Lok, lok og læs
Er ekki ástæða til að óska Jóni Magnússyni til hamingju núna? Nokkurn veginn eina áþreifanlega atriðið í hinni alræmdu útlendingastefnu Frjálslynda flokksins gekk út á að afar brýnt væri að virkja frestunarákvæði varðandi komu Rúmena og Búlgara hingað til lands.
Í kosningabaráttunni stóðu allir aðrir flokkar að því að skjóta niður málflutning Frjálslyndra í þessu efni og bentu á að furðulegt væri að nýta frestunarákvæði einmitt þegar þensla væri í landinu og nálega full atvinna - við þær aðstæður værum við sérstaklega vel í stakk búin að taka á móti nýjum hópum vinnandi fólks.
Hvað hefur breyst á mánuði úr því að ný ríkisstjórn gerir það eitt sitt fyrsta verk að loka á fólk frá þessum ágætu Balkanríkjum?
Reyndar verður undanþága frá þessu - Rúmenar og Búlgarir geta unnið hér ef þeir koma í gegnum starfsmannaleigur. Starfsmannaleiguvæðingin heldur áfram - að þessu sinni undir stjórn jafnaðarmanna. Óskaplega er það eitthvað ömurlegt.

May 30th, 2007 at 09:27
.. og bíddu .. hvað með Moggabloggið ?
May 30th, 2007 at 15:45
Megi Moggabloggið verða að sækja vinnu í gegnum starfsmannaleigu.