Með koltjöru í fötu…
Þegar ég var á fyrsta og öðru ári í gaggó, reyndi ég að máta mig í listaspíruhlutverkinu. Eitthvað bögglaðist maður við að skrifa af ljóðum og lesa framúrstefnulegar ljóðabækur eftir skuggalega náunga, sem voru súrrealistar og ortu blóði drifin kvæði.
Ég lét nokkrum sinnum draga mig á kvikmyndasýningar í Mír. - Og einu sinni vann ég peningaverðlaun við fjórða mann fyrir myndverk/gjörning á einhverri menningarhátíð unga fólksins. Verkið reyndi helst á þeffæri áhorfenda.
Á síðasta ári í Hagaskólanum datt gjörsamlega botninn úr þessum listamannsgrillum mínum. Ég lagði allt þetta dund á hilluna og breytti lestrarvenjum mínum allverulega. Það ár var ég reyndar farinn að umgangast talsvert strákaklíku sem var árinu yngri og innihélt Palla Hilmars, Úlf Eldjárn, Ragga Kjartans, Þorlák Einarsson o.fl. - Þeir voru á bólakafi í listamannagírnum, en mér tókst að leiða það hjá mér og talaði bara við þá um pólitík í staðinn.
Það er líklega vegna þess hvað ég losnaði snemma við listamannabakteríuna að mér er fyrirmunað að skilja boðskapinn hjá anarkistahópnum sem málaði með svörtu yfir listasýningu í Þjóðarbókhlöðunni og sem sagt var frá í tíufréttum í kvöld
Verkið sem um ræðir (og er víst hluti af MA-verkefni) hljómaði reyndar ansi mikið eins og samkvæmisleikur á einhverju hópeflisnámskeiðinu - þar sem gestir og gangandi áttu að skrifa eitthvað frá eigin brjósti um brottför hersins. Þetta heitir víst að koma af stað “hugflæði”…
Nema hvað - að mati anarkistanna er fólk upp til hópa fáráðar sem skilja ekki raunverulegar ástæður stríðs og þess vegna er þarf að hertaka listaverkið og mála það svart til að sýna fram á hræsnins. Það var einhvern veginn svona…
Sanleiksflytjendurnir með koltjöruna birta svo mynd af sér við málningarstörfin - en hylja andlitin.
Ég á óskaplega bágt með að sjá snilldina í þessu. Hver er broddurinn? Hvað var það við útskriftarverkefni fjölmiðlanema í Háskólanum sem kallaði á þessi viðbrögð? Hvert er rökrétt næsta skref á eftir þessu? Að mála næsta strætóskýli svart til að afhjúpa hræsni og blindu einkabílismans? Hvað veit ég…
Æi, þetta er bara eitthvað svo aumt.
(Viðbót kl. 8:55 - málningarteymið mun víst hafa ákveðið að koma fram undir nafni og hefur birt ljósmyndirnar aftur án þess að fela andlitin. Sé þó ekki að það breyti afstöðu minni til málsins í neinum meginatriðum.)

January 31st, 2008 at 10:36
Ég verð nú að játa að mér fannst þetta nokkuð fyndið. Það er auk þess búið að mála heilmikið yfir svarta flötinn núna, þannig að sjóið gengur ennþá.
January 31st, 2008 at 10:45
Æ var þetta ekki bara ágætt? Fjöldi fólks hefur í það minnsta kynnt sér rökstuðning þeirra, sem aldrei hefði orðið ef þeir hefðu bara málað eina setningu. Og varla er hægt að kvarta yfir því að einhver máli á striga sem sérstaklega er hvatt til þess að málað sé á?
Mér finnst flest benda til að borgaralegur, miðaldra millistjórnandinn hafi afneitað öfgum æskunna.
January 31st, 2008 at 10:57
Ég verð að viðurkenna að ég skil ekki lógíkina á bak við þennan gjörning. Ungu róttæklingarnir segjast vera að mótmæla ólýðræðislegum vinnubrögðum og skorti á umræðu - og gera það með því að eyðileggja verk sem (þrátt fyrir allar sínar takmarkanir) gefur sig út fyrir að vera vettvangur fyrir slíka umræðu.
Mér finnst það dálítið eins og að brenna bækur til að mótmæla ritskoðun.
Hefði ekki verið skömminni skárra að beina þá amk spjótum sínum að fulltrúum valdsins - opinberum stofnunum? Það hefði þó verið meiri broddur í að mála yfir sýningarspjöld í Þjóðmenningarhúsinu en að ráðast gegn skólaverkefni einhvers háskólanema… (Án þess að ég sé sérstaklega að hvetja til þess að farið verði með penslana í Þjóðmenningarhúsið.)
January 31st, 2008 at 11:17
Tja… svona skýra þau það sjálf.
“Á sama hátt og fólk afneitar eðli og ástæðu stríðs þá þöggum við niður í skoðunum landa okkar. Við hlustum ekki og beitum valdamisnotkun til að sýna afleiðingar hennar.
Við málum allt svart, svart fyrir lygar, valdníðslu, græðgi og þvinganir.”
Ég held að einmitt það að við séum að ræða þetta bendi til að þau hafi velið réttan vettvang. Hvatt er til að fólk tjái sig á strigana. Þau tjá sig á strigana með því að “beita valdamisnotkun til að sýna afleiðingar hennar.”
Hvað sem manni finnst um boðskapinn og aðferðirnar þá finnst mér allavega ekki hægt að afgreiða þetta sem eitthvað aumt eins og þú gerir.
January 31st, 2008 at 19:36
Átti ekki að mála á strigann? Mátti bara mála það sem þóknaðist listakonunni?
January 31st, 2008 at 19:56
Ég vona bara að einhver vilji kaupa þessa list. Svo þau þurfi ekki að vera á bótum allt sitt líf.
February 1st, 2008 at 08:40
Hvað sem þið gerið, passið ykkur á að kalla þessa krakka ekki skríl eða skemmdarvarga.
Það er bara að nýta rétt sinn til þess að tjá sig opinberlega. Enginn hefur viljað hlusta á það hingað til, og því var nauðsynlegt að grípa til þess að ’skemma smá’.
Eða, eins og Davíð segir, kannski hafa þau bara svona lélegan smekk og svartar hugsanir. Það voru engar reglur! Þá má allt!