þess fallið að grafa undan málflutningi þeirra sem setja út á ómálefnalegar ráðningar í þær stöður er heyra undir starfsmannalög að ekki sé gert upp á milli þessara tegunda stöðuveitinga í almennri umræðu.

  6. S.Wonder Says:

    Hvaða yfirklórsröfl er þetta í ykkur, Samfólúðar? Gummi er æði. En hann skoppar milli flokksdjobba eins og borðtenniskúla. Allir vita að það er löglegt, ekkert sérstaklega siðlaust og afskaplega hefðbundið fyrir þessa veröld, sem hann lifir og hrærist í. En þetta skopperí er ekki kúl. Og um að gera að stríða honum á plebbaskapnum.

Leave a Reply