El Grillo
Seyðisfjarðarbjórinn El Grillo bragðast bara ágætlega. Ekkert dúndur, en betri en nánast allt það sem Ölgerðin Egill Skallagrímsson framleiðir.
Tengdapabbi, sem kaupir gjarnan Kalda - einkum ef hann á von á mér í heimsókn - myndi kunna vel að meta þennan bjór. Og ekki spillir Austfjarðatengingin.
Spurning hvort Nobbararnir séu hættir að drekka Prins Christian og komnir yfir í þetta í staðinn?

February 28th, 2008 at 08:35
Ef ég man rétt er El Grillo bruggaður hjá Ölgerðinni.
Fínn bjór, engu að síður.
February 28th, 2008 at 13:03
Já, Ölgerðin sér um að brugga El Grillo eftir uppskrift Eyþórs.
February 28th, 2008 at 13:12
Er það semsagt vodki í pilsner?
February 29th, 2008 at 11:15
Kláravín.
February 29th, 2008 at 14:22
Það er illa farið með þetta orð, því eitt sinn þýddi það eitthvað vín af frönskum uppruna, ef til vill claret?