Kjarkur

Við í famelíunni á Mánagötunni teljumst heiðingjar samkvæmt Þjóðskrá. Það þýðir að við beygjum okkur ekki undir þrælasiðferðið sem Kristlingarnir boða, þvert á móti erum við vinir vina okkar og óvinir óvina okkar. Markmiðið er að ala heimasætuna upp í þessum anda.

Nú skal viðurkennt að Ólína er ekki kjarkaðasta barnið sem sögur fara af. Hún er raunar hálfgerð raggeit, sem myndi aldrei hætta sér út í ófærur. Þetta er ótvíræður kostur í uppeldi, því við höfum aldrei þurft að hafa miklar áhyggjur af því að barnið hætti sér í miklar ógöngur, þótt hún sé látin eftirlitslaus í stundarkorn.

Um daginn gladdi stelpan þó hjarta okkar og staðfesti að hún hefur herra- en ekki þrælasiðferði.

Við vorum stödd í Kjarrhólmanum hjá annarri ömmunni og leiðin lá út á róluvöll. Ólína sá rennibrautina úr fjarska og byrjaði strax að þylja möntruna: “Ólína fara í rennibraut” (bara aðeins smámæltara).

Eftir því sem við nálguðumst rennibrautina jukust brýningarnar. “Ólína fara í rennibraut”. Þegar komið var upp að brautinni tók barnið til við að klifra upp og þuldi í sífellu: “Ólína geta, Ólína geta, Ólína geta…” - þar til komið var upp í topp. Þá leit hún niður og sá að það var fjári langt til jarðar.. “Ólína vilja ekki” - og svo var klifrað aftur niður.

Svona gekk þetta nokkrum sinnum. “Ólína geta, Ólína geta - Ólína vilja ekki”. Aldrei renndi hún sér niður, alltaf sneri hún við á miðri leið - en eftir stendur að Ólína GETUR rennt sér niður - hún VILL bara ekki gera það…

Þetta er í hnotskurn munurinn á herra- og þrælasiðferði.

# # # # # # # # # # # # #

Leikir kvöldsins í Suður-Ameríkukeppninni voru furðuójafnir. Er alvarlega að spá í að vaka eftir leik Uruguay og Brasilíu á þriðjudagskvöld, en verð þá varla til stórræða í vinnunni á miðvikudaginn.

7 Responses to “Kjarkur”

  1. Haukur Says:

    Vá! Lítið bleikt ofurmenni.

  2. Jón Hnefill Says:

    Hva !!!

    Ekkert skot á morgunblaðs bloggið ?

    Ekki er þér farið að förlast Stefán ?

  3. SHIFT-3 Says:

    Njah, ákvað að gefa lesendum færi á að semja sína eigin bölbæn hér í athugasemdakerfinu í staðinn.

  4. kolbeinn Says:

    Megi Moggabloggið ekki þekkja eigin takmarkanir og fara alla leið í allt of stórri rennibraut og verða sér að voða vegna þrælasiðferðis síns.

  5. Þórir Hrafn Says:

    Moggabloggið VILL skipta máli

    Moggabloggið GETUR það hins vegar ekki

    Kveðjur :)

  6. Davíð Þór Says:

    Megi allt Moggablogg verða: “Internal Server Error
    The server encountered an internal error or misconfiguration and was unable to complete your request. Please contact the server administrator, webmaster@mbl.is and inform them of the time the error occurred, and anything you might have done that may have caused the error. More information about this error may be available in the server error log.”

  7. Magnús Says:

    Við lifum á tímum þegar bölbænir um tæknilega örðugleika eru með þeim ógnvænlegustu.

Leave a Reply