Hættur að blogga

Ákvörðunin hefur verið tekin. Ég er hættur að blogga. Lesendur sem lagt hafa í vana sinn að heimsækja bloggsíðuna Um tilgangsleysi allra hluta geta hætt því.

Ekki svo að skilja að ég sé hættur að skrifa hugleiðingar á netið, sem verða aðgengilegar á þessari vefslóð. Neinei, ég ætla bara að ganga á hönd hinni nýju hátækniorðræðu.

Krafa samtímans er hátækni. Allt verður einhvern veginn betra, flottara og dýrara ef það heitir hátækni-e-ð. Það er ekkert töff að byggja spítala, en allir vilja hátæknisjúkrahús. Fyrirtækið sem ætlar að byggja olíuhreinsunarstöð fyrir vestan kallar sig Íslenskan hátækniðnað eða e-ð álíka. Og þegar Yahoo, Microsoft og Google biðja um að fá að kaupa rafmagn til að reka geymslur sem er í raun bara stórir kæliklefar - þá heitir húsvarðadjobbið “hátæknistörf við rekstur netþjónabúa”.

Ég vil taka þátt í þessu. Hér með hefur því verið ákveðið að Um tilgangsleysi allra hluta sé ekki lengur bloggsíða heldur “hátæknihugveita” og ég því ekki lengur bloggari heldur “hátæknihugveitir”.

Spurning um að breyta skráningunni í Símaskránni líka?

19 Responses to “Hættur að blogga”

  1. Gísli Says:

    Ég ætla að bregða mér snöggvast í Bolinn og grátbiðja þig að hætta ekki að blogga.

  2. SHH Says:

    Líst vel á þetta. nafni. Velkominn í hátæknibransann. Úr því að web logger breyttist í blogger, þá er spurning hvort hátæknihugveitir verður ekki fljótlega stytt í hveitir? Eins er líka pæling hvort ekki verður að uppfæra öll starfsheitin sem enda á -tæknir (ræstitæknir, pokatæknir, snyrtitæknir, osfrv) með viðbótinni -há-, sbr. ræstihátæknir. “Tækni”-viðbótin er alltof lítilmótleg. Kær kveðja úr upplýsingahátæknigeiranum!

  3. pallih Says:

    Hver á þá að vera besti og frægasti bloggarinn? Stefán Friðrik?

  4. Elías Says:

    Mér hefur alltaf fundist að blog ætti að ríma við flog.

  5. Einar Örn Says:

    Ég held að hann sé augljósasti valkosturinn, Palli.

    Annars er nafngiftin á þessu olíuhreinsunar-fyrirtæki stórkostleg.

  6. Varríus Says:

    Til hamingju með breyttan vettvang.

    Þetta er allt annað líf.

  7. kolbeinn Says:

    Það er nú óheiðarlegt að gefa það í skyn að þú sért hættur þessu netþusi þínu þegar reyndin er sú að þú kallar það aðeins öðru nafni. Ég þurfti að reka tappann aftur í kampavínsflöskuna. Og ekkert þus eins og hjá Stebbafr um að menn lesi þig bara ef þeir vilja. Það er nú bara af skítlegri breiddargráðu svo ég vitni í meistarann.

  8. Gúrúinn Says:

    hátækniveitir hlýtur að styttast í háviti…

    Annars fagna ég þessari hátæknivæðingu þinni, #.

  9. pallih Says:

    Hálvitavæðingu?

  10. Birkir Stagedive Says:

    hehehe.

    En er til þjált orð yfir blog á íslensku?

  11. kolbeinn Says:

    Já það er til mjög þjált orð á íslensku. Blogg.

  12. Þórður Ingvarsson Says:

    Ég er uppnuminn af þessu orði, og ég ætla að nota það óspart. Ég, einsog sumir, er einnig hátæknihugveitir.

  13. Elías Says:

    Blog, rímar við flog.

  14. Njóll Says:

    Svo ég komi með innlegg frá óhúslegu húsmóðurinni í Vesturbænum.
    Frá málþróunar-ferlislegu sjónarmiði. Þá gengur alltaf það sem er stutt og fellur að íslenskri beygingu. Sbr. þotur voru kallaðar háþrýstiloftsflugvélar til að byrja með. Einstaklega lýsandi heiti eins og t.d. hátæknihugveitir.

    En mjög tyrfið fyrir tunguna og hið íslenska leti-gen.

    Blog er stutt en virkar ekki, hver vill bloga? Mjög geðlurðulegt að bloga og frekar slímkennt orð. Ég myndi leka út yfir lyklaborðið ef ég væri að bloga.

    Hin orðheppni prestur í Óháða söfnuðinum kallar þessa athöfn nú barasta rafröfl.

    Er styttingin ekki bara að há(tæknihug)væðast? Hávæðast? Hæðast?

  15. Elías Says:

    “Ég var að hæðast að hæstvirtum dómsmálaráðherra í gær.”

    Virkar fyrir mér.

  16. Elías Says:

    Ennfremur legg ég til að í stað hins óþjála orðskrípis “lögregluþjónn”, sem fæstir kunna að bera fram og segja þess í stað “löðrugluþjónn” verði tekið upp orðið þvagtæknir.

  17. dickifiplydok Says:

    Hey guys!

    I’m new here.

    So i’d like to ask you if your income reduced because of the world financial crisis?

  18. Spetriescitop Says:

    Here you can find everything you need

    online
    dealer
    lambert
    is
    of
    what
    com
    with
    results
    at
    fast
    a
    w
    commail
    sale
    be
    blu
    did
    poems
    closures
    closures
    and
    xp
    the
    to

    For real

  19. Impummacexbex Says:

    Here you can find everything you need

    nissan eltora minivan
    caviar and bobby valentino
    jonagold apples
    canadian western bank
    joseph cornell
    king of majesty lyrics yfc
    thw real canadian superstore
    message board for cmkx
    livin la vida loca
    dave bing
    prescott group
    replace garage door torsion springs
    cell phones public
    gregory joujon roche fat burning lemonad
    adam lambert feeling good
    raid controller performance
    nature craft
    garage door opener keyless entry
    hoosier sport car dot radial
    utmb health insurance
    boutique hotels carmel california
    waxhaw nc real estate lookup
    find a compounding pharmacy
    american idol results 42209
    men in drag
    concrete cost estimate

    For real

Leave a Reply