Farsímafærni

Ég skil ekki fólk sem kann ekki að slökkva á gemsunum sínum - eða slökkva á hljóðinu.

Ég skil enn síður í fólki sem fellur undir ofangreinda flokkinn - en ákveður samt að mæta með símann sinn í útfarir.

Í kirkjunni í dag hringdi sami síminn FIMM SINNUM - og í ÞRJÚ fyrstu skiptin var eigandinn jafnlengi að krafsa hann upp úr vasanum eða veskinu.

Er hægt að gera kröfu um að fólk hafi próf í meðferð símtækja á sama hátt og t.d. bílpróf?

2 Responses to “Farsímafærni”

  1. hildigunnur Says:

    Urr!

    Það hefur samt fækkað töluvert skiptunum sem sími hringir við jarðarfarir. Líklega bara í svona tíundu hverri núna, miðað við örugglega annarri - þriðju hverri fyrir nokkrum árum.

    Versta tilfellið var þegar sími prestsins hringdi og hann SVARAÐI…

  2. Lárus Viðar Says:

    Það er eins og skáldið sagði, fólk er fífl.

Leave a Reply