Archive for May, 2007

Umferðarmenning

Tuesday, May 8th, 2007

Er ég einn um að finnast skrítin B&L-útvarpsauglýsingin þar sem Bubbi ræðir um kosti einhvers öflugs smábíls sem mig minnir að heiti Hyundai Getz. Þar segir rokkgoðið m.a. í langri romsu e-ð á þessa leið: “Þér stafar engin ógn af hjólreiðamönnum.”

Uhh – hvað merkir þetta? Á Bubbi við að hann mun fletja út alla hjólreiðamenn sem þvælast fyrir honum í Ártúnsbrekkunni? Tilhugsunin er amk. vibbaleg.

Megi Bubbi aka yfir Moggabloggið þvert…

Óverdósað á Kardimommubænum

Tuesday, May 8th, 2007

Getur verið að barnasögur Thorbjörns Egners stjórni aðgerðum íslenskra lögregluyfirvalda?

Nú hefur hópur sígauna verið sendur úr landi, að því er virðist fyrir að spila á harmonikku fyrir utan súpermarkaði. Sjálfur hef ég gefið þessum sultarlegu músíköntum eitthvað klink í nokkur skipti og geri því fastlega ráð fyrir að verða kallaður til yfirheyrslu.

Annars upplýsir lögreglan að hana gruni að Rúmenahópurinn hafi átt að undirbúa komu glæpagengja til landsins. Hvernig undirbýr maður komu glæpagengis með harmonikku að vopni? Spilar maður kannski svo seiðandi og dáleiðandi tónlist að fórnarlömbin leggja frá sér veskin eða gleyma að læsa bílunum sínum?

Nei, ætli skýringuna sé ekki að finna í Kardimommubænum? Hvað störfuðu Kasper, Jesper og Jónatan áður en þeir leiddust út á braut glæpa? Jú, þeir voru tónlistarmenn!

Megi ljónið úr Kardimommubænum bíta af Moggablogginu stórutána.

Mánudagskvöldið

Sunday, May 6th, 2007

Plögg:

Í hugum sumra eru stjórnmál eins konar borðspil, líkt og Matador (sem því miður nefnist Monopoly í nýjustu útgáfum). Fáir hafa þó gengið jafnlangt í þessu efni og útgefendur “Kjördæmaspilsins” frá árinu 1959. Það ár var í fyrsta sinn kosið eftir nýrri kjördæmaskipan og gátu spilafíknir stjórnmálaáhugamenn tekið forskot á sæluna með hjálp þessa – tja, óvenjulega borðspils.

Ekki er með góðu móti hægt að kalla Kjördæmaspilið skemmtilegt spil. Ef það væri sjónvarpsmynd, yrði hún væntanlega sögð “í léttum dúr”.

Loksins fær Kjördæmaspilið uppreisn æru, því mánudagskvöldið 7. maí kl. 20 verður efnt til pólitísks spilakvölds í húsnæði Vinstri grænna í Suðurgötu. Valdir hafa verið fyrirliðar (þinglóðsar) fyrir hvern gömlu fjórflokkanna og geta gestir og gangandi skipað sér í sveit með þeim. Meðan á spilamennsku stendur munu fyrirliðarnir sjá um stjórnmálaskýringar í anda sjötta áratugarins. Þeir eru:

Ármann Jakobsson: Framsóknarflokki

Björn Reynir Halldórsson: Sjálfstæðisflokki

Stefán Pálsson: Alþýðuflokki

Sverrir Jakobsson: Alþýðubandalagi

Heitt á könnunni. Allir velkomnir.

# # # # # # # # # # # # #

Í dag kvöddum við Luton-menn næstefstudeild með stórum skelli. Við náðum þó ekki að tryggja okkur trésleifina – því Leeds lenti í greiðslustöðvun og tók því á sig stigafrádrátt upp á 10 stig.

Jæja, Luton-Leeds verður greinilega stórleikur næsta tímabils…

# # # # # # # # # # # # #

Í morgun fór ég í fótbolta með vöskum hópi Akureyringa. Meðal mótherjanna var frægur júdókappi og höfundur skemmtiefnis fyrir sjónvarp. Hann er tröll að burðum.

Nú get ég amk stært mig af því að hafa farið í tæklingu við frægan íþróttagarp og sloppið úr henni óbrotinn.

Megi Venni páer lumbra á Moggablogginu.

Skosku kosningarnar

Sunday, May 6th, 2007

Ég skulda lesendum þessa bloggs úttekt á niðurstöðum kosninganna í Skotlandi á fimmtudag.

Framkvæmdin var klúður og allar túlkanir á niðurstöðunum taka vitaskuld mið af því. Þó var eitt og annað markvert sem gerðist.

Í fyrsta lagi er það sigur SNP. Leiðtoginn, Alex Salmond, er alltof svalur. Hann bauð sig fram í jaðarkjördæmi, þar sem SNP hafði lent í þriðja sæti síðast – og vann auðveldlega. Svona gera bara töffarar. Dæmin sem koma upp í hugann í ísl.pólitík eru fá. Þó helst Ingibjörg Sólrún í 8.sæti R-listans, Jón Baldvin í 3ja sæti Alþýðuflokks 1995 eða Óli Jó hjá Framsókn í Rvík í gamladaga.

Bretar skilja ekki fjölflokkalýðræði – þess vegna álíta þeir að stærsti flokkurinn í fjölflokkakosningum sé sjálfkrafa sigurvegari. Mér er til efs að þeir höndli þá tilhugsun að SNP sem stærsti flokkur muni ekki leiða ríkisstjórn. Reyndar er lífvænlegasta stjórnin: SNP, LibDem og Grænir – vissulega með minnsta meirihluta.

Úrslit kosninganna í Skotlandi á fimmtudaginn eru ekki vendipunktur í samskiptum Englendinga og Skota – en þau gætu orðið upphafið að endalokunum. Ég hef lengi spáð því að stóru skilin í þessum samskiptum myndu eiga sér stað daginn sem mismunandi flokkar réðu ríkjum í Edinborg og Lundúnum. Nú gæti sú orðið raunin. Næstu mánuðir verða því gríðarlega spennandi.

# # # # # # # # # # # # #

Luton mun ekki lenda í neðsta sæti í sinni deild eftir að Leeds lenti í greiðslustöðvun og fékk tíu stiga frádrátt. Með sigri á Sunderland í lokaumferðinni gætum við jafnvel skotið Southend aftur fyrir okkur líka. Megi Moggabloggið lýsa yfir gjaldþroti hið fyrsta!

Röddin

Friday, May 4th, 2007

Fór síðdegis í útför Péturs Péturssonar þular. Pétur heitinn var kvæntur Birnu afasystur minni.

Auk þess að þekkja Pétur úr fjölmiðlum og fjölskylduboðum hafði ég nokkrum sinnum samband við karlinn til að spyrja hann út í hin og þessi sagnfræðitengd efni. Það gekk nú yfirleitt svona og svona – samtölin við Pétur voru aldrei stutt og ekki vantaði upplýsingarnar, en þær snerust ekki endilega um það sem um var spurt heldur fremur áhugamál hans hverju sinni. Þetta voru þó ávallt skemmtileg samtöl.

Á landsráðstefnu SHA fyrir nokkrum árum heiðruðum við Pétur sérstaklega fyrir framlag hans í herstöðvabaráttunni. Það þótti honum vænt um og ég held að þakkarræða hans hafi orðið flestum viðstöddum minnisstæð.

Kosninganótt

Thursday, May 3rd, 2007

Það er kosninganótt á Mánagötunni. Sit við tölvuna og reyni að fylgjast með skosku kosningunum í gegnum netið. Þær gætu orðið sögulegar ef SNP nær góðum árangri.

Kl. 23:40 eru engar tölur komnar (Bretarnir birta aldrei annað en lokatölur úr hverju kjördæmi), en helstu tíðindin eru þau að óður maður með golfkylfu hafi ráðist inn á talningarstað í Edinborg.

Megi Moggabloggið fá heimsókna frá þessum náunga.

Ósýnilegasti frambjóðandinn?

Thursday, May 3rd, 2007

Hver skyldi vera ósýnilegasti frambjóðandi kosningabaráttunnar? Vel að merkja, þá á ég ekki við e-a kandídata neðarlega af listum og heldur ekki þingmenn sem voru lítið í sviðsljósinu fyrir. Þannig eru það ekki sérstök tíðindi að Einar Már Sigurðsson, Þuríður Bachman eða Kjartan Ólafsson séu lítið í spjallþáttum sjónvarpsstöðvanna eða á flettiskiltum á Sæbrautinni. En hvað með fólkið sem hefur áður verið áberandi eða sem ætla mátti að yrði í framvarðasveitinni en sést ekki í fjölmiðlum eða auglýsingum?

Nokkur nöfn koma strax upp í hugann:

* Guðfinna S. Bjarnadóttir var kynnt til sögunnar sem nýstirni íslenskra stjórnmála eftir prófkjör íhaldsins. Hvar er hún núna?

* Konurnar sem röðuðu sér í og við baráttusætin hjá Sjálfstæðisflokknum í borginni – Sigríður Andersen, Dögg Pálsdóttir…

* Allir frambjóðendur Íslandshreyfingarinnar aðrir en Ómar, Margrét og Ásta Þorleifsdóttir. Er Jakob Frímann ekki á landinu?

* Efstu þrjú sætin hjá Samfylkingunni í SV-kjördæmi, sérstakega Þórunn Sveinbjarnardóttir. Er ekki frá því að fjórða og fimmta sætið – sem þó eiga hverfandi möguleika á kjöri – séu meira áberandi en þessi þrjú.

* Róbert Marshall var allt í öllu í kringum prófkjörið á Suðurlandinu og tíður gestur í sjónvarpi. Hvar er hann núna?

* Allir aðrir 2.sætisframbjóðendur Framsóknar en Bjarni Harðarson og flettiskiltakóngurinn Samúel Örn.

Fleiri uppástungur? Hvern velja lesendur sem ósýnilegasta frambjóðandann? Svarið í athugasemdakerfið.

Megi Moggabloggið verða 8. þingmaður Suðurkjördæmis netheima.

Það er engin leið að hætta…

Wednesday, May 2nd, 2007

Baráttusamtök aldraðra og öryrkja (og til skamms tíma flugvallarandstæðinga) segjast vera hætt við að bjóða sig fram til þings í vor í NA-kjördæmi. Þetta hafa allir fjölmiðlar étið upp.

Nú er ég ekki með kosningalögin nákvæmlega í kollinum – en þetta fæ ég ekki séð að gangi upp. Framboðinu var skilað inn á réttum tíma og nú er framboðsfrestur útrunninn og landskjörstjórn búin að birta auglýsingu um framboðin.

Það er ekkert sem heimilar framboðum að draga sig til baka með þessum hætti og eðlilegt að líta svo á að það sama gildi um heil framboð og t.d. einstaklinga sem ekki geta sagt sig af lista eftir að framboðsfrestur er liðinn. Það eru dæmi um að fólk hafi þannig setið á listum gegn eigin vilja og það sama gildir væntanlega nú. Baráttusamtökin eru í framboði hvort sem þeim líkar betur eða verr.

Megi Moggabloggið festast í lagaflækjum.

Kaffi á Borginni

Wednesday, May 2nd, 2007

1.maí er kaffidrykkjudagurinn mikli. Þar er hægt að velja úr fjölda kaffiboða og oftar en ekki slær maður til og sest inn á 3-4 stöðum og þjáist svo af koffíneitrun næstu daganna.

SHA hefur vit á að skipuleggja morgunkaffi og situr eitt að tímanum fram að kröfugöngu. Fyrir vikið er alltaf smekkfullt hjá okkur í kaffinu og nóg af vinum og kunningjum. Þar sem 1. maí er einnig stofndagur FRAM, er sömuleiðis hægt að ganga að kaffi og kökum vísum í FRAM-heimilinu þennan daginn. Í gær sleppti ég því samt að fara í Safamýrina.

Kaffiframboðið eftir göngu veltur nokkuð á því hvort um kosningaár er að ræða. Þegar engar eru kosningarnar standa verkalýðsfélögin fyrir stærstu veislunum. BSRB-kaffið á Grettisgötunni er sígilt. Þá er líka afar athyglisvert að líta við hjá gömlu kommunum í MÍR. Þangað hef ég raunar ekki komið á 1. maí frá því í menntó.

Kosningavorin eru stjórnmálaflokkarnir hins vegar í aðalhlutverki. Í Alþýðubandalaginu var alltaf hópur fólks sem sá Hótel Borg í einhverjum hillingum og vildi hvergi annars staðar vera á 1. maí. Þetta fólk kom því til leiðar að fyrsta verk nýs kosningastjóra var að bóka Borgina á 1. maí. Þegar sú bókun var í höfn töldu viðkomandi nánast að sigurinn í kosningunum væri í höfn.

Í hvert sinn komu hins vegar sömu gallarnir í ljós. Hótel Borg, með sín risastóru borð, tekur sárafáa í sæti og þjónustan er fáránlega hæg. Stórir hópar fólks þurfa frá að hverfa þegar 1.maí-kaffið er haldið á Borginni og enda jafnvel á kosningaskrifstofum hinna flokkanna.

Hluti af þessari Hótel Borg-rómantík skilaði sér inn í VG. Fyrir vikið hefur flokkurinn tvisvar eða þrisvar tekið Borgina á leigu á 1.maí – og í öll skiptin urðu menn jafnhissa á að enginn kæmist fyrir, gestirnir fengju hvorki vott né þurrt og að þjónustan væri í molum.

Strax í janúar fór ég niður á skrifstofu VG til að afstýra því að Borgar-fíaskóið yrði endurtekið. Bætt var inn á minnislista kosningabaráttunnar: “Aldrei aftur fokkíng HB!”

Það hreif. Í gær var 1.maí-samkoman á NASA, sem er skárra hús þrátt fyrir alla sína galla. Þegar dagskráin var að mestu tæmd röltum við Steinunn yfir Austurvöllinn og rákum inn nefið hjá Samfylkingunni á Hótel Borg. Þar báru menn sig vel, en voru þó pínulítið aumir yfir að fáir hefðu komist inn og þjónustan verið í molum…

# # # # # # # # # # # # #

Leikmenn FRAM sýna það hér hvers vegna þeir ættu að halda sig við fótboltann.

Megi Moggabloggið fá þetta lag á heilann…

Tópasinn kvaddur

Tuesday, May 1st, 2007

Jæja, það er ljóst eftir daginn í dag að maður er hættur að éta Tópas.

Nákvæmlega hvernig kynningarstjóri sælgætisfyrirtækisins gat talið það vöru sinni til hagsbóta að ráða fólk til að trufla kröfugöngu verkalýðsfélaganna á 1. maí er nokkuð sem ég mun aldrei skilja.

Iss, Ópal er hvort sem er miklu betra nammi.

# # # # # # # # # # # # #

Ágæt vinkona leit við í dag og færði mér viský-flösku að gjöf. Og það enga smáræðis flösku… Highland Park 25 ára! Þetta er hiklaust gullmolinn í viskýskápnum.

Við Steinunn dreyptum á veigunum í tilefni dagsins – og þetta er magnaður drykkur.

Það sem gefandinn er ágætur Moggabloggari, ætla ég að sleppa Moggabloggsbölbæninni að þessu sinni.