Jarðfræði sem bragð er að
Tuesday, May 1st, 2007Um daginn fékk ég bráðskemmtilegt rit að gjöf. Það fjallar um jarðsögu Skotlands. Frásögnin er tengd við viskýframleiðslu. Þannig er jarðmyndunum tiltekinna svæða lýst og útskýrt hvernig þær hafi áhrif á bragð tiltekinna viskýtegunda. Þetta er snilldarhugmynd. Sé samt ekki à fljótu bragði hvernig samsvarandi Ãslensk bók gæti verið.
En úr þvà að rætt er um viský…
# # # # # # # # # # # # #
Eftirlætis viskýið mitt er Ardbeg frá Islay. Það er ekki allra. Islay-viskýin hafa lÃklega rammasta móbragð allra slÃkra drykkja og Ardbeg hefur löngum stært sig af þvà að hafa mesta mókeiminn. Reyndar er það mjög à tÃsku à viskýbransanum um þessar mundir að nota ótæpilega af mó. (Skyldu þeir ekki verða uppiskroppa með hann bráðum?)
Standard Ardbeginn er tÃu ára. Þær flöskur sem maður kaupir à dag af tÃu ára-drykknum eru hins vegar orðnar harlagamlar. Brugghúsið hætti nefnilega starfsemi árið 1981 og hefur verið að selja gamla lagera upp frá þvÃ.
1997 hófst bruggun að nýju. Það þýðir að fyrsti nýi árgangurinn af 10 ára viskýi kemst á markað 2008.
Hinir nýju eigendur voru fljótir að átta sig á þvà að nýta mætti eftirvæntinguna sem þetta skapaði à auglýsinga- og markaðsskyni. Ãrið 2004 var byrjað að selja Ardbeg Very Young (ég á eina à skápnum), sem var ungur ruddi og ódrekkandi nema à vatni – en bragðið var samt ótvÃrætt Ardbeg. à fyrra var átta ára Ardbeg sett á markað undir heitinu “Ardbeg Still Young”.
Nú sé ég að byrjað er að selja à takmörkuðu upplagið “Ardbeg Almost There”, nÃu ára gamlan drykk… Ekki myndi maður slá hendinni á móti slÃkri flösku.
à ljósi þessa má búast við að Ardbeg verði markaðsett af fullum krafti á næsta ári – sem gefur vonir um að þvà skoli à hillurnar hér à ÃTVR. Þar sem Ardbeg er à eigu Glenmorangie, ætti umboðsaðilinn fyrir þá tegund að vera með Ardbeg á sÃnum snærum. Gaman væri að vita hvaða aðili það er – en það myndi ég væntanlega geta fundið út ef vefur ÃTVR væri ekki að mestu óvirkur fram à júnà þegar einhver kerfisuppfærsla verður búin. Urr…
Og nei – ég er ekki að drekka Ardbeg með þessari færslu. Andinn à glasinu er Bunnahabhain.
# # # # # # # # # # # # #
Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar komu à dag. Fullt af flottum kortum af fyrirhuguðum hringtorgum hér og þar um landið.
Megi Moggabloggið lenda undir veghefli.
