Álftirnar

Stöð tvö flytur frétt af því að álftaparið sem haldið hefur til í lóninu fyrir ofan Árbæjarstíflu hafi ekki sést í sumar. Enginn veit hvers vegna.

Þegar líður á fréttina er látið að því liggja að þetta hljóti að tengjast pólskum eða litháískum farandverkamönnum… vegna þess að tja, Pólverjar éti svani?

Þessi frétt er á pari við furðufréttina sem birtist fyrir nokkrum misserum þess efnis að mávur hefði étið laxahjón og Orkuveitan hafi ekki gert neitt í málinu.

Megi Pólverjarnir nota Moggabloggið í svanagúllasið.

4 Responses to “Álftirnar”

  1. Nanna R Says:

    Ég á einmitt uppskrift að svanagúllasi. Ef einhvern skyldi vanta … Með gulrótum, lauk og kastaníuhnetum (kannski hægt að nota Moggabloggið í staðinn fyrir kastaníurnar). En það er vísast það eina sem hægt væri að nota fullorðnar álftir í. ,,The flesh of the old birds is hard and ill tasted,” segir Simmonds í The Curiosities of Food og er sennilega alveg rétt hjá honum. Annað mál með ungfugla, kannski.

  2. Mamma Says:

    Mér finnst nú ekki fallega hugsað að ætla grey Pólverjunum að kjamsa á Moggablogginu. Það er örugglega frekar seigt undir tönn (jafnvel seigara og bragðverra en fullorðnar álftir!)

  3. josefine Says:

    Fyrir um 4 dögum síðan voru álftir í hólmanum með unga, sennilega þær sömu og hafa verið þar í allt sumar. Hvort það var par sem “var búið að vera þar í mörg ár” veit ég ekki en einhvern veginn sé ég nú ekki fyrir mér pólverja vaðandi yfir í hólmann og handsama tvær vel fleygar fullorðnar álftir og unga.- Gæti kannski verið að þær hafi ekki nennt að hanga þarna lengur sökum hávaða og truflunar frá stórvirkum vinnuvélum borgarinnar sem er að ryðja breibraut norðan við árnar svo skokkliðið geti hlaupið á malbiki? og auka þar með enn á ágang og truflun á fulgalífið þarna við árnar.

  4. Þorbjörn Says:

    Mæli með sögunni af álftinni sem var soðin á Jökuldal og sagt er frá í einni af bókum Hákons Aðalsteinssonar. Hef reyndar ekki lesið hana þar því það er miklu skemmtilegra að heyra hana mælta.

    Allavega fannst hún ári eftir að hún var soðin og þá var tófa búin að naga öll bein innan úr henni. Kjötinu vann hún ekki á.

Leave a Reply