Archive for November, 2007

Áttunda árið

Sunday, November 25th, 2007

Í dag var landsfundur SHA haldinn. Fínn fundur. Fínar umræður. Góð stemning.

Ég var endurkjörinn formaður. Næsta starfsár verður sem sagt áttunda árið sem ég gegni formannsembættinu. Það er fjári mikið hjá manni sem er þó ekki nema 32 ára.

Haustið 1998 var ég fyrst lokkaður í miðnefndina. Ég samþykkti það í hálfgerðu bríaríi, án þess að hafa nokkurn tíma til þess. Var um þær mundir formaður ungs Alþýðubandalagsfólks og búinn að vera á kafi í flokkapólitíkinni í rúmlega sex ár. Miðnefndin var fámenn - ætli það hafi ekki verið fimm aðalmenn og tveir til vara. Samt gat gengið erfiðlega að fylla hana.

Ég var orðinn ansi mæddur á flokkapólitíkinni - raunar hálfbitur - þar sem megnið af orkunni fór í að berja á samherjum. Líklega taldi ég að einn og einn fundur í gömlu samtökunum hennar mömmu myndu bara vera smákrydd í tilveruna, enda gerði ég félögum mínum í nýju stjórninni grein fyrir að ég yrði önnum kafinn.

Málin þróuðust hins vegar á annan veg. - Alþýðubandalagið rann inn í kosningabandalagið sem síðar átti eftir að draga nafn sitt af þingflokki “Samfylkingarinnar”. Gamli draumur okkar sameiningarsinna varð að veruleika! - Þar til nýja batteríið féll á fyrstu hindrun…

Steingrímur Joð lagði fram sakleysislega tillögu um að stofna nefnd með það að markmiði að undirbúa brottför hersins. Það voru nú öll helvítis ósköpin!!! Og hvað gerði þingflokkur Samfylkingarinnar? Jú - kratarnir voru á móti, allaballarnir í hópnum gátu ekki drullast til að vera með…

Þennan dag dó Samfylkingin í hugum margra þeirra sem höfðu trúar á hana lengi. Þarna veit ég t.d. að Ármann Jakobsson - sem ég smalaði í Alþýðubandalagið til að kjósa Margréti Frímannsdóttur gegn Steingrími Joð - sneri við henni bakinu.

Ég var í losti í nokkra daga á eftir. Það eru fá skipti sem mér hefur fundist ég vera jafn svikinn.

Að lokum hafði ég mig í að tala við Margréti Frímannsdóttur. Sagði henni að ég væri miður mín - og að við þessar aðstæður ætti ég ákaflega erfitt með að vinna meira fyrir kosningarnar en bráðnauðsynlegt væri - lojalítetið lægi núna hjá mínu fólki sem væri að undirbúa mikla dagskrá í tengslum við 50 ára afmæli NATO-inngöngunnar. Margrét sagðist skilja mig fullkomlega, sagði mér að taka þann tíma sem ég þyrfti - bað mig um að bíta á jaxlinn, þetta yrði allt betra eftir kosningar. (Það var ekki fyrr en seinna að hún endurskrifaði söguna á þann hátt að við sem urðum við tilmælum hennar og biðum, vorum gerð að nöðrum og svikurum.)

Í kjölfarið henti ég mér út í undirbúningsvinnuna fyrir NATO-afmælið - og það var æði. Við bjuggum til svo flotta dagskrá og allt í einu upplifði ég ánægju og gleði í félagsstarfi sem mér var löngu horfin i flokkapólitíkinni. Í heila viku voru samkomur, fundir og aðgerðir. Á dagskránni var m.a. fundur um utanríkismál þar sem óskað var eftir leiðtogum framboðanna.

Framsóknarflokkurinn sendi Guðna Ágústsson, ráðherra, varaformann og efsta mann á Suðurlandi.

Frjálslyndi flokkurinn sendi Sverri Hermannsson, formann og leiðtoga í Reykjavík.

Sjálfstæðisflokkurinn sendi Árna Matthiesen, leiðtoga í Reykjaneskjördæmi og ráðherraefni.

VG sendi Ögmund Jónasson, efsta mann í Reykjavík - og almennt talinn næstráðanda í flokknum.

-  Samfylkingin tilkynnti að Heimir Már Pétursson - tíundi maður í Reykjavík myndi mæta.

WTF!!!

Ég fór niður á flokksskrifstofu og spurði hvort menn væru orðnir geggjaðir - og væru markvisst að reyna að sýna því fólki í Samfylkingunni sem liði illa vegna hermálsins lítilsvirðingu? Heimir Már svaraði því til að hann “yrði fyrsti til annar varaþingmaður eftir kosningar” - en ef hann væri ekki “nógu góður” væri svo sem hægt að finna einhvern annan…

Vordagana 1999 héldum við fjöldann allan af fundum og samkomum - en allaballarnir í Samfylkingunni létu aldrei sjá sig. Það var eins og við værum plágusjúklingar… (Svo öllu sé nú til skila haldið, þá hefur þetta talsvert breyst eftir Íraksstríðið og þessi hópur hefur farið að sjást aftur.)

Þetta fyrsta ár mitt í miðnefndinni var enginn formaður. Það var í annað sinn í sögu samtakanna sem ekki tókst að kjósa formann. Undir lok starfsársins tilkynnti ég hins vegar félögum mínum að ég væri til í að hella mér út í starfið að fullum krafti og eftir næstu landsráðstefnu tók ég við formennskunni.

2000 til 2001 var ég í Skotlandi í námi. Brottförin var skömmu fyrir landsráðstefnu og meðan ég var að pakka dótinu mínu niður var ég öðrum þræði að undirbúa fundinn - fá ræðumenn og stilla upp í stjórn. Sverrir Jakobsson féllst á að taka við formennskunni þetta eina ár - og daginn áður en ég flaug utan tókst mér að fylla síðasta sætið í miðnefndinni. Þá mundi ég eftir stelpu sem hafði setið í miðnefndinni 16 eða 17 ára, mörgum árum fyrr - og sem ég kannaðist afar lauslega við. Ég hringdi og hún samþykkti að taka mitt sæti í miðnefndinni.

Hún hét Steinunn Þóra og var víst að austan.

Ég flaug aftur heim tveimur dögum eftir ellefta september og lenti strax á bólakafi í undirbúningi aðgerða. Síðar um haustið tók ég aftur við formennskunni og var von bráðar farinn að sofa hjá meðstjórnandanum.

Við byrjuðum að fjölga í miðnefndinni á þessum árum, allt þar til komið var upp í núverandi tölu - tólf. Stjórnirnar voru undantekningarlítið ungar að árum - sumar of ungar. Það var ekki óalgengt að allir nema 2-3 væru undir þrítugu og oft fleiri en einn undir tvítugu. Samt reyndu fjölmiðlar að draga upp þá mynd að SHA væru samtök aflóga hippa sem hefðu ekki áttað sig á að níundi áratugurinn rann í hlað.

Tíminn hefur flogið ótrúlega fljótt síðan. En þetta hefur eiginlega alltaf verið gaman - annars væri maður ekki að gera þetta.

Nýja miðnefndin er helv. efnileg, svo ég bind vonir við að þetta ár verði a.m.k. ekki síðra en þau fyrri.

Af botninum

Saturday, November 24th, 2007

Tíu stiga frádrátturinn í vikunni setti Luton í botnsætið. Í dag unnum við Southend á heimavelli og komumst úr neðsta sætinu (reyndar bara á markatölu). Erum ennþá 4-5 stigum frá því að losna úr fallsæti.

Reynum að ná því fyrir jól.

Og svo er bara að vinna Brentford úti í bikarleiknum á þriðjudagskvöld…

Viðbót, kl. 20:30 - Vá, ég var nánast farinn að skæla við að lesa umræðurnar á Luton-spjallsvæðinu mínu í kvöld. Allir eru svo innilega glaðir. Menn eru vitaskuyld ánægðir með sigurinn og himinlifandi með að losna við núverandi stjórnendur - en mestu skipti að Blackwell framkvæmdastjóri, sem fyrr í vetur skammaði stuðningsmennina fyrir neikvæðni, baðst afsökunar og sagðist hafa haft á röngu að standa en stuðningsmennirnir verið í fullum rétti. Það er alltaf gott að menn geti viðurkennt mistök.

Ég hef ekki upplifað svona jákvæða stemningu í kringum liðið í meira en ár. Það hefur greinilega líka sínar góðu hliðar að lenda með bakið upp að veggnum…

Löggan og gps-ið

Friday, November 23rd, 2007

Ekki hef ég nennt að berja mig í gegnum öll skrifin um manninn sem uppgötvaði að löggan væri búin að koma fyrir staðsetningarbúnaði í bílnum hans. Rök lögreglunnar í málinu heyrist mér hins vegar vera á þá leið að þeir megi nota hvaða aðferðir sem er við eftirlit sitt sem ekki eru beinlínis bannaðar.

Það er vond tilhugsun. Einhvern veginn þætti manni það heilbrigðara ef lögreglan starfaði eftir reglum sem segðu til um hvað henni sé heimilt að gera - án þess að sækja sérstaklega um leyfi.  Að öðrum kosti þarf löggjafinn að reyna að ímynda sér allar þær fjarstæðukenndustu rannsóknaraðferðir sem lögreglan gæti tekið uppá og taka fyrirfram afstöðu til þeirra.

Skyldi lögreglunni vera bannað að koma staðsetningartæki fyrir á eða í líkama fólks að því óafvitandi? Ef það er ekki beinlínis bannað - þá telur lögreglan sig sem sagt mega það…

Annars er þetta fín hugleiðing í tengslum við málið… 

Fokk, fokk, fokk, fokk…

Thursday, November 22nd, 2007

Jæja. Þá er Luton komið í greiðslustöðvun. Það þýðir sjálfkrafa tíu stiga frádráttur. Við erum komnir í neðsta sæti deildarinnar.

Og kæran frá Knattspyrnusambandinu grúfir enn yfir…

Andskotinn.

Forngripur

Thursday, November 22nd, 2007

Í dag fór ég í bókabúð og keypti diskettur.

Unglingnum sem var að afgreiða fannst þetta magnað - og var raunar forviða að svona forngripir væru enn til sölu, hvað þá að einhver keypti þetta ennþá.

Ég stillti mig um að spyrja hvort þær væru forsniðnar eða ekki - hann hefði fengið flog…

# # # # # # # # # # # # #

Góðu fréttir dagsins eru þær að ég keypti ljúffengt hangikjötslæri af vinnufélaga hér í Reykjavíkurakademíunni áðan.

Vondu fréttir dagsins eru þær að hann lét mig fá lærið fyrir tveimur klukkutímum og nú er skrifstofan full af hangikjötslykt og ég er að ærast af sulti.

TURK 182

Gúdd riddans

Wednesday, November 21st, 2007

Jæja, þá erum við laus við Englendinga úr EM. Það er þá kannski ennþá von til að rætist úr þessari keppni!

Englendingadaður íþróttafréttamanna komst í nýjar hæðir í leiknum í kvöld, þegar Guðjón Guðmundsson sagði e-ð á þá leið að ef þetta yrðu úrslitin, þá væri þetta líklega einhver stærsti sigur króatískrar knattspyrnu!

Uh - nei…

Hvað með 3:0 sigur á Þjóðverjum í fjórðungsúrslitum HM 1998?

Eða sigurinn á Hollendingum í leiknum um þriðja sæti í sömu keppni - þar sem Davor Suker tryggði sér gullskóinn?

Nei - toppurinn á tilverunni hlýtur að vera að sigra lið sem endaði á að tefla fram þriðja framherja Liverpool og fjórða framherja Tottenham…

Farið hefur fé betra.

Spalmare Holdings - hvað?

Wednesday, November 21st, 2007

Muu… nú er ég ekki að skilja.

REI/GGE voru víst með hæsta tilboðið í orkuveituna á Filippseyjum, eins og rakið hefur verið í öllum fjölmiðlum… í íslenskum fjölmiðlum það er.

Aðrir fjölmiðlar sem segja frá kauptilboðinu nefna fyrirtækin hins vegar ekki á nafn - heldur ræða um e-ð Spalmare Holdings, frá Hollandi.

REI/GGE er sagt vera hluti af samsteypu sem heitir Red Vulcan. En hvað segja erlendir vefmiðlar um Red Vulcan:

Red Vulcan is a consortium composed of First Gen Corp., Spalmare Holdings BV, and Prime Terracota Holdings Corp.

Red Vulcan Holdings Corp.  the consortium of Lopez-led First Gen Corporation and Icelandic group Spalmare Holding and Prime Terracota Holdings Corp.  submitted a P58.5 billion bid, besting three other groups that which made it to the final round of the bidding. (jæja, hér er Spalmare Holding sagt íslenskt…)

Og - Leading the cast is Red Vulcan Holdings Corp. of First Gen Corp. of the Lopez group, which tied up with Spalmare Holdings B.V. of the Netherlands and local firm Prime Terracota Holdings Corp. First Gen is a familiar sight in almost all the major assets being bid out by Power Sector Assets and Liabilities Management Corp., the agency in charge of privatizing the generating units of state-run National Power Corp. - Hér er Spalmare orðið hollenskt, sem rímar við…

þessa skráningu.

Útskýringu takk! Eru íslensku fyrirtækin að kaupa í gegnum hollenska kennitölu - eða hvað er eiginlega málið?

Eru Íslendingar ekki jafn frægir og eftirsóttir í Asíu og Össur vildi vera láta?

Pestarbæli

Wednesday, November 21st, 2007

Hvers vegna verður maður bara lasinn einmitt þegar maður hefur ekki tíma til þess?

Steinunn fékk magakveisu í Madríd (tók hana reyndar með sér að heiman) og er nýskriðin saman. Ég er búinn að liggja í tvo daga - og barnið var heima í dag með hita og óeirð.

Ég geng af vitinu ef ég þarf að horfa einu sinni enn á Múmínálfana og sápukúlurnar.

# # # # # # # # # # # # #

Fátt um skemmtilega leiki á EM í kvöld. Helst að binda megi vonir við finnska landsliðið. Ég er alltaf stuðningsmaður þess að sjá nýjar þjóðir í úrslitakeppnum stórmóta.

Danmörk - Ísland? Tja, eigum við að segja 7:0?

Bunnahabhain

Monday, November 19th, 2007

Ástsæl eiginkonan kom heim síðustu nótt frá ráðstefnu í útlandinu. Á Heathrow keypti hún þessa flösku fyrir karlinn sinn. Þessi tegund er ekki nefnd á nafn í viskýbiblíu Michaels Jacksons. Það verður spennandi að dreypa á.

# # # # # # # # # # # # #

Var í spjalli um Tycho Brahe á Rás 1 eftir hádegið.  Fór um víðan völl og náði ekk einu sinni að klára alla punktana sem ég hafði ætlað mér að koma að. Handsalaði það eiginlega við dagskrárgerðarkonuna að ég muni koma aftur innan tíðar og ræða um annan vísindajöfur.

Töff

Monday, November 19th, 2007

Auður Lilja er á þingi um þessar mundir í fjarveru Álfheiðar Ingadóttur. Þessi fyrirspurn hennar til ráherra er ansi góð. Gaman verður að heyra menntamálaráðherra klóra sig út úr þessu.

# # # # # # # # # # # # #

Í dag birti Fréttablaðið lista yfir minnistæðustu setningar á íslensku. Ég er meðal álitsgjafa, en lítið fer fyrir mínum tilnefningum í greininni.

Það er samt pínlegt fyrir Davíð Oddsson að brandari sem hann stal frá Churchill (og sem Churchill hefur vafalítið stolið frá einhverjum öðrum) - skuli vera tilnefndur og birtur sérstaklega í blaðinu í rammagrein. Það væri nú illa komið fyrir Íslendingum ef hnyttnustu ummælin væru endursögn á útlenskum brandara.

Hvað tilnefndi ég sjálfur? Jú, e-ð frá Þórbergi, Vélstrokkaða tilberasmjörið hans Guðmundar Finnbogasonar - og vitaskuld eiturpillu Magnúsar Kjartanssonar um Vilhjálm Þór og fálkaorðuna,  svo eitthvað sé nefnt.