Skopmyndir
Eins og maður fékk nú margar fréttir af Múhameðs-skopmyndamálinu danska, þá hefur ekkert frést í fjölmiðlum hér heima um spánska teiknarann sem fékk dóm fyrir að gera grín að kónginum. Hann fékk sekt - en hefði getað lent í steininum.
Sá er þó munurinn að skopmyndin hans - sem má sjá neðst í þessari grein á Spiked - var í raun fyndin!
Hengjum hinn síðasta aðalsmann í görnum hins síðasta klerks - eins og kerlingin sagði…

November 27th, 2007 at 08:00
… og aðalmaður á vefnum fridur.is hafði eftir eins og ekkert væri.
Fín satíra, takk fyrir … en svo að ég haldi mig við aukaatriðin: var það ekki krónprinsinn sem hann gerði grín að?