Strategía

Formaður félags kráareigenda segir félagið fagna því að reykherberginu í Alþingishúsinu verði lokað. Samt er félagið hans að berjast fyrir því að fá að halda úti reykherbergjum. - Ef það væri einhver glóra í veitingamönnum ættu þeir væntanlega að harma ákvörðunina og votta reykingarfólki í röðum þingmanna og starfsfólks þingsins samúð sína.

Félag kráareigenda var sem sagt að missa sitt helsta áróðursvopn og forysta félagsins fagnar?  Eitthvað þurfa menn að endurskoða strategíuna á þeim bænum.

2 Responses to “Strategía”

  1. Jóhannes Þ. Says:

    Þessi rekingaréttindabarátta veitingamanna hefur öll verið hin furðulegasta. Það er eins og þeir geri alltaf öfugt við það sem kemur þeim vel.

  2. Stefán Says:

    Í forsvari fyrir þetta félag veitingamanna eru einmitt tveir af skörputu hugum Íslands, þeir Baddi Rugl og Brunabíla-Ragnar. Já, þetta kemur virkilega á óvart.

Leave a Reply