Mótmælafrí

Kjartan Magnússon er æfur yfir að einhver menntaskólakennari hafi gefið nemendunum sínum mótmælafrí. Þar er langt seilst í leit að sökudólgi.

Hitt er auðvitað annað mál að það er kjánalegt að kennaragreyið hafi gert þessi mistök. Ég minnist þess þegar við Sverrir Jakobsson vorum að kenna kúrs í vísinda- og tæknisögunni við sagnfræðiskor fyrir nokkrum misserum að Stúdentaráð var að standa fyrir einhverjum aðgerðum á Austurvelli til að heimta meiri peninga í Háskólann. Við harðneituðuðum að fella niður tímann, enda höfðum við enga heimild til slíks. Þeir nemendur sem vildu mæta í mótmælin urðu að skrópa í tímanum og kyngja afleiðingunum.

En er það ekki einmitt hluti af stemningunni við að vera stúdent í mótmælaaðgerðum – að taka þátt í að berjast fyrir kröfum sínum og skrópa í skólanum á meðan?

# # # # # # # # # # # # #

Kaldi þorrabjór er kominn í ísskápinn. Hann verður prófaður í kvöld – og mögulega dæmdur á þessum vettvangi.

# # # # # # # # # # # # #

Skattavandræði Luton eru orðin verulega flókin og stefna framtíð félagsins í voða. Ég óttast að félagið sé að kremjast í miðjunni í slagsmálum breska skattsins og knattspyrnuyfirvalda.

Menn eru í fullri alvöru að ræða hvort lífvænlegra væri að hefja keppni í utandeildarkeppninni til að komast framhjá kröfum deildarinnar.

One Response to “Mótmælafrí”

  1. hildigunnur Says:

    þessi bekkur kom ekki nógu snemma til að komast á pallana, þau voru í tröppunum eins og fullt af öðru fólki, þannig að ekki var þetta liðið með lætin…

Leave a Reply