Trúnaðarmaðurinn

Í dag sat ég fyrsta fundinn í fulltrúaráðinu hjá Starfsmannafélagi Reykjavíkur. Ég er sem sagt orðinn trúnaðarmaður. Niðurstöður kosninganna hjá Orkuveitunni voru reyndar bölvað klúður - af okkur fimm sem gegnum þessum embættum erum við þrjú sem störfum innan sama sviðs í fyrirtækinu. Það er ákaflega slök dreifing.

En þá er bara að byrja að lesa kjarasamninga og reglugerðir…

# # # # # # # # # # # # #

Álpaðist líka á aðalfund foreldrafélagsins á leikskóla barnsins. Þar var fámennt. Raunar svo fámennt að allir sem mættu enduðu í stjórn.  En ég kvarta svo sem ekki, svo lengi sem mér tekst að berja af mér formennskuna og gjaldkeradjobbið.

# # # # # # # # # # # # #

Luton átti ekki í vandræðum með Brentford í endurtekna bikarleiknum í kvöld. Það þýðir að við mætum Nottingham Forest í næstu umferð. Sá leikur getur þó ekki farið fram á laugardaginn kemur eins og aðrir bikarleikir. Ástæðan - jú, enska löggan krefst þess að fá tíu daga undirbúningstíma fyrir hvern fótboltaleik.

Kannski þetta verði til að Sky sýni leikinn? Og þó - þeir veðja líklega á eitthvert utandeildarliðið í þeirri von að sjá Davíð sigra Golíat.

# # # # # # # # # # # # #

Í morgun drógust Framararnir gegn rúmensku handboltaliði, frá Timisoara, í Evrópukeppninni. Ég sló Timisoara upp á Wikipediunni og þar er staðhæft að þetta sé fyrst borg í heimi (amk í Evrópu) þar sem göturnar voru raflýstar. Gott ef þetta gerðist ekki 1884.

Það finnst mér magnaðar upplýsingar!

3 Responses to “Trúnaðarmaðurinn”

  1. pallih Says:

    Foreldrafélag í leikskóla? Með gjaldkera?

  2. kolbeinn Says:

    Já Páll. Fyrir útrásina maður! Þetta er meira svona fjárfestingafélag… group.

  3. Egill Says:

    Einhver þarf að borga jólasveininum fyrir að mæta á jólaballið.

Leave a Reply