Um rússneskar siðvenjur

Um sexleytið í kvöld átti ég leið framhjá rússneska sendiráðinu. Þar var flaggað - og það ekki í hálfa stöng. Þetta er nokkuð óvænt í ljósi þess að Jeltsín dó í dag. Hér koma nokkrar skýringar til greina:

i) Að 23. apríl sé þjóðhátíðardagur einhvers ríkis eða rússneskur hátíðisdagur og þá sé flaggað óháð öllum andlátsfregnum.

ii) Að Rússar hafi aðrar siðvenjur varðandi meðferð fána í tengslum við dauða þjóðarleiðtoga - flaggi t.d. í fulla stöng í virðingarskyni.

eða

iii) Að þeir hafi verið svona einlæglega glaðir yfir að karluglan væri loksins dauð.

Þriðji kosturinn finnst mér nú ólíklegastur þegar diplómatar eiga í hlut…

Megi landsmenn draga fánann að húni þegar Moggabloggið loksins drepst!

3 Responses to “Um rússneskar siðvenjur”

  1. kolbeinn Says:

    Svo gætu þeir hafa flaggað eins hátt og þeir mögulega gátu svo fánanum yrði ekki stolið af óprúttnum aðilum…

  2. Elías Says:

    Kannski líta þeir svo á að enginn verði til að taka upp hanskann fyrir Éltsýn.

  3. Gunnlaugur Says:

    Kom aldrei fram nein skýring á þessu? Ég hjó líka eftir því að í þessari frétt á mbl.is stóð upphaflega „hundruð“ en ekki „fjöldi“. Í 10-12 milljóna borg er dræm uppskera ef bara nokkur hundruð hræður votta látnum leiðtoga virðingu sína.

Leave a Reply