Big in Norway
Einu sinni voru Alphaville stórir í Japan. Nú stefnir í að skrifari þessarar síðu hljóti sínar fimmtán mínútur frægðar í Noregi.
Síðdegis kom fréttamaður frá norska sjónvarpinu (NR2 held ég) og tók við mig viðtal á útidyratröppunum á Mánagötunni. Umfjöllunarefnið var vitaskuld þessi geggjaða hugmynd um norska herinn á Íslandi.
Fréttamaðurinn var greinilega vel undirbúinn og búinn að kynna sér málið furðuvel. Mér sýnist þeir norsku ætla að slá íslenskum fjölmiðlum rækilega við í þessu máli. Umfjöllun þeirra hefur ekki verið uppá marga fiska.
# # # # # # # # # # # # #
Barnið er með magakveisu með tilheyrandi hita og uppsölum. Flestar flíkur eru nú útældar. Það verður víst minna úr verki í vinnunni en til stóð, þess í stað sett í fleiri þvottavélar en búist var við.
# # # # # # # # # # # # #
Í dag skilaði ég af mér tímafreku verkefni sem ég lét plata mig útí. Það var að halda utan um meðmælendalistana fyrir VG í Reykjavíkurkjördæmunum. Meðmælendasöfnunin er klassískt kosningaverkefni sem alltaf lendir í tímaþröng og vitleysu. Persónulega er ég á móti þessu meðmælendakerfi.
En þetta er í höfn og flokkurinn ætti að fá að bjóða fram og vinna frægan sigur í vor.
Megi þjóðin hafna Moggablogginu!

April 26th, 2007 at 09:13
Ég hef nú ekki tekið eftir neinni umfjöllun fjölmiðla hér á landi um Nýja-nýja sáttmálann við Norðmenn og verður líklega ekki, en ég finn strax fyrir meiri öryggiskennd. Þægilegt að vita af öflugum norskum her okkur til verndar, skilst líka að þeir voru að kaupa nýjar byssur um daginn.
Að setja í þvottavélar er full vinna og engin minni að taka úr þeim
April 26th, 2007 at 11:31
Ertu þá bókstaflega í djúpum skít heima fyrir? Sji…
April 26th, 2007 at 12:44
Hahaha! Uss Stebbi! Þú verður að passa þig. Þú ert vonandi ekki upplýsingafulltrúi hjá erlendu verktakafyrirtæki?
April 26th, 2007 at 14:19
Nafni: Frasinn “big in norway” skilar 5.590 niðurstöðum á Google, þannig að þú ert í góðum félagsskap.
Torfi: Ertu þá með tvö stöðugildi bara við umsjón þvottavélarinnar?
Kolli: They wish.
April 26th, 2007 at 14:22
Mér skilst að norski herinn ætli aðeins að “verja Ísland” á friðartímum. Ef það skellur á stríð munu þeir víst drífa sig heim til Noregs. Sú staðreynd eykur reyndar talsvert “öryggiskennd” mína. Það eru mun minni líkur á að herinn slasi eða drepi liðsmenn sína og aðra á friðartímum en stríðstímum (þótt það sé reyndar alls ekki öruggt samanber æfingar íslensku Víkingasveitarinnar). Hins vegar finnst mér skrítið að stjórnmálamenn sem kenna sig við umhverfisvernd skuli þegja þunnu hljóði við þessum fréttum af nýju “hernámi” Íslands. Er þetta nýja umhverfisverndarstefnan? Fleiri heræfingar á hálendi Íslands? Ferðamönnum boðið uppá herþotur í öræfakyrrðinni?
April 26th, 2007 at 14:45
VG þegir í það minnsta ekki þunnu hljóði. Steingrímur bókaði gegn þessu á fundi utanríkismálanefndar eins og sjá má hér
http://www.vg.is/frettir/eldri-frettir/nr/2712
April 26th, 2007 at 15:10
Var að lesa forsíðu Moggans þar sem sagt er frá að nú sé ríkisstjórnin líka að reyna að fá þýskan her hingað til heræfinga. Hvar endar þetta? Þurfa hernaðarandstæðingar kannski að koma upp flokki slagorða: “Ísland úr Nató-norska herinn burt”, “Ísland úr Nató-þýska herinn burt” og svo framvegis?
April 26th, 2007 at 15:10
Hann gerir fyrst og fremst athugasemdir við kostnaðarliðinn - þykir hann eitthvað blóðugur. Svo lýsir hann yfir áhyggjum yfir því að þetta samstarf - við þessa útlendinga - muni að lokum bitna á okkur Íslendingum. Fyndið.
April 26th, 2007 at 15:25
Tvær málsgreinar af sjö fjalla um kostnaðarþætti. Mér sýnist nú þarna vera farið yfir sviðið og tekið á flestum málum.
Mér finnst nú ekkert fyndið við að Íslendingar álpist til að gera stórskaðlega samninga, en ég er svo sem ekkert góður í að fatta hnyttna brandara eins og Ómar Valdimarsson getur vottað.
April 26th, 2007 at 15:35
Um að gera að hafa sem flest stöðugildi, auka hagvöxtinn og svona, árangur áfram og ekkert stopp.
April 26th, 2007 at 15:53
Nei, ég sé ekkert fyndið við stórskaðlega samninga heldur. Veit ekkert um þennan samning enda hef ég ekki séð hann. En hræðsla Steingríms við útlendinga minnti mig á umræðu undanfarinna daga. Hann viðrar í bókun sinni áhyggjur yfir því aðkoma útlendinga muni skaða innlenda starfsemi. Gætu talsmenn annarra flokka talað svona án þess að fá á sig rasistastimpil? Annars er mér slétt sama um skoðanir Steingríms. Hann er glúrinn og ég hef alltaf gaman af honum.
April 26th, 2007 at 16:04
Ekki veit ég hvaða bókun Elín las, en klárlega er það ekki bókun Steingríms. Nema hún lesi hana með það fyrir augum að snúa út úr henni, það skyldi þó aldrei vera?
Það eina sem er í bókun Steingríms um innlenda starfsemi er þetta:
“Jafnframt lýsir undirritaður áhyggjum yfir, og setur skýran fyrirvara við, ef þessi gjörningur leiðir til þess að innlend starfsemi, einkum Landhelgisgæsla, lögregla og björgunarsveitir, verði síður efld að fjárveitingum, mannafla og tækjakosti en ella yrði.”
Steingrímur hefur s.s. yfir því að ÍSLENSK stjórnvöld setji minni fjármuni í Landhelgisgæslu, lögreglu og björgunarsveitir af því að ÍSLENSK stjórnvöld setji fjármunina í staðinn í þetta herliðið. Hvers vegna Elín telur að forsvarsmaður annars flokks yrði stimplaður rasisti fyrir þetta er ofvaxið mínum skilningi.
April 26th, 2007 at 16:11
Skaðlegir milliríkjasamningar við Noreg? Er það mögulegt?
April 26th, 2007 at 16:24
Kolbeinn. Ef fólk viðrar áhyggjur sínar yfir því að hagur almennings gæti versnað vegna aukins fjölda útlendinga - vegna þess að ÍSLENSKIR atvinnuveitendur myndu hugsanlega bregðast almenningi og ÍSLENSKIR atvinnuveitendur myndu hugsanlega borga lélegri laun - þá er sussað á allt slíkt og það kallað rasismi og útlendingagrýla.
April 26th, 2007 at 16:38
Elín! Steingrímur er ekki á móti herliðinu af því að í því eru útlendingar, heldur af því að það er herlið. Ef þú lest bókun hans varar hann einmitt við því að hér verði til ÍSLENSKUR her. Enn og aftur, þjóðernið er ekki málið, heldur starfsemin. Steingrímur lýsir yfir áhyggjur af því að of miklir fjármunir fari í hernaðarbröltið, í stað þess að fara í landhelgisgæslu og björgunarsveitir. Eða heldurðu að ef stofnað hefði verið íslenskt herlið með fjölda starfa hefði Steingrímur hefði lýst yfir ánægju sinni með það? Þá misskilur þú bókun hans meira en ég gerði ráð fyrir.
April 26th, 2007 at 17:33
Ég er búsettur í Noregi og hef fylgst lítillega með þessu í blöðunum hér. Það sem ég hef séð í þeim sem ekki hefur komið fram í íslenskum fjölmiðlum mér vitandi er það sem Norðmenn búast við að fá í staðinn. Þá eru þeir ekki bara að tala um peninga, enda eiga þeir nóg af þeim, heldur að Íslendingar láti af allskonar kröfum í deilumálum um hafsvæði. Hætti við að fara með ýmis mál til Haag og svo framvegis.
Það kæmi nú ekki á óvart að Valgerður hafi gloprað einhverju slíku út úr sér.
April 26th, 2007 at 21:12
Jú, Kolbeinn. Það er rétt hjá þér. Ég skil hvorki upp né niður í þessum samningi. Mér skilst - og hef þær upplýsingar frá Mömmu - að þessi svokallaði her sem um ræðir verði bara til taks á friðartímum. Ég set spurningarmerki við slíka starfsemi en hafna henni ekki alfarið.
April 27th, 2007 at 20:58
Sæll Stefán.
Þetta eru þrælgóðar athugasemdir sem þú ert með varðandi samninginn við Norðmenn. Þú varst líka góður í Kastljósinu með fín rök. En ég velti einu fyrir mér. Hvers vegna í alvörunni ertu ekki í framboði fyrir Vinstri grænt framboð? Ég verð að segja vanta meira “hard core” fólk á framboðslista VG sem veit sínu viti. Það er allt of mikið af listamönnum og lopapeysuliði (með of stóran lopapeysukraga) á framboðslistum VG, liði sem veit lítið um landsmálapólitík. Okkur vantar stjórnmálamann, vel lesinn menntamann eins og þig á þing. Þá væri ég ekki í nokkrum vafa um hvað ég myndi kjósa. Bara ábending frá aðdáanda.