Bláir sokkar

Fékk í hendur 25 ára afmælisblað Knattspyrnufélagsins Vals. Á forsíðunni er mynd af Íslandsmeistaraliði Vals frá 1930.

Rak augun í að Valsmenn eru á þessum árum í bláum sokkum við rauða og hvíta búninginn. Er þetta upphaflegi búningurinn og hvenær skyldi það hafa verið aflagt?

Megi Moggabloggið lenda í vondum tískuráðleggingum…

9 Responses to “Bláir sokkar”

  1. Hrafn Says:

    Var ljósmyndatæknin komin svo langt að litamyndir voru komnar á þessum tíma þ.e. 1930?

  2. Stefán Says:

    Hér er um að ræða ljósmynd sem hefur verið lituð eftirá - eins og svo algengt var á þessum árum.

    Annars upplýsti vinnufélagi minn mig um að Valur hefði spilað í bláum sokkum fram á sjöunda áratuginn. Spurning um að taka það upp á ný?

  3. Sigurður Says:

    Sé litið á merki Vals, þá er það blátt til jafns við rauða litinn .
    Enda mikil hefð fyrir því (amk í seinni tíð) að æfingagallar og jafnvel varabúningar Valsmanna séu bláir.

  4. Elías Says:

    Autochrome Lumière kom á markað 1907 og var helsta litfilman þar til Kodachrome kom út árið 1935.

  5. Davíð Þór Says:

    Er Valur þá Framsokkaflokkurinn?

  6. Jón Brynjar Says:

    Það má við þetta bæta að fyrsti búningur Valsmanna var eins og landsliðstreyja Argentínu.

  7. kolbeinn Says:

    Ber að skilja það sem svo að þú ætlir ekki að blogga fyrr en þú færð svar við þeim spurningum sem þú setur fram í þessari afgömlu færslu þinni?

  8. Benedikt XVI Says:

    Ekki held ég að Moggabloggarar missi svefn vegna þessarar bölbænar. Vondar tískuráðleggingar!

  9. Arngrímur Says:

    Moggabloggið er vond tíska í sjálfu sér.

Leave a Reply