Týndur pólitíkus
Almennt séð er alltaf betra að hafa HJÁLM á hausnum - nema maður búi á Flateyri…
(Ókey - vondur djókur, en það þurfti bara einhver að láta hann flakka.)
Líf fólksins á Flateyri er í uppnámi. Aðalvinnustaðurinn stefnir í lokun og ekkert nema fjöldaatvinnuleysi blasir við. Að óbreyttu geta íbúarnir þó huggað sig við jarðgöngin til Ísafjarðar, án þeirra væru húsin þeirra alveg verðlaus.
Ég hef hlustað á nokkra umræðuþætti í útvarpi og sjónvarpi um stöðuna á Flateyri. Einar Oddur hefur vitaskuld verið tekinn tali. Einar Guðfinnsson, Kristinn H. Gunnarsson, Karl V. Matthíasson og Guðjón Arnar Kristjánsson sömuleiðis. En ég minnist þess ekki að nokkur hafi kallað til Illuga Gunnarsson.
Slíkt viðtal væri þó þeim mun áhugaverðara í ljósi þess að fyrir nokkrum vikum vað Illugi í viðtali við Jóhann Hauksson í Morgunhananum á Útvarpi Sögu. Hann var spurður talsvert út í kvótakerfið og áhrif þess á hinar minni sjávarbyggðir.
Illugi setti á langa tölu um reynslu sína frá Flateyri - hvernig menn hefðu hér fyrr á árum krafist sértækra aðgerða fyrir Vestfirði og kveinkað sér undan kerfinu. Með tíð og tíma hafi menn látið af barlómnum og væri Hjálmur á Flateyri glæsilegt dæmi um það hvernig fyrirtæki sem kynnu að laga sig að umhverfinu gætu dafnað.
Hvar er Illugi núna?
# # # # # # # # # # # # #
Fyrir margt löngu fetti ég fingur út í að fólk sem aldrei hefði sest á Alþingi titlaði sig varaþingmenn og nefndi Björn Inga, minn gamla félaga úr sagnfræðinni, sem dæmi um það. Bingi svaraði fyrir sig og benti á að landskjörstjórn hefði sent honum skipunarbréf upp á varaþingmennskuna. Þar með var ég kveðinn í kútinn.
Í dag fékk Steinunn svo skipunarbréf upp á að vera 2. varaþingmaður VG í Rvík-norður. Þrátt fyrir skjalið á ég bágt með að éta orð mín alveg ofan í mig. Einhvern veginn finnst mér það bara vera plat-varaþingmaður sem aldrei sest á þing. Hvernig er það annars með þennan Alþingisvef - hvers vegna er þar ekki að finna æviágrip varaþingmanna sem tekið hafa sæti? Í þessu þarf að vinna! Hér geta 2-3 góðir sagnfræðingar fengið aukapening!
Annars tek ég eftir því að landskjörstjórnarmenn hafa allir undirritað skipunarbréfin eigin hendi - væntanlega bæði frumritið í skjalasafn þingsins og eintakið sem fulltrúunum er sent. Það eru u.þ.b. 250 undirskriftir á mann!
Megi Moggabloggið fá bæði skrifkrampa og sinaskeiðabólgu.

May 23rd, 2007 at 02:41
Er sagnfræðingurinn ekki dottinn fulllangt ofan í söguna, Hjálmur hætti vinnslu fyrir 12-13 árum. Hjálmur var svo stór hluthafi í Kamb, en ég veit ekki stöðuna núna.
Er Kambur ekki einmitt að laga sig að umhverfinu og hætta á meðan þeir eiga fyrir skuldum, í stað þess að fara með allt í þrot og rugl. Ég sé ekki betur en Illugi hafi haft á réttu að standa.
May 23rd, 2007 at 07:18
Iss, alltaf þarf Friðjón að eyðileggja hnyttna orðaleiki með nákvæmni og tittlingaskít. TURK-182
May 23rd, 2007 at 09:38
Er ekki undirskriftin lesin inn í tölvu og prentuð?
May 23rd, 2007 at 10:03
Njah, varla. Hefðu þær þá ekki verið með sömu áferð? Þarna virðist hver meðlimur hafa notað sinn penna - mismunandi litur o.þ.h.
May 24th, 2007 at 16:35
Það verður alltaf ægileg katastróffa úr því þegar fyrirtæki á hinum “frjálsa markaði” fara að laga sig að umhverfinu. Þetta er í raun nátengt náttúruhamförum s.s. jarðskjálftum og eldgosum - nema þessi “aðlögun” er oft boðuð fyrirfram með systematíksum lygaþvættingi sem gengur út á að halda því fram að fyrirtækið ætli ekki að laga sig að umhverfinu. Því er þá gjarna haldið fram að viðkomandi kompaní sé einskonar líknarfélag í dulargerfi.
Svo skellur ógæfan yfir - forspárgildi lyginnar er að vísu eitthvað ábyggilegra en það forspárgildi sem snöggir kippir eða kvikuhlaup hafa í jarðvísindum. En samt flaska menn ótrúlega oft á þessu og hið margfræga reiðarslag skellur þá óforvarendis á byggðunum.