Næstmestselda bók í heimi
Egill Helgason veltir fyrir sér uppruna orðsins “pappírskilja” og varpar fram skemmtilegri upprunaskýringu. Ég sló inn orðinu “kiljur” í orðaleitinni á Moggavefnum og það stendur heima að nafnið er kynnt til sögunnar sem nýyrði þann 7. júní 1969.
Í þeirri grein er velt upp ýmsum álitamálum varðandi fjöldaframleiðslu á bókum af þessu tagi - hvort það sé til marks um skrílvæðingu bókamarkaðarins eða frábær leið til að koma góðbókmenntum til fjöldans fyrir slikk.
Þarna er staðhæft að bók Thors Heyerdals um Kon-Tiki sé nú “mest selda bók í heimi næst Biblíunni”. Það eru nú ófáar bækurnar sem hafa fengið þessa einkunn. Ætli maður gæti ekki búið til lista yfir amk. 10 bækur sem hafa í gegnum tíðina átt að standa undir þessu. (Á sama hátt og ófáir herir hafa verið sagðir þeir fjórðu stærstu í heimi.)
Auðvitað hlýtur einhver bók að vera sú næstsöluhæsta í heimi (þá að því gefnu að Biblían sé örugglega sú söluhæsta) en ég er nokkuð viss um að hr. Heyerdal hefur aldrei aldrei vermt það sæti.

August 25th, 2007 at 16:13
Líklegra að það sé Kóraninn.
August 25th, 2007 at 17:17
Þar sem ég er nýbúin að gera nafnaskrá við ævisögu Maós ætla ég að fullyrða að það sé Rauða kverið. Og örugglega sú sem seldist langhraðast. Ein á mann í Kína, sirkabát. Og Kínverjar eru helvíti margir. (Og flestir þeirra voru nefndir á nafn í bókinni …)
August 25th, 2007 at 21:06
Já, Rauða kverið hljómar sannfærandi. Gæti verið að Biblían sé mest (ekki best) gefna bók í heimi? Eða fengu Kínverjar - læsir sem ólæsir - Kerið e.t.v. eins og við fáum Fréttablaðið?
Brennið þið vitar!
August 26th, 2007 at 11:25
Heimsmetabók Guinness er sú höfundarréttarvarða bók sem mest hefur selst í heiminum. Í þeim útreikningum eru mismunandi útgáfur hennar reyndar teknar saman, þær eru ekki taldar sérstök verk.