Gúllas

Málsverðurinn sem Nanna Rögnvaldar töfraði fram í Friðarhúsi í gærkvöldi var magnaður. Kjötið í ungversku gúllassúpunni var nautaskankar - sem mun vera ódýrasta kjötið á markaðnum en jafnframt það besta í svona súpu. Ég hef aldrei borðið jafn meyrt kjöt. Það hlýtur að hafa verið látið sjóða í hálfan sólarhring.

Ingibjörg Haraldsdóttir las úr endurminningarbók sinni, en fyrstu kaflar hennar gerast einmitt á Snorrabrautinni á næstu grösum við Friðarhúsið.

Stemningin var með besta móti - og hagnaðurinn ágætur. Ætli hann standi ekki undir fimm prósentum af eftirstöðvunum af bankaláninu?

# # # # # # # # # # # # #

Sam Parkin var keyptur til Luton með ærnum tilkostnaði - að því er mig minnir fyrir síðasta tímabil. Hann hefur verið meiddur síðan.

Í dag kom hann inn sem varamaður í sínum fyrsta deildarleik í óratíma. Og skoraði jöfnunarmarkið gegn Leeds á 90. mínútu.

Það eru fyrstu gleðilegu fréttirnar í viku sem einkum hefur snúist um fréttir af því að breski skatturinn sé mögulega að knýja okkur í gjaldþrot.

# # # # # # # # # # # # #

Framstelpurnar unnu Val í gær. Nú er maður loksins farinn að trúa…

Verð að mæta á FH leikinn í næstu viku.

6 Responses to “Gúllas”

  1. Freyr Says:

    Af hverju í andskotanum gat hann ekki verið meiddur einn leik í viðbðót?

  2. Magnús Says:

    Eru til afgangar af þessari gúllassúpu?

  3. Nanna R Says:

    Ódýrasta nautakjötið - svo öllu sé til skila haldið. Það er hægt að fá ódýrara kjöt af einhverjum öðrum skepnum.

    Soðið í rúma tvo tíma, látið kólna í pottinum yfir nótt, hitað upp í rólegheitum í klukkutíma (hefði kannski tekið styttri tíma en hellan á eldavélinni í Friðarhúsinu var svo fjári kraftlítil).

    Það verður ekki afgangur af svona súpu.

  4. Tobbi Says:

    „Í dag kom hann inn sem varamaður…“ Þetta orðalag fer ósegjanlega í taugarnar á mér. Ég er kennari en á sumrin vinn ég stundum sem bílstjóri. Þá ek ég bíl. Þegar maður, hver sem hann nú er, kemur „sem eitthvað“ vinnur hann sem slíkur. Maður sem kemur inn á sem varamaður hlýtur því að leika sem varamaður. Aldrei hefur mér tekist að finna lýsingu á varamannsstöðu á vellinum. Nú á ég allmarga meistaraflokksleiki að baki og alltaf lék ég sem markvörður. Væri ég varamaður í upphafi leiks gerðist það einstöku sinnum að mér var skipt inn á. En þá kom ég inn á sem markvörður. Félagar mínir sem skipt var inn á komu þá inn á sem tengiliðir, framherjar eða bakverðir, jafnvel svíperar. Aldrei léku þeir sem varamenn. Af hverju er ekki nóg að segja: Jón kom inn á á 37. mínútu? Og af hverju er því aldrei haldið fram að handboltamenn komi inn á sem varamenn? Eða körfuboltamenn? Er það af því að þar er öllum ljóst að þeir sem eru á vellinum hverju sinni standa jafnfætis; enginn þeirra er varamaður eftir að hann er kominn inn á. Og þess vegna alveg óþarfi að nefna það. Og af því að það stendur þér nálægt ágæti Stefán: Hvort tók frú Steinunn sæti á Alþingi sem varaþingmaður eða alþingismaður? Og eins og Nóbelsskáldið, eða einhver annar spekingur, sagði: Orð eru dýr; spörum þau. Látum menn koma inn á og leyfum þeim að taka fullan þátt þar með.
    Kær kveðja og berðu eldabuskunni Nönnu kveðju mína enda erum við skyld og bróðir hennar bekkjarbróðir minn.
    Libbðu svo heill

  5. Stefán Says:

    Þetta eru ágætis vangaveltur.

    Fyrst - varðandi stöðu Steinunnar á þingi, þá er það smekksatriði. Þegar forseti kynnir hana í ræðustól þá er hún sögð fjórði þingmaður Reykjavíkur-norður, en á vef Alþingis er nafn hennar að finna á listanum “varamenn sem sita á þingi”. - Í frétt RÚV í fyrradag var talað um lagafrumvarp varaþingmannsins Marðar Árnasonar og síðar í fréttinni tiltekið að Mörður sæti á þingi sem varaþingmaður Ingibjargar Sólrúnar.

    Munurinn á handboltanum og fótboltanum er sá að í fyrrnefndu greininni má skipta inná og útaf að vild. Þess vegna er frekar marklaust að velta sér upp úr því hvaða 7 menn byrjuðu leikinn og hverjir sátu á bekknum. Í knattspyrnu verður manni sem skipt er út af ekki komið aftur inn á völlinn - og það sem meira er, sumir þeirra sem settir eru á varamannabekkinn fá ekkert að koma inná - eitthvað þurfa þeir jú að heita…

    Auðvitað er enginn varamaður eftir að inn á völlinn er komið, en við hins vegar verður ekki litið fram hjá því að sá sem skipt er inn á tekur ekki fullan þátt í leiknum. Leikmaður sem fær að spila síðustu tíu mínúturnar í hverjum leik á Íslandsmótinu hefur að samanlögðu ekki leikið nema sem nemur tveimur heilum knattspyrnuleikjum. Það segir því ekki nema hálfa sögu að skrifa átján leiki á viðkomandi leikmann.

    Það er því augljós kostur að geta gert greinarmun á þeim sem hefja leik eða hinum sem koma inn á. Á sama hátt og við höldum því sérstaklega til haga hversu mörg mörk menn skora úr vítaspyrnum - þótt vitaskuld séu vítaspyrnur jafngildar öðrum mörkum.

    En auðvitað væri gott að fá hentugt orðalag til þessa brúks.

  6. Tobbi Says:

    Þetta er allt hárrétt. En framhjá því verður ekki litið að sé frá því sagt að komi maður inn á í hálfleik liggur ljóst fyrir að hann hefur verið varamaður í upphafi. Þess vegna er orðalagið: „sem varamaður“ algerlega óþarft þeim sem ekki eru svo skyni skroppnir að þeir vita að þeir eru að fjalla um knattspyrnu. „Jón kom inn á sem varamaður í hálfleik“ á að þýða nákvæmlega það sama og „Jón kom inn á í hálfleik“. En, eins og ég reyndi að útskýra í gærkveldi, skv. orðanna hljóðan þýðir það ekki það sama; sá sem inn á kemur sem varamaður hlýtur að gegna varamannsstöðu á vellinum. Og ég sé ekki hvar er rúm fyrir misskilning í orðalaginu: „Jón kom inn á“. Þar hlýtur að liggja í augum uppi að margnefndur Jón hóf ekki leikinn. Og því höfum við „…gert greinarmun á þeim sem hefja leik eða hinum sem koma inn á.“ og með hentugu og ótvíræðu orðalagi. Og nú erum við greinilega orðnir sammála úr því að þú slepptir „sem varamenn.“ Það gleður mína gömlu sál, vegna þess að hjarta okkar slær í takt á mörgum sviðum, t.d. í Gettu betur málum og sömuleiðis þjóðmálum. Af því leiðir auðvitað að mér finnst þú afar skynsamur maður, eins og allir sem eru mér sammála.
    Þú verður að fyrirgefa tuðið um málfarið því það er mér dáltið viðkvæmt mál og mér leiðist þegar koma klessur á áru íslenskunnar, ekki af því að ég telji að hún sé hótinu merkilegri en aðrar tungur heldur vegna þess að hún er tungan mín og mér þykir vænt um hana. Rétt eins og Luton er liðið þitt og þú stendur með því í blíðu og ekki síður í stríðu.
    Libbðu heill

Leave a Reply