Archive for July, 2007

Tekíla

Saturday, July 7th, 2007

Í kvöld mætti fjölskyldan í matarboð hjá foreldrum Garðars svila míns. Þau hafa talsverð tengsl við Mexíkó og hafa heimsótt landið nokkrum sinnum.

Eftir matinn var dregið fram tekíla. Það er drykkur sem ég hef sjaldnast tengt við mikla fágun, enda allt það tekíla sem ég hef drukkið til þessa bölvað glundur.

Í ljós kom að í Mexíkó er mikil tekíla-hefð, þar sem draslið er flutt til gringóanna í norðrinu eða til Evrópu. Heimamenn luma hins vegar á tegundum sem eiga ekkert skylt við það tekíla sem hægt er að kaupa hjá ÁTVR. Eftirlætisdrykkur húsbóndans heftur t.d. viský-keim. Það mætti alveg venja sig á þetta…

Megi Moggabloggið drekka tréspíra.

Bitlaust

Friday, July 6th, 2007

Ég er búinn að hafa lúmskt gaman af öllu fárinu eftir leik Skagamanna og Keflvíkinga. Nenni ekki að setja mig í gírinn - “ó, hvað þetta er nú slæmt fyrir íþróttina” - sannleikurinn er sá að það er fátt skemmtilegra en almennilegur hasar í fótboltanum og mest gaman þegar allt verður vitlaust.

Það er tilgangslaust að velta mikið vöngum yfir því hvort Bjarni Guðjónsson hafi skorað viljandi eða ekki. Í því efni verður ekkert hægt að sanna. Skemmtilegra er að fylgjast með umræðunni um hvort Skagamenn hefðu átt að gefa Keflvíkingum mark á móti. Þar er þáttur Guðjóns Þórðarsonar merkilegur, en mér sýnist hann hafa orðið fimmsaga í málinu. Rifjum þetta nú upp:

i) Fyrstu viðbrögð Guðjóns við spurningu um hvort til greina hefði komið að gefa mark voru á þá leið að það hafi aldrei verið inni í myndinni og hugmyndin fáránleg. Mark Bjarna hafi verið mistök og mistök séu hluti af leiknum, sem ekkert sé við að gera.

ii) Síðar kemur fram að Bjarni hafi spurt Guðjón og samherja sína hvort rétt væri að leyfa Keflvíkingunum að skora, en sú hugmynd hafi verið skotin niður.

iii) Guðjón lætur síðan að því liggja að Skagamenn hafi á einhvern hátt gert Keflvíkingum auðvelt að skora mark skömmu eftir atvikið og að Bjarni hafi í raun gefið Keflvíkingum markið eftir allt saman.

iv) Eftir því sem lengri tími líður frá leiknum eru Skagamenn farnir að tala sig upp í að þeir séu í raun fórnarlömbin. Þá byrjar Guðjón að spila þá plötu að framkoma Keflvíkinga eftir leikinn hafi verið með þeim hætti að þeir hafi ekki átt skilið að fá mark í sárabætur. - Þessi málsvörn krefst þess reyndar að leikmenn ÍA séu skyggnir og hafi vitað meðan á leik stóð að allt færi í háaloft síðar um kvöldið.

og síðast en ekki síst…

v) Í raun sé ekki hægt að útiloka það að Skagamenn hefðu leyft Keflvíkingum að skora, en Keflvíkingar hafi bara verið með svo mikil læti og djöfulgang að Skagamönnum hafi bara ekki gefist ráðrúm til þess.

Mér finnst það vera vel af sér vikið hjá einum manni að ná að smíða fimm mismunandi útgáfur af nokkurra sekúndna atburðarás á einum og hálfum sólarhring. Spái því að næst muni Guðjón lýsa því yfir að hann hafi einn manna á vellinum krafist þess að fá að gefa Keflvíkingum mark en Suðurnesjamenn ekki tekið það í mál.

Hafiði annars tekið eftir því hvað Guðjón Þórðarson og Guðni Ágústsson eru furðulíkir?

Megi Guðjón Þórðarson afgreiða Moggabloggið eins og rithöfund.

Skynsemi

Wednesday, July 4th, 2007

Alex Salmond forsætisráðherra minnihlutastjórnarinnar í Skotlandi er einn þeirra stjórnmálamanna sem ég hef mestar mætur á. Þegar ég var í Edinborg fylgdist ég mikið með pólitíkinni og það gat verið unun að horfa á hann pakka saman andstæðingum sínum í kappræðum.

Sprengjutilræðin í Glasgow hafa vitaskuld haft gríðarleg áhrif á Skota. Við slíkar aðstæður er alltaf hætta á að stjórnmálamenn reyni að slá sig til riddara með því að kalla eftir billegum patentlausnum, auknu eftirliti og afnámi mannréttinda. Raunar má segja að slík viðbrögð hafi verið regla frekar en undantekning á síðustu árum. Eflaust muna margir eftir ummælum Össurar Skarphéðinssonar um nauðsyn þess að koma á lögregluríki strax eftir 11. september 2001.

Salmond fór hins vegar ekki á taugum við sprengingarnar. Hann varaði menn við því að hrapa að ályktunum og sagðist ekki sjá neina ástæðu til að gefa lögreglu auknar heimildir til að halda fólki lengur án ákæru en núverandi lög heimila. Salmond fær mitt hrós. Betur að við ættum fleiri slíka stjórnmálamenn vestan hafs og austan.

Stjórnmálafrétt helgarinnar

Wednesday, July 4th, 2007

Athyglisverðasta stjórnmálafrétt helgarinnar náði á einhvern óskiljanlegan hátt að fara fram hjá öllum.

(Nei, ég er ekki að tala um viðtalið við Steingrím Joð í Fréttablaðinu - það var frekar vanhugsað og sex vikum of seint.)

Ég á við ummæli Ingibjargar Sólrúnar um Evrópusambandið. Utanríkisráðherra var sem sagt á ferð um Afríku í síðustu viku og þar kom í ljós að allir Afríkubúarnir voru þetta líka ánægðir með framboð okkar í öryggisráð SÞ. Í fréttayfirliti hjá RÚV var meira að segja slegið upp fyrirsögninni: “Afríka styður Ísland.”

Og hvers vegna skyldi Afríka styðja Ísland? Jú - útskýrði utanríkisráðherra - það er vegna þess að Ísland er ekki í Evrópusambandinu.

Aumingja Eiríkur Bergmann og Baldur Þórhallsson - þeir hafa fengið flog!

Auðvitað er það rétt hjá viðmælendum Ingibjargar Sólrúnar að staða Íslands utan ESB gerir það að verkum að við eigum meiri möguleika á að móta sjálfstæða utanríkisstefnu og tala t.d. máli friðar í heiminum. Hitt er óvæntara að heyra formann annars þeirra tveggja stjórnmálaflokka sem styðja aðild að Evrópusambandinu hafa þessi rök eftir.

Nú lá fyrir að Samfykingin fengi engu áorkað í Evrópumálunum í þessari stjórn, en það er nú óþarfi að dissa gamla stefnumálið með þessum hætti. Mér finnst þetta sambærilegt við það ef VG færi í ríkisstjórn þar sem úrsögn úr NATO væri ekki á dagskrá - en síðan kæmu forystumenn flokksins og nudduðu salti í sárin með því að tala um hvað NATO-aðildin væri mikill styrkur í samskiptum við fólk úti í heimi. Það yrði allt vitlaust í flokknum!

Merkilegt að enginn fjölmiðill hafi veitt þessu athygli.

# # # # # # # # # # # # #

Suður-Ameríkumótið heldur áfram. Uruguay, sem hefur alltaf verið ofarlega á vinsældarlistanum hjá mér síðan Enzo Fransescoli var og hét, er ekki að gera góða hluti og skreið í fjórðungsúrslit sem þriðja lið í sínum riðli.

Það er hins vegar magnað að heimamenn í Venesúela hafi náð efsta sæti síns riðils, með lið sem er skipað óþekktum miðlungsmönnum frá smáklúbbum. Ef leikmannahóparnir eru skoðaðir, er Venesúela með langlélegasta mannskapinn. Svona getur heimavöllurinn skipt miklu máli.

Vesalings myndatökumennirnir eiga annars í miklum vandræðum á þessu móti. Þeir eru vanir að sýna reglulega myndir af léttklæddum stelpum að dilla sér á áhorfendapöllunum - en á síðustu leikjum hafa þeir mátt hafa sig alla við að finna 2-3 myndarlegar konur í þykkum peysum og með sultardropa af vosbúð. Hitinn er nefnilega “bara” 25 gráður þarna úti…

Úr því að Uruguay ætlar að valda mér vonbrigðum í ár, er freistandi að veðja á Paraguay sem hefur farið mjög vel af stað.

# # # # # # # # # # # # #

Í gær stýrði ég sögugöngu um Elliðaárdalinn á vegum Orkuveitunnar. 95 mættu - sem er auðvitað of mikið fyrir sögugöngu af þessu tagi. Veðrið var hins vegar frábært og ég held að fólk hafi skemmt sér vel.

Ég einbeitti mér að þáttum sem tengjast uppbyggingu Reykjavíkur á tuttugustu öld og tæknisögunni. Lét hins vegar þjóðsögur og annan gamlan fróðleik liggja á milli hluta. T.a.m. stoppaði ég ekki við Skötufoss, þar sem manninum var drekkt í fyrndinni. Spurning um að fara með Moggabloggið þangað?

Georgíska tengingin

Tuesday, July 3rd, 2007

Minjasafninu hefur borist bréf. Það er frá hópi georgísks kvikmyndatökufólks sem vill endilega mæta og taka upp á safninu fyrir alhliða menningarsjónvarpsþátt helgaðan Íslandi.

Nú finnst mér í sjálfu sér ekkert skrítið við að hróður minjasafnsins hafi borist til Kákasus. Skringilegra er að hópurinn biður mig um að útbúa einhvers konar boðsbréf sem gefin yrðu út á nöfn og vegabréfsnúmer 4-5 manna tökuliðs…

Er þetta ekki eitthvað gruggugt? Eftir að kínversk “viðskiptasendinefnd” í boði Orkuveitunnar o.fl. íslenskra fyrirtækja gufaði upp fyrir nokkrum misserum hafa menn farið að vera tortryggnari gagnvart svona erindum. Hvers vegna þarf hópur Georgíumanna á svona meðmælabréfi að halda? - Ætti ég kannski að benda þeim á Geir Ólafsson í staðinn?

Lysenko

Monday, July 2nd, 2007

Nú er ég ekki líffræðingur og hef ekki lesið neitt sérstaklega mikið um sögu líffræðinnar - en er heimildarmynd Sjónvarpsins í kvöld (The Ghost in Your Genes) ekki efnislega að boða það sama og Lysenko um erfðir áunninna eiginleika?

Alræmdasta kenning vísindasögunnar er e.t.v. að ganga aftur…

Eru ekki vísindin dásamleg!

Pissað í laugina

Monday, July 2nd, 2007

Fór á pöbbarölt í gær ásamt Stebba Hagalín. Stoppuðum m.a. á tveimur börum sem ég hafði aldrei komið á fyrr. Annar var sportbarinn sem er í sama húsi og Vegas (er það við Vitastíg?) Það virðist notalegur staður til að horfa á fótbolta og þjónustan hlýleg. Undir lokin litum við svo inn á Boston - eða e-ð álíka, sem er í nánast ómerktu húsi við hliðina á Dillon.

Á barnum þar á milli heyrðum við á tal Íslendinganna á næsta borði við erlenda afgreiðslustúlku, sem gekk einkum út á að lofsyngja íslensku sundlaugarnar. Eftir langa mærðarrullu um þetta yndislega sundlaugavatn urðum við að blanda okkur í umræðurnar. Við sögðumst furða okkur á þessum sið að pissa í vatnið. Íslendingarnir spurðu okkur hvað í ósköpunum við værum að meina og hvaðan við kæmum? Við sögðumst vera austurrískir túristar í tveggja vikna fríi. (How do you like Iceland? - Very nice. - And the girls? - Well, they are good in football aren´t they? The men are handsome though.)

Aftur barst talið að sundlaugunum. Íslendingarnir þrættu fyrir að nokkur maður pissaði í laugarnar, en við staðhæfðum að börn og margir eldri borgarar gerðu það - einkum í heitu pottana. Sögðum að það sæist á sælusvipnum á þessum hópum.

Þau íslensku létu sig samt ekki. Á Íslandi pissar ekki nokkur maður í laugarnar - eða heitu pottana. Það getur verið að fólk geri það í Austurríki, en ekki á Íslandi. Ónei.

Í sagnfræðinni í Háskólanum var okkur kennt allt um kenningar Renans um þjóðerni -að það að vera þjóð snerist að miklu leyti um sameiginlegar minningar, en ekki síður um sameiginlega gleymsku. Getur verið að kjarni íslensks þjóðernis felist í að þræta fyrir það við útlendinga að börn og gamalmenni pissi í heita pottinum í sundlauginni?

Megi krakkarnir og gamlingjarnir pissa næst á Moggabloggið.