Grátt gaman

Það var sláandi að lesa frásögn Fréttablaðsins af starfsmönnunum við Kárahnjúkaframvæmdirnar sem veiktust í tugatali vegna þess að illa var staðið að framreiðslu á mat. Lýsingarnar á aðbúnaðinum voru hrikalegar, einkum að starfsmennirnir hafi verið vatnslausir djúpt inni í berginu í tólf klukkustundir og neyðst til að sleikja bergið til að slökkva þorstann.

Auðvitað geta mistök átt sér stað og enginn er að halda því fram að verktakafyrirtækið láti svona atburði gerast að gamni sínu.

Það er hins vegar með ólíkindum að lesa viðbrögð Ómars Valdimarssonar, sem titlaður er upplýsingafulltrúi Impreglio (las ég ekki einhvers staðar að hann væri hættur) í “hnyttnu” spurningu dagsins á síðu 2 í Fréttablaðinu í dag. Ómar er spurður út í málið og svarar því til að menn geti lent í djúpum skít ef þeir þvo sér ekki um hendurnar.

Haag?

Ef þetta hefði gerst á mínum vinnustað, Orkuveitunni, að tugir starfsmanna lægju veikir heima vegna mistaka sem líklega mætti skrifa á fyrirtækið - og upplýsingafulltrúi OR færi í blaðaviðtal og gerði bara grín - þá væri afsökunarbeiðni komin frá fyrirtækinu fyrir hádegi og blaðafulltrúinn rekinn fyrir kvöldmat, ef trúnaðarmenn starfsmanna væru ekki búnir að stjaksetja hann fyrst.

Ég trúi því varla að þetta sé rétt haft eftir. Að öðrum kosti virðist þessi Ómar vera afar sérkennilega innréttaður náungi.

Nú þekki ég Ómar Valdimarsson svo sem ekki neitt. Fyrir margt löngu, þegar ég var enn í ritstjórn Múrsins, birtum við grein um Impreglio og starfsemi þess fyrirtækis. Ómar upplýsingafulltrúi sendi okkur um hæl langhund sem hann kallaði svargrein, en hrakti engin efnisleg atriði upphaflegu greinarinnar.

Við svöruðum honum um hæl að sjálfsagt væri að koma á framfæri leiðréttingum á rangfærslum ef einhverjar væru, en að við sæjum engar slíkar í greininni hans og teldum ekki ástæðu til að birta hana. Brást upplýsingafulltrúinn reiður við og sendi annan póst þess efnis íslensk lög skylduðu okkur til að birta svargreinar.

Ég man að eftir þessa lögspeki fékk ég strax á tilfinninguna að Ómar upplýsingafulltrúi væri hálfgerður vitleysingur. Það getur verið heilmikið að marka “first impression”.

Megi Moggabloggið fá vinnuveitendur á borð við Impreglio.

34 Responses to “Grátt gaman”

  1. Hrafn Þór Says:

    Án þess að bera neinn hlýhug til Impreglio finnst mér þetta mál allt svolítið uppgert. Menn eru að vinna niður inní göngum og verða að aðlaga sig og undirbúa fyrir slíkt. Auðvitað er ekki salernisaðstaða þar, gossjálfsali eða ísskápur. Menn verða að hugsa svolítið taka með sér vatn og slíkt. Ég efast um að einhver hafi verið neyddur til að sleikja bergið! Vinur minn vinnur sem kranamaður og er uppí krana í 8-16 klst. pr. dag. Auðvitað tekur hann með sér mat, vatn og ílát fyrir úrgang. Hann kennir ekki helv. verktakanum um þó hann verði þyrstur!
    Hitt er svo annað mál að verkstjórar/staðarsjórar verksins hefðu átt að hugsa útí þetta og brýna fyrir mönnum að taka aðföng með í göngin.

  2. kolbeinn Says:

    Þetta er alveg hárrétt hjá þér og augljóst að maðurinn er ekki starfi sínu vaxinn miðað við þetta svar. Hins vegar má líka spyrja sig út í dómgreindarleysi Fréttablaðsins sem ákveður að hnyttna svar dagsins verði um stórfellda matareitrun vegna slælegs aðbúnaðar erlendra verkamanna. Hvar í ferlinu um lestri um þessar skelfilegu aðstæður hugmyndin “Hei, þetta býður nú upp á fyndið og sniðugt svar!” kviknaði er ofvaxið mínum skiliningi.

    Eitthvað segir mér að ef umrædd matareitrun hefði verið í OR, t.d., og fjöldi starfsmanna hefði veikst við Bæjarháls vegna ótrúlega slæms aðbúnaðar hefði Fréttablaðið ekki haft það uppistöðu fyndna tilsvarsins daginn eftir.

  3. SG Says:

    Það mætti líka óska Moggablogginu þess að ÓV gerðist upplýsingafulltrúi bloggsins. Eða að það borðaði eitraða kássu og fengi blóðugan niðurgang.

  4. Jón Sigurður Says:

    Sú staðreynd að Ómar er moggabloggari mun örugglega ekki auka álit þit á honum.

    Hann er með bloggið: http://omarr.blog.is/blog/omar/

    Þar stendur hann í neikvæðri kosningabaráttu gegn VG á ameríska vísu. Þ.e. með útúrsnúningum og brellum.

  5. Helga Says:

    Er títtnefndur Ómar upplýsingafulltrúi semsé sami maður og bloggar með það eitt að leiðarljósi að því er virðist að ausa óhróðri og svívirðingum yfir Sóleyju Tómasar og fleiri feminista? Ok- annars sammála Kolbeini; snepillinn Fréttablaðið hefði sennilega ekki talið það fyndið ef íslenskir verkamenn þyrftu að gera sér að góðu vinnuaðstæður á borð við þær sem “Pólverjunum” á Kárahjúkum er boðið upp á!

  6. Björgvin Valur Says:

    Líklega er þarna um Kínverja að ræða en að sjálfsögðu eiga þeir að njóta sömu vinnuverndar og við. Launa einnig.

  7. Elías Says:

    Mér sýnist þetta allt vera bara óráðshjal og kjaftæði hjá þessum Ómari og ekki svaravert.

  8. SHH Says:

    Það er nú kannski ekki alveg sanngjarnt að leggja að jöfnu misheppnaðan brandara og almenna mannvonsku. Ekki gott að tapa sér í pólitískri rétthugsun þótt sumt fólk fari í taugarnar á manni…

    Flest fólk í minni fjölskyldu segir fleiri vonda en góða brandara og er sérstaklega hittið á slæmar tímasetningar í því meinta gríni öllu saman. Okkur þætti (flestum) afleitt að vera stimpluð illmenni út af því einu saman.

    Reyndar man ég ekki til annars en að vægar matareitranir sem fella tugi manna í niðurgang og tengd leiðindi hafi alla tíð verið efni í margvíslega illkvittniskryddaðar brandarasúpur hér á þessu kaldranaskeri. Sjálfsagt voru bæði spurning Fréttablaðsins og svar Ómars lituð af þeirri staðreynd.

    Megi hið séríslenska þjóðareinkenni illa tímasett, ósmekkleg og misheppnuð kaldhæðni lengi lifa!

  9. hildigunnur Says:

    maðurinn er fífl. Svo einfalt er það bara. Og það er ótrúlegt hvað þeir hjá Impregilo (ekki Impreglio, NB, nema þú sért að snúa út úr nafninu) komast alltaf upp með mikið. Sögurnar verða líka alltaf verri og verri, enda hafa þeir ekki þurft að laga mikið hjá sér þannig að þeir ganga áfram á lagið.

  10. GSS Says:

    Já þig grunar rétt, hann Ómar er einstaklega illa innrættur.

  11. Gísli Says:

    Þótt maður eigi að heita aumingjagóður, verður að gera undantekningu í þessu tilfelli.

    Hann er fangi heimsku sinnar

    af heiðarleika vanbúinn.

    Eys úr pytti illgirninnar

    upplýsingafulltrúinn.

  12. Ómar R. Valdimarsson Says:

    Sæll Stefán,

    Kannast ekki við að hafa sett út á greinaskrif Múrsins né átt í neinum samskiptum við ritstjórnina þar. Kannski misminnir mig, en það efast ég þó um. Ennfremur kannast ég ekki við að hafa notað orðið “skít” í samskiptum mínum við Fréttablaðið. En það kemur svo sem ekki á óvart að lesa það á blogginu þínu, enda vinsælt hjá vinstrimönnum að hafa það sem betur hljómar.

    Gleðilegt sumar!

    Ómar R.

  13. SHH Says:

    Kæru bræður og systur í sníkjubloggi… Skýtur það ekki skökku við að grenja fyrst undan harkalegum og ómálefnalegum atlögum pólitísks andstæðings, en kalla hann svo dómgreindarlaust, heimskt, illgjarnt og óheiðarlegt fífl og vitleysing sem þurfi að reka snemmendis? Jafnvel þótt þið mynduð fá blóðnasir og hjartaflökt af geðshræringu ef hann viðhefði slíkan munnsöfnuð um eitthvað af ykkar eigin ídolum… :-)

  14. SHIFT-3 Says:

    Sæll Ómar

    Jæja, svo þú kannast ekki við að hafa hótað að siga lögfræðingi á ritstjórn Múrsins ef við birtum ekki greinina þína? Það verður þá bara svo að vera. Annars les maður það á bloggsíðum að þú sért iðinn við að hóta málsóknum: http://ulfarsson.blog.is/blog/ulfarsson/entry/187711/#comments - var það kannski Jóns Gnarr-málið sem kom þér á bragðið?

    En gott og vel. Ekki vil ég vera einn af vondu vinstrimönnunum sem hafa bara það sem betur hljómar. Ef ég hef mistúlkað ummæli þín í Fréttablaðinu svona illilega er sjálfsagt mál að leiðrétta það. Birtum nú ummælin orðrétt:

    Blm: Ómar, er skítt að vera á Kárahnjúkum?

    Ómar: “Þeir sem gleyma að þvo sér um hendurnar geta lent í djúpum.”

    Skýringartexti: Fjörutíu verkamenn við Kárahnjúka voru óvinnufærir á föstudag út af niðurgangi og uppköstum. Heilbrigðisyfirvöld telja hreinlæti ábótavant. Ómar Valdimarsson er upplýsingafulltrúi Impregilo.

    * * *

    Í einfeldni minni taldi ég að ekki væri hægt að skýra þessi ummæli nema á einn veg. En nú má Ómar upplýsingafulltrúi endilega útskýra hina réttu merkingu þeirra.

    Var hér etv. átt við súkkulaðihúðaða lakkríssælgætið “Djúpur” sem mig minnir að Freyja framleiði? Ég skal meira að segja skella útskýringu Ómars á forsíðuna ef hann biður fallega og lofar að siga ekki á mig lögfræðingi…

  15. Ómar R. Says:

    Sæll aftur Stefán,

    Það er í góðu lagi að gagnrýna mig, hvort sem það er persónulega eða fyrir eitthvað sem ég geri í vinnunni. Ég tek það ekkert sérstaklega nærri mér. Að kalla fólk ónöfnum er þó eitthvað sem ég hef að mestu látið vera til þessa og kæri mig ekki um. Ef einhver kýs að kalla mig eitthvað ámóta ósmekklegt og “rasista” ver ég hins vegar hendur mínar.

    Hvað myndir þú gera?

    Góðar kveðjur,

    Ómar R.

  16. Elías Says:

    Sumir þurfa að þvo hendur sínar til að gæta að heilbrigði annarra. Aðrir þurfa að híma með fjölda annarra niðri í gjótu og hálftíma frá næsta klósetti.

    Eiginlega er bara tímaspursmál hvenær fólk lendir í mjög djúpum skít hjá Impregilo, í eiginlegri merkingu.

  17. SHIFT-3 Says:

    Já, það er örugglega ekki gaman að vera kallaður rasisti. Ég minnist þess ekki að hafa lent í því og get ekki sagt til um hvernig ég myndi bregðast við. Ég hef reyndar verið kallaður “stuðningsmaður hryðjuverkamanna”, “óvinur mannsins” og sakaður um hatur á Bandaríkjamönnum, vesturlandabúum, kristnu fólki, gyðingum o.s.frv.

    Formaður ungra Framsóknarmanna í Skagafirði kraftðist þess m.a.s. í útvarpsviðtali að ég yrði kærður fyrir brot á hryðjuverkalöggjöfinni vegna tímaritsgreinar sem ég skrifaði. Aldrei hefur mér nú dottið í hug að hóta málshöfðunum í þessum tilvikum, en lengi skal manninn reyna.

    En ég bíð ennþá spenntur eftir því að fá útskýringuna á Fréttablaðsummælunum. Hvað áttirðu við - ef ekki að verkamennirnir fyrir austan væru í djúpum skít því þeir hefðu ekki haft fyrir að þvo á sér lúkurnar?

  18. Elías Halldór Says:

    Stundum hafa andstæðingar okkar kallað okkur Stalínista. Við vitum auðvitað sjálf að ekkert getur verið fjarri sönnu lagi. Hins vegar er ég búinn að komast að einu: andstæðingar okkar eru í raun og veru Jakobínar.

    Ég hélt reyndar áður að þeir væru stuðningsmenn Genghis Khan, en er nú búinn að sjá hvað þeir eru í raun og veru.

  19. Ómar R. Says:

    Já, langlundargeð þitt er meira en mitt. Það er virðingarvert.

    8. apríl sl. skrifaðir þú eftirfarandi í lok færslu sem bar nafnið Af forsætisráðherrum:

    “Luton tapaði eina ferðina enn um helgina. Við erum í djúpum skít.”

    Meintir þú þetta bókstaflega?

  20. kolbeinn Says:

    Hahahaha! Verri vörn fyrir málflutningi sínum hef ég nú ekki séð. Að Ómar skuli líkja ummælum sínum saman við það að tala um að liðið sem maður heldur með í fótbolta standi illa er hreint út sagt fráleitt.

    Ef Ómar sér ekki muninn á því að ver talsmaður fyrirtækis þegar fjöldi starfsmanna veikist illa og snúa því upp í grín um að það sé því að kenna að þeir þvoi sér ekki um hendurnar annars vegar og hins vegar persónulegum tilfinningum manns úti í bæ (Stefáns) gagnvart arfaslöku fótboltaliði, veit ég ekki hvað hann er að gera í þessu starfi.

    Ég veit ekki betur en Vinnueftirlit hafi stöðvað vinnuna í þessum göngum og að verið sé að endurskoða allt sem viðkemur að mat verkamannanna. Af hverju er fyrirtækið að eyða peningum í þetta þegar almannafulltrúinn er búinn að upplýsa landslýð um að veikindin stafi af ónógum handþvotti?

    En það er gott að Ómar hefur lagst í rannsóknarvinnu á síðu Stefáns, látið leitarvélina leita að “djúpum skít” og aldeilis komið höggi á kauða!

  21. SHH Says:

    Ég skil ekki afhverju Ómar kýs að drösla Luton inn í þessa umræðu! Algjör óþarfi. Rétt eins og ég fatta ekki hvað Kolli er að fara með þessum leiðindum. Luton er ekkert svo tiltakanlega arfaslakt lið, þótt það sé vitaskuld ekki af sama kalíberi og til dæmis, tjah, humm — látum okkur sjá… QPR.

  22. kolbeinn Says:

    Já fyrirgefðu Stebbi. QPR, Luton… þegar maður er að ná sér niður eftir sigur gærkvöldsins talar maður óvarlega. Þegar liðið sem maður hefur stutt frá barnæsku breytist í amrískan banka gleymir maður aðalatriðnum.

  23. SHH Says:

    Þú getur sjálfum þér um kennt, Kolli. Þú sérð vonandi núna hvað við nafnarnir erum séðir, því seint verða Luton og QPR alþjóðlegum auðhringum að bráð!

  24. Bragi Says:

    Hmm burtséð frá allri umræðu um Kárahnjúka þá var ég að lesa grein sem ég varð að benda þér Stefán að lesa. http://blogs.guardian.co.uk/sport/2007/04/25/anyone_want_to_play_on_the_lef.html Einkar áhugavert, ekki satt.

  25. Elín Says:

    Það er greinilega sitthvað að vera í djúpum skít og að vera í djúpum skít. Kolbeinn geturðu kannski útskýrt aðeins betur muninn á persónulegum og ópersónulegum tilfinningum?

  26. SHIFT-3 Says:

    Bara svo það sé nú alveg á hreinu - þá er það ekki notkun Ómars á orðinu “skítur” sem gerir það að verkum að menn draga dómgreind hans í efa, heldur sú staðreynd að hann skuli sem opinber talsmaður fyrirtækis gantast með veikindi starfsmanna fyrirtækisins, á sama tíma og yfirvöld eru að kanna hvort þetta sama fyrirtæki hafi valdið þeim heilsutjóni af gáleysi eða með slugsaskap.

    Menn mega tala um kúk og skít þar til kýrnar koma heim af haganum, en virðingarleysi það sem Ómar upplýsingafulltrúi sýnir þessum starfsmönnum - og skammast sín greinilega ekkert fyrir - vekur upp spurningar um hvort hann sé annað hvort illa gefinn eða illa innrættur, nema hvort tveggja sé.

  27. Elín Says:

    Það er örugglega réttast að gantast ekkert með veikindi starfsmanna. Það er álíka varasamt og að gantast með kynferðislega misnotkun barna og heimilisofbeldi.

  28. Gaukur Úlfarsson Says:

    Uss.. hér er fólk búið að úthúða Ómari fram og til baka og kalla hann öllum íllum nöfnum.. Ég sé ekki betur en allir hér meigi eiga von á símtali frá Ómari öfugsnúna þar sem ykkur verður hótað málshöfðun! Nema náttúrulega þú Stefán, held nú varla að hann hóti þér annari málsókn þegar hann stóð ekki við þá fyrstu..

    Kannski er það samt bara orðið “rasisti” sem fer svona fyrir brjóstið á Ómari? Gaman væri ef einhver væri til í að gera tilraunir, prófa sig áfram með uppnefni á Ómari og sjá hvenær hann hringir.. það er alveg óhætt, því get ég lofað ykkur, reyndar svolítið skondið að heyra í honum titrandi reiða röddina, en hótanirnar eru innantómar, gott ef þær lífga ekki bara svolítið uppá daginn.

  29. Jón Lárus Says:

    Í fyrsta kommentinu er einhver Hrafn Þór, sem heldur því fram að kranamenn vinni sleitulaust í 8-16 tíma. Það væri gaman að vita hvar það væri. Hjá mínu fyrirtæki, þar sem talsverð hífingarvinna fer fram mega kranamenn ekki vinna nema 2 tíma í senn. Þá eru þeir sendir í niður úr krana.

  30. hildigunnur Says:

    já, eru ekki vökulög hér á landi? Er vinurinn í einhverju vanþróuðu ríki?

    Ég get ekki ímyndað mér að það sé ekki full ástæða fyrir pásum á tveggja tíma fresti hjá kranamönnum. Ekki vildi ég vinna á svæði þar sem kranaliðið er búið að vera uppi (og skíta í kassa) í 8 tíma, hvað þá 16. Rugl.

  31. Hrafn Þór Says:

    Rugl !!!! 2 tíma og svo niður í pásu!!!! vökulög!!!

    Jón Lárus og hildigunnur, haldið þið virkilega að ég trúi þessu. Kranamenn eru ekki í stanslausum hýfingum þessa 8-16 tíma. Byggingaframkvæmdir eru ekki eintómar hýfingar. Það koma langar pásur inná milli og þá er það þekkt að kranamenn eru með tölvur, dvd og slíkt sér til afþreyingar. En mér þætti gaman að heyra hvaða fyrirtæki það er sem hefur kranamann bara 2 tíma uppí krana og sendir svo niður í pásu sem er mjög tímafrekt. Þannig er bara kranavinna og verður alltaf.
    hildigunnur; Tekur þú þér pásu á tveggja tíma fresti í þinni vinnu?Lögregluþjónn í útkalli, sjúkraflutningamenn… eru þeir verri starfskraftar ef þeir taka sér ekki pásu á tveggja tíma fresti? Hjúkrunarfræðingar og læknar, þar er algengt að fólk taki tvöfaldar vaktir. Því geta kranamenn ekki unnið langan vinnutíma einsog aðrir? Segið mér það.

  32. hildigunnur Says:

    Hrafn Þór, já, ég tek mér pásu á tveggja tíma fresti, minnst. Ég er ekki að tala um langar pásur. En það er engum hollt að þurfa að einbeita sér í svona langan tíma. Sitja inni í lokuðu boxi í 16 tíma, nevermænd lappa eða tölvuleiki eða bækur. Ég veit að það er ekkert skemmtilegt eða fljótlegt að fara niður og upp úr háum krönum. En tekur þú þér kaffipásu? hádegismat? Siturðu allan daginn í sama stólnum. Mér finnst ekkert skárra (jafnvel verra) að hjúkrunarfólk og læknalið vinni tvöfaldar vaktir, en það afsakar ekkert svona kjaftæði. Það eru andskotinn hafi það vökulög í landinu, right?

    Lögregluþjónn í útkalli getur augljóslega ekki tekið sér pásu rétt á meðan, nei. En eru útköllin stanslaus, allan daginn? Geta þeir teygt úr skönkunum af og til? Já.

    Í fyrirtækinu með tveggja tíma bilið erum við ekki að tala um hæsta krana landsins, kannski 10 metra. Hvað ertu lengi að klifra 10 metra? Svipað og tröppur 4 hæðir. (ókei, kannski ekki alveg eins þægilegt, en þeir ættu nú að vera vanir klifrinu) Í einu húsanna þar sem ég kenni er ég á fjórðu hæð, engin lyfta, og það er nú ekki sérlega tímafrekt að fara upp og niður stigana. (tekur því alveg í 10 mínútna frímínútum - sem eru á klukkutíma fresti). 30 metrar, jú, aðeins lengur. Get ekki ímyndað mér að það sé neitt óhemju tímafrekt samt. En skal sættast á pásu á fjögurra tíma fresti. En að hanga uppi í 8-16 tíma í sömu kompunni og komast ekki á klósett eða neitt, og bara með nestisboxið, ég kaupi það bara ekki.

  33. hildigunnur Says:

    já, ég er ekkert að segja að vinnudagur kranamannsins sé búinn eftir þessa tvo tíma, ef þú hélst það. Það er alveg hægt að vinna sinn 8 (já eða 16 ef þú vilt) vinnudag þó maður taki sér 4 (-8) pásur…

  34. Jón Lárus Says:

    Ég hef þetta beint eftir öryggisstjóra fyrirtækisins míns. Það er full ástæða fyrir þessum reglum. Hver pása er 15-20 mínútur. Hrikalegt?

Leave a Reply