Ofstjórnun

Hlustaði á Stöðvar 2-fréttirnar í bílnum á leið heim úr búðinni. Össur Skarphéðinsson var í viðtali að ræða um ofstjórnunarþjóðfélagið Ísland. Kveikjan var sú að ráðherrann hafði heyrt frétt um veitingamann á Laugaveginum sem var skikkaður til að færa til borð sem hann hafði sett í óleyfi út á götu.

Össur setti á mikla ræðu um ofstjórnunarþjóðfélagið sem hindraði fólk í að njóta þeirra fáu sólardaga sem gefast hér á landi. Svo notaði hann tækifærið til að sparka í rónana sem drekka áfengi á Austurvelli, meðan hið opinbera stöðvar almenning í að fá sér ölkrús utandyra örfáa daga á ári. Vildi ráðherra íhuga það að breyta lögum að þessu tilefni.

Þarna missti ég raunar þráðinn - enda vissi ég ekki betur en að allir barir bæjarins sem hafa borð utandyra seldu bjór. Eru einhver dæmi um það að lögreglan stöðvi kaffi- og veitingahús í að selja gestum sínum bjór á gangstéttinni fyrir utan viðkomandi staði? Eða er Össur Skarphéðinsson að delera? Það væri þá ekki í fyrsta sinn.

Sömuleiðis væri gaman að vita hvaða veitingahús á Laugaveginum hafi verið skikkað til að færa til borð fyrir framan staðinn. E.t.v. var það barinn neðst á Laugaveginum, rétt fyrir ofan gatnamótin við Skólavörðustíg? Þar varð ég um daginn vitni að því þegar kona með tvíburakerru komst ekki leiðar sinnar eftir gangstéttinni vegna borða sem stóðu nánast við gangstéttarbrún og sem almennir vegfarendur þurftu að skáskjóta sér framhjá. Er það merki um fasískt ofstjórnunarsamfélag að amast við slíku?

# # # # # # # # # # # # #

Á morgun, föstudag, kl. 17:30 verð ég spyrill á pöbba kvissinu á Grand rokk. Þangað mæta allir góðir menn.

8 Responses to “Ofstjórnun”

  1. Eiríkur Örn Says:

    Mér var einu sinni, fyrir nokkrum árum, neitað um afgreiðslu á bjór á Café París úti á stétt, og sagt ég þyrfti að fara inn úr sólskininu fyrir slíkar munaðarvörur - í sólinni gæti ég kælt mig niður með kaffi. Síðan hef ég reyndar margoft séð fólk drekka bjór þar fyrir utan.

    En mér var svo sem nær að vera að sækja þetta smáborgaralega dúkkuhúsacafé.

  2. SHIFT-3 Says:

    Úr því að aðrir fá að að lepja bjórinn utandyra en þú ekki, Eiríkur, finnst mér liggja beint við að álykta að ekki sé um stefnu staðarins að ræða heldur ákvörðun sem beinist gegn þér persónulega.

    Kannski olli bókmenntafræðilegur ágreiningur? Gömlu módernistarnir sem hittast þarna um helgar vilja kannski ekkert af ykkur póstmódernistunum vita?

  3. kolbeinn Says:

    Ég held að það hafi verið tilfellið að fyrir breytingar á Café París var eingöngu boðið upp á módernískan bjór. Eftir breytingar hefur úrvalið batnað og nú er líka hægt að fá pómó bjór þar, ágætis bragð en nokkuð óráðið. Raunar svo að þegar ég hafði stungið úr flöskunni var ég engan veginn viss um að ég hefði yfir höfuð verið að drekka bjór. Þegar ég fór að efast um tilvist bjórs yfir höfuð lét ég það gott heita og rölti heim.

  4. josefine Says:

    Megi hinar sorglegu leifar af Moggablogginu drukkna í ofurruglinu í Össuri Skarphéðinssyni. Á hvaða te-skoti er hann eiginlega?

  5. SHH Says:

    Það er náttúrlega brandari að einhverjum detti yfirhöfuð í hug að ræða við jafnaðarmann um ofstjórnunarþjóðfélagið — nema til að húðskamma viðkomandi. Jafnaðarmenn fundu þetta konsept upp. Kommon! Án vafa er er hægt að rekja um það bil 80-90% allra reglugerða og lagabálka þráðbeint til jafnaðarmanna (sem reyndar dreifast í alla flokka hér á landi). Varla mögulegt að finna ótrúverðugari viðmælanda en jafnaðarmann þegar kemur að því að hneykslast á ofstjórnunarþjóðfélaginu. Svipar til þess að spjalla við mývarg um geitungafár.

  6. Elías Says:

    Það er ójafnaðarmönnum líkt að rekja allt böl til jafnaðarmennskunnar.

  7. Nanna Says:

    Það þarf sérstakt leyfi til vínveitinga utandyra skv. reglugerð:

    ,,Heimilt er að veita leyfi til veitinga áfengis utandyra, þó ekki lengur en til kl. 22.00.Þrátt fyrir þetta má veita leyfi til útiveitinga áfengis allt til kl. 23.30 á landnotkunarreitum K1.1, A1.2, V1.1 og V2.1 innan miðborgar, svo og við sérstakar aðstæður, s.s. vegna mikillar fjarlægðar frá annarri byggð. Sækja skal sérstaklega um slíkt leyfi.”

  8. SHH Says:

    Ekki ALLT böl (og reyndar frekar fátt böl), heldur bara ofstjórnunarþjóðfélagið, sem sannarlega er skilgetið afkvæmi jafnaðarmanna.

Leave a Reply