Æfingar

Steinunn beindi áðan óundirbúinni fyrirspurn til utanríkisráðherra, varðandi fregnir af því að danskar herþotur hefðu ítrekað á undanförnum árum brotið flugumferðaröryggisreglur og farið of nærri farþegavélum. Hún spurði ráðherra hvort þessar fregnir yllu ráðherra ekki áhyggjum í ljósi þeirrar stefnu stjórnvalda að bjóða hingað herþotum frá Danmörku og öðrum NATO-ríkjum.

Svör utanríkisráðherra voru á þá leið að þótt auðvitað væri það alltaf alvarlegt mál þegar flugvélar færi of nálægt hver annarri, væri ekki ástæða til að hafa miklar áhyggjur - því að þegar dönsku F-16 þoturnar kæmu hingað til lands þá væru þær að taka þátt í æfingum og þá pössuðu menn sig sérstaklega vel.

Aha!

Það hefði mátt segja áhöfninni á rússneska kafbátnum Kursk frá því að þeir væru ekki í neinni hættu, enda á heræfingu - og þar vanda menn sig svo vel að engin hætta er á slysum.

Án þess að hafa nein sérstök gögn til að styðja þá skoðun mína, þá reikna ég með að meirihluti slysa tengdum herjum á friðartímum eigi sér einmitt stað á æfingum. Þar er verið að prófa nýjar aðstæður, sem eru frábrugðnar gömlu rútínunni.

Ekki þar fyrir að mér fannst utanríkisráðherra ekki einu sinni trúa sjálf á þennan málflutning sinn…

2 Responses to “Æfingar”

  1. Haukur Says:

    Já, danskar þotur brotlenda aldrei.

  2. Haukur Says:

    Sænsk hönnun

Leave a Reply