Pólitískur spádómur

“Ef það hljómar of vel til að vera satt - þá er það yfirleitt ekki satt…” - Eitthvað á þessa leið er heilræðið sem lögreglan gefur fólki sem fær gylliboð frá Nígeríu um skrilljónir inn á bankareikninginn sinn.

Ólafur F. Magnússon ætti að hafa þessi sannindi í huga.

Sjálfstæðisflokkurinn gefur honum eftir borgarstjóraembættið og alla málefnaskránna. Þeir biðja hann ekki einu sinni um að tryggja að varafulltrúinn hans styðji nýja meirihlutann - og hann á örugglega eftir að fá fullt af nefndarsætum, ef hann hefur þá fólk til að manna þau. Meira að segja í sínum villtustu draumum hefði Ólafur F. ekki leyft sér að hugsa á þessum nótum. Þetta er bara of gott til að geta verið satt…

…og auðvitað er það þá ekki satt.

Viðvörunarbjöllurnar eru búnar að hringja allt í kringum Ólaf - en hann er of kátur til að gefa þeim nokkurn gaum.

Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík lætur sig ekki muna um að gefa Ólafi allt sem hann biður um, því þetta er bara klókur biðleikur. Fyrsta markmiðið var að splundra meirihlutanum. Það hefur tekist og vandséð að hægt verði að tjasla honum saman aftur.

Þegar nýi meirihlutinn splundrast á mettíma, geta Sjálfstæðismenn hrist hausinn og kennt því um að Ólafur F. rekist greinilega hvergi í flokki - sé ekki heill heilsu eða annað slíkt. Enginn verður hissa: Ólafur er jú maðurinn sem rýfur stjórnarsamstarf fyrirvaralaust…

Þar með er bara einn möguleiki í stöðunni: að VG eða Samfylking myndi meirihluta með íhaldinu - því hvað sem öðru líður getur borgin jú ekki verið stjórnlaus.

- Og það má treysta því að ÞÁ mun Sjálfstæðisflokkurinn hvorki gefa eftir borgarstjórastólinn né öll málefnin.

Munið: “Ef það hljómar of vel til að geta verið satt - þá er það ekki satt!”

12 Responses to “Pólitískur spádómur”

  1. joi Says:

    Er þetta ekki bara grein frá sárum samfylkingarmanni? Dagur komst vel frá þessu í viðtölum í gær. Sár og bitur, en ekki með neitt skítkast út í neinn. Þannig menn vilja borgarbúar sjá. Held að Samfylkingin myndi farnast best að haga sér þannig. Besta í stöðunni væri að geyma össur í Arabíu í nokkrar vikur svo hans skítabombur rati sem minnst í fjölmiðla.

  2. Björgvin Valur Says:

    Velkominn í flokkinn Stefán. Að þessu ódýra gríni slepptu, trúi ég að þú hafir rétt fyrir þér.

  3. Stefán Says:

    Jaaaá… sárum Samfylkingarmanni segirðu…

    Ertu mjög reglulegur lesandi þessarar síður?

  4. Sigurður Ásbjörnsson Says:

    “Viðvörunarbjöllurnar eru búnar að hringja allt í kringum Ólaf - en hann er of kátur til að gefa þeim nokkurn gaum.”

    Minn kæri!
    Hvar hefur kæti Ólafs birst? Þegar menn taka við jafn áhrifamiklu embætti og borgarstjórastólnum eru menn yfirleitt stórhuga, frísklegir, klæjandi í fingur yfir að koma sínum málum að og með uppbrettar ermar til að hrinda þeim í framkvæmd.
    En í gærkvöld sá ég þess engin merki að þannig háttaði til með Ólaf F.

  5. Stefán Says:

    Nei, líklega er kátína rangt orð. En hégómagirnd hans var óneitanlega kitluð.

  6. joi Says:

    Koma hérna inn í fyrsta skipti. Finnst bara tónninn vera álíka klökkur og í Ingibjörgu og Össuri, svo ekki sé minnst á “týnda varaformann” samfylkingarinnar. Annars held ég að fólk sé almennt ekkert yfir sig hrifið af þessu brölti.

  7. Óskar Says:

    Þetta eru orð að sönnu Stefán. Hvernig sem fer stendur Sjálfstæðisflokkurinn uppi betri eftir nokkra mánuði en hann er í dag. Reyndar er annað ekki hægt, svo sviðinn og rotinn er flokkurinn í dag. Reyndar tók ég eftir því hversu skömmustulegir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins voru í bakrunnanum á blaðamannafundinum í gær. Þeim leið greinilega ekki vel líkt og einhver hefði dáið. Ekki eitt bros sást á vörum þeirra. Kannski ekki skrítið því hver og einn þeirra þarf að passa bak sitt þar sem útréttir hnífar þeirra bíða færis í hverju horni….. “til í allt, án Villa!”

  8. Jóhannes Þ. Says:

    Já þeir voru vissulega lúpulegir á svip blessaðir vopnabræður Vilhjálms á þessum blaðamannafundi, eflaust því fegnastir að þeir þurftu ekki að segja orð á fundinum. En nú vil ég sjá alvöru blaðamenn gera sér alvöru mat úr þessu og herma af hörku margt af þeim stóryrðum sem féllu við síðustu borgarsprengju upp á það fólk sem nú varpaði sams konar bombu á borgarbúa. Hvar er Þorbjörg Helga til dæmis núna? Það var ekki beinlínis hátt á henni risið aftan við Vilhjálm á blaðamannafundinum þeim arna. Af hverju er hún ekki boðuð í Kastljós eða annað slíkt og látin standa fyrir sínu máli? Bara svona ein tillaga út í loftið. Nóg hafði hun að segja um Bjrn Inga á sínum tíma…en skyldi henni finnast allt í lagi að vinna núna með sams konar skítbuxa og hún lýsti yfir að Bingi væri þá? Það þætti mér fróðlegt að heyra.

  9. Tinna Says:

    Ég veit ekki sko mér finnst soldið skrítið hvernig fólk dregur þá áliktun að maður sé samfylking ef maður er ekki sáttur við þessa spillingu ..

    Ég er ekki samfylkingin en ég er alls ekki þessi stjórn …

    Ég vil reyndar frekar sjá samfylkinguna svo lengi sem sjálfstæðismenn og rest af þeim sé steypt frá …
    Kv Tinnsla í uppreisn ahah

  10. Bjarni Says:

    Sexmenningarnir voru nýbúnir að frétta hversu tæpur þessi meirihluti er (Borgarstjóri án varamanns). Þetta minnti meira á jarðarför en blaðamannafund.

  11. Guðfinnur Sveinsson Says:

    Fyndið að lesa þetta blogg, þetta er nákvæmlega það sama og ég sagði í gær. Að sjálfsögðu endar það þannig að sjálfstæðisflokkur myndar meirihluta með VG eða Samfylkingu svo að það verði starfhæfur meirihluti í borginni. Ég ætla að tippa á að þú reynist sannspár í þessu máli. Einsog ég sagði á blogginu held ég að Óli slái met í að sitja stutt í stóli borgarstjóra, slær út þessa tæpu 3 mánuði sem Árni Sigfússon sat.

    Fyndið að sjá menn kalla þig Samfylkingarmann… Þú ert annars alltaf velkominn þangað, þú átt þar skoðanabræður þrátt fyrir allt.

    Bestu kveðjur,

  12. Fríðaeyland Says:

    Sæll, mig langar að benda þér á undirskriftasöfnum gegn rafvopnavæðingu BB, kíktu á þetta http://www.petitiononline.com/rafvopn/petition.html
    Annars hef ég fulla trú á spádómum, þessi er líklegur til að rætast.

Leave a Reply