Lifi Grimsby!
Í dag fer fram úrslitaleikurinn í sendibílabikarkeppni neðri deildar liða í Englandi.
Grimsby mætir Milton Keynes Dons. Það er ekki erfitt að taka afstöðu í þessum leik.
Í fyrsta lagi heldur Bryndís vinkona mín með Grimsby.
Og í öðru lagi er Milton Keynes Dons fyrirlitlegur klúbbur, sem hvergi skyldi þrífast.

March 30th, 2008 at 12:20
Andúð Stefáns á MKD hlýtur að stafa af nafni þess sem í senn minnir á Milton Friedman, John Maynard Keynes og mafíuna. Hefði félagið heitið Krugman Glabraith Comrades en verið að öðru leyti alveg eins er engin spurning að Stefán hefði tekið ástfóstur við liðið og jafnvel aldrei stigið í vænginn við Luton Town (Fjölni eða Aftureldingu þeirra enskra). Að minnsta kosti tekið það fram yfir slorplebbana og þorskastíðsæsingamannanna í Grímsbæ sem friðarformaðurinn hefur nú tekið afstöðu með.
Bévítans bull er þetta í mér. Fínt blogg, Stefán.
March 30th, 2008 at 12:57
Ertu ekki annars að tala um hið áður ágæta lið Wimbledon?
Ég ætla samt að halda með liðunum mínum áfram sem hingað til, þ.e. Halifaxhreppi í kvenfélagsdeildinni og United of Manchester í áttundu deild í þeirri veiku von að þeir komist upp í sjöundu deild í vor.
March 30th, 2008 at 12:57
„Og í öðru lagi er Milton Keynes Dons fyrirlitlegur klúbbur, sem hvergi skyldi þrífast.“
…Nema kannski í Milton Keynes, sem maður óskar vitaskuld engum.