Sprungurnar

Fyrir rúmlega einu og hálfu ári var eldhúsið á Mánagötunni tekið í gegn. Í leiðinni reif ég niður skáp milli eldhússins og gangsins svo eftir stóð stórt gat. Upp í þetta gat var múrað svo veggurinn yrði sléttur og fínn.

Núna er veggurinn farinn að springa. Svo sem ekkert stórvægilega og sprungurnar eru ekki margar - en þær lengjast og þeim fjölgar.

Auðvitað geta sprungur myndast af ýmsum ástæðum og það er ekkert óeðlilegt við að sprungur komi fram eftir nokkra mánuði í nýjum vegg, en við erum nokkuð viss um í hverju skýringin liggur: Höfðaborginni.

Eins og allir sem keyrt hafa fram hjá Borgartúninu vita, er þar kominn gríðarstór gígur í jörðina sem á að hýsa fáránlega stóran bílastæðakjallara og undirstöður fyrir skýjakljúfa. Þegar verið er að sprengja klöppina nötrar Norðurmýrin.

Árni bókbindari heitinn, sem bjó í húsinu á móti okkur, var öllum stundum úti í garðinum sínum og þekkti hvern krók og kima í þessum hluta hverfisins. Raunar var hann svo fróður um allt varðandi húsin í nágrenninu að fólk leitaði til hans varðandi ráð um hvar lagnir væri að finna o.þ.h.

Bókbindarinn fullyrti að fjöldinn allur af sprungum á sínu húsi og annarra væri afleiðing af Höfðaborgarsprengingunum. Við hin gátum svo sem ekkert sagt af eða á - ekki man ég hvaða sprungur var hvar að finna þegar ég flutti inn…

Nú búum við fjári langt frá sprengigígnum í Borgartúninu. Hvernig ætli ástandið sé þá hjá þeim sem nær eru? Í næsta nágrenni eru t.d. hús sem eflaust eru mörg hver með gamlar klóaklagnir. Það er ekki lítill biti fyrir húseiganda ef klóakið fer í sundur - og varla ber byggingarverktakinn nokkra ábyrgð.

Í ljósi þessarar reynslu er ég vægast sagt lítið spenntur fyrir “Hlemmi-plús”, hugmyndum um að ryðja burtu húsunum í Meðalholtinu (eða hvað þessi gata með gömlu ölgerðinni heitir) og koma þar upp háum húsum með miklum bílakjöllurum. Hver verða áhrifin af þeim sprengjukonsertum fyrir gömlu húsin í Norðurmýrinni sem sum hver eru orðin býsna lúin?

Megi Moggabloggið fara niður með einni dýnamíthleðslunni í Höfðaborginni.

9 Responses to “Sprungurnar”

  1. Þórdís Says:

    Mér er eiginlega drullusama um Moggabloggið í samanburði við þessar endalausu sprengingar í nágrenninu.

  2. Þórður Says:

    Ég hef lengi haft nokkuð blendnar tilfinningar gagnvart háhýsum. Oft eru þau síður en svo til prýði og ég er talsvert efins um að háhýsin í Borgartúninu verði eitthvert sérlegt augnayndi.

    En sprengingarnar munu þó taka enda einn góðan veðurdag. Ég er hins vegar hræddur um að Moggabloggið muni halda áfram að grassera lengi enn – tja, nema bölbænir Stefáns verði þeim mun magnaðri (ekki það að þær hafi verið neitt veimiltítulegar hingað til, en lengi má gott bæta)!

  3. Þórdís Says:

    Ég er algjörlega sammála síðasta ræðumanni um háhýsi. Þau hefur mér aldrei þótt rétt ð byggja í Reykjavík. Skuggahverfið er forljótt og á ekki eftir að skána, Borgartúnshverfið er forljótt og það sem byggt verður hér í nágrenninu af háhýsum (og lægri húsum sennilega líka) verður forljótt.

  4. Systa Says:

    Þetta hverfi verður ekki fallegt glerháhýsi á íslandi er svolítiðasnaleg. Húsið sem ég bý í á horni Mjölnisholts og Laugavegar hefur nötrað undanfarin ár og gerir enn og það eru ansi margar stórar sprungur komnar í veggi hjá okkur en allir fyrra sig ábyrgð á þetta sé sprengingum í Borgartúni að kenna.

  5. kolbeinn Says:

    Annað hvort byggjum við háhýsi í Reykjavík og þéttum þá byggð sem nú er fyrir og myndum þannig betri grundvöll undir almenningssamgöngur t.d., eða við dreifum lágreistari byggð enn víðar um borgarlandið, teygjum byggðina enn frekar út og fáum okkur fleir bíla.

    Svo er annað mál að það er ekki náttúrulögmál að háhýsi verði að vera ljót, þrátt fyrir að íslenskir arkítektar hafi það að leiðarljósi.

  6. djassmunkurinn Says:

    Miðað við ástandið á húsi númer 13 í Meðalholtinu, sem ég átti hlut í fyrir nokkrum árum, mun öll húsin við þá götu hrynja og verða að dufti þegar farið verður að sprengja fyrir Hlemmiplús í Þverholtinu.

  7. Finnbogi Says:

    Kolbeinn, það er vel hægt að þétta byggðina með því að byggja 3-4 hæða raðhúsablokkir (eða hvað maður kallar þær, ég á við svona fyrirbæri með 6-8 íbúðum í stigagangi og mörgum samföstum stigagöngum, jafnvel byggt í ferhyrning með garði í miðjunni) eins og sjást út um alla Evrópu en þekkjast varla hér heima nema í kringum Hlemm og á Hólavöllum.

    Gallinn við byggingu blokka og háhýsa til að þétta byggð hér heima er reyndar að meðan enn er gert ráð fyrir 1,7 bíl á íbúð þarf svo stór bílastæði í kringum húsin að nettóíbúafjöldi pro fermetra verður mun lægri en eðlilegt væri.

  8. Guðjón Erlendsson Says:

    Norðurmýrin var byggð á sínum tíma í mýri eins og nafnið bendir til. Því miður láðist verkfræðingum að “drena” mýrina og/eða að byggja undirsstöður sem tóku mark á aðstæðum. Húsin í Norðurmýri eru því öll í stanslausri hreyfingu. Þessi hreyfing stafar af vatnsmagni í mýrinni sjálfri, en á þurrum tímum skreppur jarðvegurinn samann, og þykknar upp í votveðratímum. Það eru til mjög dýrar aðferðir til að stöðva þessa hreyfingu á byggingunum, t.d. með því að bora niður steypusúlur og undirpinna undirsstöðurnar.
    Það eru engar líkur á að sprengingar í nágrenninu hafi áhrif á þetta.

    Til gamans ættir þú að ganga um Norðurmýrina og skoða steypta veggi og hús, sem í upphafi stóðu upprétt og jarðbundin.

    Allar bestu,

    Guðjón arkitekt.

  9. pallih Says:

    Ó.

    Þannig að það er ekki ljóta skrímslið í Brogartúninu sem ber ábyrgðina.

    Stefán býr einfaldlega í hjalli.

Leave a Reply