Gróðapungar
Björgvin G. Sigurðsson tjáði sig í hádegisfréttunum um söluna á Hitaveitu Suðurnesja. Grípum niður í fréttina á vef RÚV:
Ekki kemur til álita að mati Björgvins G. Sigurðssonar, viðskiptaráðherra að einkafyrirtæki eigi meirihluta í orkufyrirtækjum sem selja raforku til almennings. Hann segir að vatns og rafmagnssala til almennings eigi ekki að vera ágóðastarfssemi. Hins vegar komi til greina að einkafyrirtæki framleiði orku til stóriðju.
Seinna í fréttinni (sem er reyndar sleppt í endursögn RÚV-vefsins) sagði Björgvin að engin ástæða væri þó til að láta kaup Geysis Green á hlut ríkisins í Hitaveitunni ganga til baka - enda sé þar ekki um meirihlutaeign að ræða.
Þetta á ég dálítið bágt með að skilja. Nú hlýtur Geysir Green að kaupa hlutabréf í Hitaveitu Suðurnesja í hagnaðarskyni, hvort sem um er að ræða meirihluta- eða minnihlutaeign. Öll eignaraðild fyrirtækisins í HS hlýtur að vera í ábataskyni. Er það ekki augljóst?
Ef viðskiptaráðherra hefur það prinsip að hagnaðarvon megi ekki ráða ferðinni við rekstur veitukerfa (sem er gilt sjónarmið) þá hlýtur hann að vera á móti allri eignaraðild einkafyrirtækja. Annað er rökleysa.
Megi Moggabloggið flækjast í kratarökvísi.

July 13th, 2007 at 15:12
Fjarskiptalínur Símans, OR og fleiri eru auðvitað lítið annað en veitukerfi. OR feðraði til dæmis sérstaka rekstrareiningu, sem einmitt hlaut heitið “Fjórða veitan”. Sjá: http://www.or.is/Forsida/Frettastofan/Nanar/372
En þar fyrir utan er það í sjálfu sér rétt að fá rök mæla gegn því í samfélagi og atvinnuumhverfi frjálsrar samkeppni, að undanskilja vatns- og rafmagnssölu til almennings frá annarri veitusamkeppni.
Hlutafélagavæðing á (og mun) alltaf að leiða til einkavæðingar á endanum. Annað er þrugl.