Afkomuviðvörun?

Í ljósi dómsins í blogg-meiðyrðamáli Ómars R. Valdimarssonar ætti ég kannski að láta athuga lánstraustið hjá bankanum mínum. Ómar var nefnilega gerður að umræðuefni á þessari síðu fyrir alllöngu - og dróst raunar sjálfur inn í þá umræðu.

Það gætu legið einhverjir þúsundkallar í þessu…

# # # # # # # # # # # # #

Luton færðist skrefi nær falli niður í neðstu deild í dag. Liðið er sundurtætt og á sér ekki viðreisnarvon.

Samt er þetta gleðidagur því stuðningsmannahópurinn hefur tekið við stjórn félagsins (þó það sé enn í greiðslustöðvun). Væntanlega tekst að koma liðinu úr greiðslustöðvun fyrir lok tímabilsins. Hvort að við þurfum að byrja tímabilið í gömlu fjórðu deildinni með stigafrádrátt verður að koma í ljós - en það er líklegt.

Aðalmálið er að komast á botninn, til að félagið hætti amk að sökkva og við náum viðspyrnu.

# # # # # # # # # # # # #

Steinunn lagði fram lagafrumvarp í dag - og þau raunar tvö. Það er stór áfangi og gleðilegur.

# # # # # # # # # # # # #

Í tímahraki ákváðum við að borða kvöldmatinn á skyndibitastað í Skeifunni - þetta er erlend keðja með ítalskt nafn sem segist bjóða upp á ferska ítalska matreiðslu.

Þetta reyndist það daprasta sem ég hef séð á veitingastað.Diskarnir úr pappa, glösin úr pappa, hnífapörin úr plasti og maturinn líka. Ég gef þessari keðju hálft ár.

9 Responses to “Afkomuviðvörun?”

  1. Halli Says:

    Mér þykir þú fullur bjartsýni hvað Sbarro varðar.

    Það er full ástæða fyrir ítalskan skyndibita í Rvk, bara ekki Sbarro.

    (Nú er best að hætta áður en ummælin verða kærð.)

  2. Stefán Says:

    Æ, maður lætur platast af svona auglýsingaherferðum - en þó aldrei nema einu sinni fyrir hvern stað…

    En það er náttúrlega koss dauðans að opna stað í þessu húsnæði. Var ekki Little Ceasars þarna undir rest? Er sú keðja ekki búin að pakka endanlega saman?

  3. hildigunnur Says:

    takk fyrir aðvörunina, best að villast ekki þarna inn…

  4. Arngrímur Says:

    Ég hef aldrei farið þarna, af þeirri ástæðu einni að þau vita ekki hvernig ítalski fáninn snýr.

  5. Elías Halldór Says:

    Ég held ég verði nú að prófa. Ég efast um að ég deyji af því. Át er sögu ríkara.

  6. Tóró Says:

    Tek undir ummælin um plaststaðinn í Skeifunni. Álpaðist þangað inn í vetur og slarfaði í mig bragðlausu lasagne - verður ekki endurtekið í bráð.

  7. Egill Óskarsson Says:

    Staður sem segist býður upp á tveggja tommu þykkar pizzur sem ‘ítalskan skyndibita’ getur varla átt mikla framtíð fyrir sér. Hvað þá þegar þær bragðast eins og þær hafi verið bakaðar úr trölladeigi og trélími.

  8. Óli Gneisti Says:

    Ég fór þarna í fyrra, Kringlunni reyndar. Pantaði spaghetti bolognese. Það er ekki flókinn réttur. Þetta var salt að ég gat bara ekki borðað nema örfáa bita. Viðbjóður.

  9. Elías Halldór Says:

    Tjah, ég veit ekki hversu einfaldur réttur það er. Fínsaxað nautakjöt af þremur eða fjórum mismunandi stöðum af nautinu sem er steikt í soffritto með pancetta í klukkutíma og síðan soðið með tómötum í nokkra tíma til viðbótar og kryddað á alveg sérstakan hátt á meðan. Ítalskar húsmæður eru vanar að vakna klukkan sex á sunnudagsmorgnum til að byrja að sjóða sósuna (sem kallast ragù) sem verður með spaghettiinu í hádegismatnum, oft um eitt-leytið eða jafnvel síðar um daginn.

Leave a Reply