Síðasta greinin

Í dag birtist þessi grein eftir mig á Múrnum. Þetta verður væntanlega síðasti Múrpistillinn minn, en það er orðið talsvert langt síðan ég hætti í ritstjórninni. Ætli ég hafi náð meira en fimm greinum síðasta árið? Stundum var það vikuskammturinn í gamla daga.

4 Responses to “Síðasta greinin”

  1. Stefán Bogi Sveinsson Says:

    Er ekki nóg illt talað um Framsóknarflokkinn þó okkur sé ekki brigslað um að brjóta lög flokksins líka??

    Í lögum Framsóknarflokksins, grein 9.9. stendur:

    ,,Ef formaður flokksins hverfur úr embætti tekur varaformaður við störfum hans. Miðstjórn skal þá kjósa nýjan varaformann á næsta fundi sínum og gildir kjör hans til næsta flokksþings þar á eftir.”

    Mér finnst þér farið að förlast Stefán. Órökstutt og undarlegt Framsóknarhatur í röðum VG er farið að standa flokknum alvarlega fyrir þrifum. Þú gleymir því að VG vildi formlega, og sennilega óformlega líka, frekar starfa með Frjálslyndum í ríkisstjórn frekar en Framsóknarflokknum.

    Formaður flokksins þíns biðlaði ítrekað til Sjálfstæðismanna, í aðdraganda kosninga og eftir þær. Þú getur lýst þinni skoðun á þessu, en þú talar ekki fyrir munn VG. Flokkurinn vildi í stjórn með íhaldinu frekar en að mynda vinstristjórn og það er ekki hægt að tala sig neitt frá því.

  2. Stefán Says:

    Ég skal fúslega játa á mig vankunnáttu í lögum Framsóknarflokksins. Þess í stað tók ég mið af því hvernig þetta var gert síðast þegar formaður hvarf skyndilega úr embætti - þá var grein 9.9 kastað fyrir róða en þess í stað flýtt flokksþingi, sem er miklu rökréttari aðgerð.

    Almenna reglan í félagsstörfum er að varaformaður er staðgengill formanns í forföllum hans, en afsögn er ekki forföll og við slíkar aðstæður er eðlilegast að kalla saman þá stofnun sem á að kjósa formanninn lögum samkvæmt.

    Með þessu móti getur t.d. komið upp sú absúrd staða ef Guðni Ágústsson segir af sér formennsku á næstunni að formennskan kæmi í hlut miðstjórnarkjörins varaformanns um lengri tíma.

    Varðandi óvild Framsóknar og VG virðist mér hún vera vel gagnkvæm. Við teljum Framsóknarflokkinn ekki stjórntækan og formaður Framsóknar segir slíkt hið sama um VG. Enda gengur greinin sem þessi færsla fjallar um einmitt út á að biðja fólk um að hætta að rífast eins og B+S+V hafi verið möguleg. Hún kom aldrei til greina, enda vildu 80% kjósenda Framsóknar mynda stjórn með íhaldinu.

  3. Stefán Bogi Sveinsson Says:

    Þegar Halldór Ásgrímsson tilkynnti um að hann hyggðist hætta þá hætti hann ekki samstundis heldur boðaði miðstjórnarfundur til flokksþings þar sem kosinn var nýr formaður en Halldór lét af störfum.
    Jón Sigurðsson ákvað að hætta störfum samstundis og í þessu liggur munurinn. Miðstjórnarfundur getur samkvæmt lögum flokksins boðað til flokksþings hvenær sem er en eigi sjaldnar en á tveggja ára fresti. Hin meinta absúrd staða sem þú nefnir gæti því ekki enst lengur en í þann tíma. Líklega til hausts 2008 miðað við stöðuna í dag.
    Annars er þetta ekki bara lögfræði, heldur framsóknarlögfræði og því getur engum dauðlegum manni fundist þetta skemmtileg eða gáfuleg umræða :o)

  4. Stefán Says:

    Jú, ég verð reyndar að segja að mér finnst þetta vera skemmtileg umræða.

    Það er í mínum huga áhyggjuefni hvað stjórnmálaflokkar - og þá er ég ekki að tala um Framsóknarflokkinn sérstaklega - eru oft með mikil lausatök varðandi lög sín og reglur. Þannig er alsiða að færa aðalfundi/flokksþing/landsþing fram og til baka, eftir því sem talið er henta áróðurslega. Þetta er bölvaður ósiður.

Leave a Reply