Net-Mogginn

Net-Mogginn skiptir um útlit, en síðan er alltaf sama draslið.

Hvers vegna getur fólkið ekki útbúið síðuna sína þannig að hún virki í Firefox, sem er þó harlaalgengur vafri? Sitja allir í Hádegismóum og skoða síðurnar í Internet Explorer og telja sig konunga internetsins?

Mbl.is ræður sem sagt ekki við það að setja auglýsingar á vinstri hlið síðunnar sinnar án þess að þær hylji stikuna sem þarf að nota til að skruna upp og niður síðuna. Þetta er augljóslega stórgalli, en hefur verið viðvarandi í margar vikur.

6 Responses to “Net-Mogginn”

  1. hildigunnur Says:

    Síðan er líka hundleiðinleg í Opera. Reyndar er þetta skárra þar, þar sem það er auglýsingin sem er falin bak við skrunröndina, ekki öfugt. Veit samt ekki hvort auglýsendur séu jafn ánægðir með það og ég…

  2. Björn Friðgeir Says:

    Adblock viðbótin í Firefox er alger nauðsyn, gerir mbl.is læsilegt yfirhöfuð.
    Og þetta nýja útlit er nákvæmlega ekkert spennandi.

  3. Elías Says:

    Ég nota flashblock en það veldur því að í stað flash animation forrita birtast aðeins kassar í sömu stærð með takka til að kveikja á forritinu ef þess er óskað.
    Mér finnst það alger nauðsyn ef maður ætlar eitthvað að nota mbl.is. :-)

  4. josefine Says:

    Til hvers ertu að pirra þig á mogganu? Hann verður brátt dauður líkt og moggabloggið - og farið hefur fé betra.

  5. Ómar Says:

    Af hverju splæsir þú ekki 10 mínútum í að uppfæra vafrann þinn? Er sjálfur að nota Firefox 2.0.0.9 án nokkurra teljandi vandræða á netinu…

  6. Stefán Says:

    Já, kannski er þetta uppfærslumál. En það er fjandakornið eins og ég sé með eldgamlan vafra að tuða út í horni. Keypti tölvuna fyrir innan við þremur mánuðum…

Leave a Reply