Samviskuspurningin

Samviskuspurning vikunnar er einföld:

Hvort er ömurlegra að -

i) vilja vera hinn nýi Jakob F. Ásgeirsson…

eða

ii) að takast ekki einu sinni að vera það?

6 Responses to “Samviskuspurningin”

  1. Villi geit Says:

    Þú ert nú meiri mannorðsmorðinginn…
    Það ætti að banna svona stríð…
    Ég er andstæðingur svona hegðunar…
    Afhverju má Egill ekki fá silfrið fyrir þér?
    Þú getur hirt gullið…
    Jæja, þá er búið bullið.

  2. anna Says:

    Hver er hinn nýi Jakob F. Ásgeirsson?

  3. Mamma Says:

    Það er örugglega ömurlegra að VILJA vera hann. Séð frá mínum bæjardyrum er skárra að takast það ekki

  4. Sigurður Þór Guðjónsson Says:

    Er nokkuð ömurlegra að vera þessi Jakob F. Ásgeirsson en Stefán Pálsson. Undarleg þessi illkvittni að gera litið úr nafngreidnum mönnum.

  5. Stefán Says:

    Góð ábending Sigurður, það er alltaf gott að hafa það í huga við netskrif að gæta prúðmennsku.

    Ég er hins vegar handviss um að það er fjöldi fólks í þessum heimi, til að mynda margir þeirra sem hafa öndverðar stjórnmálaskoðanir við mig, sem teldu það ömurlegt markmið í lífinu að reyna að taka mig sér til fyrirmyndar - að verða “hinn nýi Stefán Pálsson”. Ekki tek ég það nú mjög nærri mér og tel það viðhorf ekki benda til sérstakrar illkvittni.

  6. SHH Says:

    Ég þori að veðja að margir róttæklingar af yngri kynslóðinni — sérstaklega þeir sem eru vonsviknir á borgaralegri þróun hins nýja Stefáns Pálssonar — eiga sér í raun það takmark að verða hinn gamli Stefán Pálsson…

    Hvað snertir röfl um meinta illkvittni síðuhaldara (SP), þá væri lítið varið í almenna orðræðu á netinu ef aldrei mætti skjóta fast á annað fólk og gera lítið úr athöfnum þeirra og/eða hugsjónum. Sérstaklega þegar haft er í huga að SP er rækilega nafngreindur í sínu hjali.

    Ég veit ekki betur en háæruverðugur Guðjónssonurinn hafi í síðustu færslum velt sér upp úr kynhneigð Schuberts, slúðri í Mayrhofer og Oulibicheff í svipaða átt, nítt síðan skóinn af fjölskyldum sem konsepti, kvartað yfir frammistöðu Ollýjar í Kastljósinu, mótmælt afstöðu Pálínar Hermanns til DNA-prófa Lúlla ættlauks, pælt svo í gayheitum Gay og lamið á Selfoss-sýsla fyrir skrikanir í stóra þvagleggsmálinu. Allt að mestu mjög vel nafngreint og illkvittið í meira lagi. Eins og vera ber!

    Gaman að þessu. Gaman að ykkur.

Leave a Reply